Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Page 26

Heima er bezt - 01.09.2007, Page 26
Gamlir leikir fyrir þá, sem vilja hvíla sig á tölvuleikjum og fá góða, hressandi hreyfingu í staðinn Útileikir Stórfiskaleikur Útilegumannaleikur Að hlaupa í skarðið Allstórt svæði er afmarkað, og yst á því eru afmarkaðir 3—4 litlir blettir eða „borgir“, með nokkum veginn jöfnu millibili. Það eru kallaðar „hafnir". Einn leikenda er stórfiskur og tekur sér stöðu á miðju leiksviðinu í leikbyijun og kallar: „Aliir í höfh!“ Þá eiga hinir allir að fara í „hafnimar" og þykjast vera skip. Síðan reyna skipin að sigla miili hafnanna, en stórfiskurinn bmnar á eftir þeim og reynir að ná þeim. Heppnist honum það, verður það skip líka að stórfiski og gengur í lið með honum. Ekkert skipið má snúa við í sömu höfn nema tvisvar. Hörfl þaö í þriðja sinn, er það óhaffært og úr leiknum. Ekki mega skipin heldur fara út fyrir leiksviðið, því að þá hafa þau farist og em úr leiknum. En hins vegar má stórfiskur fara út fyrir leiksviðið, en lendi hann inn í einhveija höfnina er hann dauður og úr leik. Til að ná skipi þarf stórfiskur að koma á það tveimur höggum með hendinni í sama skiptið. Þegar aóeins eitt skip er eftir, getur það unniö leikinn, ef þaö kemst milli þriggja hafna. Ef stórfiski þykir eitthvert skipið of lengi í höfn, má hann kveðja það burt úr henni meö því að telja upp að 60, og sé skipið þá enn í höfn, er það úr leiknum. Þegar öllum skipunum er náð (nema þeim, sem farist hafa) er leiknum lokið. Sá, sem síðast næst, verður stórfiskur í næsta leik. Leikendur em byggðamenn og útilegumaður. Mannabyggð er afmarkað svæði, tóft, húsgmnnur eða eitthvað slíkt. Eins getur leikur farið fram kringum hús og er þá byggðin húsdyr eða eitthvað annað. Einn leikenda er valinn útilegu- maður, og þarf hann helst að vera með þeim sterkari. Hann felur sig síðan, en byggðamenn fara að leita að fé sínu. Sá byggðamanna, sem fyrst verður útilegumannsins var, á að kalla hátt og snjallt: „Útilegumaður fúndinn!" Taka þá allir á rás til byggða. Útilegumaðurinn reynir að ná þeim og halda þeim, áður en þeir ná í borg eða byggð, og ganga þeir, sem hann nær, í lið með honum. Ef hann hefur ekki náð öllum, áður en þeir komast í byggð, felur hann sig aftur með mönnum sínum, sinn á hverjum stað, og eiga þeir allir aó hjálpast að því aö ná byggðamönnum í næstu leit. Ekki mega byggðamenn sjá, þegar útilegumaður felur sig, né hjálpa hverjir öðrum til að slíta sig af honum. Leikendumir standa í hring og haldast í hendur. Einn er utan við hringinn og gengur ffam með honum og segir „Alein(n) ég fyrir utan varð.“ Allt í einu vindur hann sér að einhveijum í hringnum, slær á herðar hotium og segir: „Eigum við ekki að hlaupa í skarð?“ Síðan taka báðir á rás umhverfis hringinn, en hvor til sinnar handar. Sá, sem fyrri verður i skarðið, vinnur, en hinn verður utan við. Olöglegt er að fara inn í hringinn á hlaupunum, reyna að smjúga undir hendur hinna leikendanna o. s. frv. „Eitt parfram!" Tveir og tveir leikendur haldast í hendur og fylkja sér hver fyrir aftan annan í halarófú, en fyrir framan halarófuna stendur einn leikendanna og er hann ekkjumaðurinn. Þau tvö, sem aftast standa í röðinni, skiljast nú og hlaupa sitt til hvorrar handar fram fyrir halarófúna og reyna að ná þar saman. En ekkjumaðurinn hleypur samstundis af stað til að reyna að ná stúlkunni. Heppnist það, fara þau fremst í halarófuna, en sá, sem afgangs varð, verður nú ekkjumaður. 458 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.