Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Side 28

Heima er bezt - 01.09.2007, Side 28
Rófuleikur Leikendumir taka hver aftan í annan, svo að myndast halarófa, nema einn þeiira, sem leikur lausum hala og heitir hann sækjandi. Fremsti maðurinn í halarófunni heitir verjandi og er það jafnan sá, sem sterkastur er. En sá aftasti heitir halarófan og hefur húfu á höfði. Nú reynir sækjandinn að ná húfúnni af halarófunni, en veriandinn reynir að hindra það sem best hann íná, og hleypur í veg fyrir hann, en þá koma hlykkir og bugður á rófuna. Þá eru leikslok, er sækiandi hefur náð húfunni af halarófúnni eða keðjan hefur slitnað sundur. Höfrungahlaup Leikendur standa í röð, hver beint fram undan öðmm og hafa um tveggja faðma bil á milli sín. Allir styðja þeir höndunum á hnén og beygja hálsinn, nema sá aftasti. Hann er höffungur. Hann hleypur til, styður höndum á axlir þess, sem fyrir íraman stendur, og hleypur yfir, en ekki má hann koma við hann með fótunum. Með þessum hætti á hann að hlaupa yfir alla hina. Ef hann kemst yfir alla, þá staðnæmist hann fyrir framan og stendur eins og hinir. En þá á sá að vera höfmngur, sem nú eraftastur, og svo koll afkolli, þangað til allir hafa hlaupið yfír alla. En snerti höffungur einhvem með fótunum eða detti eða komist ekki yfir, þá er hann úr leiknum, og siíkt hiö sama hver, sem feilur við, þegar höffungurinn stekkur löglega yfir hann. Þetta má og gera með því móti að hliðinni sé snúið að höffungnum, en þá er hlaupið miklu erfiðara. Pokahlaup Leiksviðið verður að vera slétt, svo að síður sé hætta á að leikendur meiði sig. Leikendur stinga fótunum í poka og binda pokaopið um mittið, eða um hálsinn, sé þess kostur. Síðan hlaupa þeir að settu marki. Sigurvegari er sá, sem fyrstur kemur í mark. Burtreið Tveir leikenda em hestar, og þurfa þeir að vera stórir og stæðilegir. Tveir eru riddarar, og er best, að þeir séu léttir og fimir. Þeir sitja á öxlum hinna tveggja. 1 leiksbyrjun sitja riddarar hvor á sínum enda leiksviðsins, en hvetja síðan hesta sína, og geysast fram hvor á móti öðmm. Reyna þeir svo að koma hvor öðmm af baki og beita til þess öllum brögðum, sem drengileg geta talist. Sá bíður ósigur, sem fyrr fellur afbaki. Til þess að forðast meiðsli, má láta hestana ganga á fjómm fótum, svo að ekki sé úr háum söðli að detta. Ef það er heldur kosið, má hafa allsherjar burtreið. Er leikendum skipt í jafna flokka, sem ríðast síðan á. Foringi er fyrir hverju liði og stjóma þeiratlögunni. Bændareiptog Leikendur kjósa sterkustu mennina úr hópnum fyrir bændur. Síðan kjósa bændumirtii skiptisjafnmarga menn til fylgis við sig, uns öllum flokknum er skipt. Ef leikendatalan stendur á stöku, skal sá siðasti ganga í lið með þeim bændanna, sem síðar byijaði að kjósa. Þegar liðinu er fullskipt, fá leikendumir sér sterkt band eða reipi og togast á um það. í upphafi sitja bændumir hjá og taka ekki þátt í leiknum, en jafnskjótt og hallast verulega á annan hvom flokkinn, þá skal bóndi þess flokks, sem undan lætur, ganga til og veita honum lið. Ef sá ilokkur lætur undan þrátt fyrir það, hefur hann algerlega tapað leiknum. En gangi honum á hinn bóginn betur, skal hinn bóndinn hjálpa flokki sínum og er þá reynt til þrautar. I þessum leik mega svo margir taka þátt, sem vilja. Samantekt: Ragnar Jóhannesson. Kínverjahlaup Tíu spýtur eru lagðar í röð á jörðina með eins fets inillibili eða rúmlega það. Leikandi á að hoppa yfir allar spýtumar á öðmm fæti. Ekki má hann snerta neina spýtuna, því þá er hann úr ieik. Þegar hann er kominn yfir tíundu spýtuna, lýtur hann niður (án þess að stíga í hinn fótinn) og tekur hana upp og hoppar síðan aftur yfir spýtumar, sem eftir em. Þá kastar hann spýtunni, hoppar enn yfir, tekur upp þá níundu, hoppar með hana til baka, og svona heldur hann áffam, uns hann hefúr tínt upp allar spýtumar. Leikandinn er úr leik, ef hann snertir spýtu með fæti eða stígur niður báðum fótum. Halti refurinn Einn leikenda er „halti refúrinn". Hinir eru lömb. Á öðrum enda leikvallarins er afmarkað greni refsins, en á hinum ból lambanna. Refurinn er í greni sinu í leiksbyijun. Lömbin fara nú úr bóli sínu, ganga nær og nær greninu og fara að stríða refnum og ögra honum. Þau syngja t. d.: „Hver er hræddur við Rebba ref, Rebba ref, Rebba ref? Hver er hræddur við Rebba ref, Rebba ref í greni?“ eða: „Enginn hræðist haltan ref, haltan ref, haltan ref. Enginn hræðist haltan ref, haltan ref i greni!“ Þegar refnum finnst eitthvert lambið komið í gott færi, þýtur hann á eftir því. En hann er haltur, má aðeins hlaupa þtjú skref á báðum fótum, en síðan verður hann að hoppa á öðmm fæti. Þeir, sem refiirinn nær í, verða haltir refir eins og hann og hjálpa honum að ná hinum lömbunum. Þegar lömbin eru komin heim í ból sitt, snauta refúrinn og félagar hans í grenið. Lömbin leggja enn af stað að stríða refnum. Þannig er haldið áfram, uns eitt lamb er eftir. Sá leikandi verður halti refúrinn í næsta leik. Bæði refur og lömb mega hverfa heim til sín, hvenær sem þau vilja, til að hvíla sig. 460 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.