Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Side 35

Heima er bezt - 01.09.2007, Side 35
batnaði stöðugt. Varð mjög góður afli í þeim mánuði, svo að 31. marz eru margir bátar komnir með 450—550 smálestir. Ekki brást apríl fremur venju, því að segja má að allan þann mánuð hafi verið ágætur afli og allt fram undir lokadag. Mjög var spjallað um aflakóng Eyjanna á þessari vertíð, og hver hljóta myndi titilinn. Það er nú orðin sú tignarstaða, að menn fylgjast vel með því, hver hreppi hana. Ávallt geta breytingar komið til mála. Búizt var við harðari keppni nú en nokkru sinni áður. Austtjarðabátarnir höfðu sýnt það 1957, að þeir voru hættulegir keppinautar, þar eð þeir urðu f jórir næstir Binna á Gnllborgu, þ. e. Víðir frá Eskifirði með 743 smálestir, Snæfugl Su. 711 smálestir, Björg Su. 655 smálestir og Gullfaxi NK 653 smálestir. Margir urðu því til að spá sigri þeirra á þessari vertíð. Aðrir trúðu á Binna og enn aðrir á ýmsa Eyjabáta, svo sem Stíganda, Freyju, Erling 3., Kristbjörgu, Hannes lóðs o. fl. Formenn í Eyjum lögðu fátt til þessa mikla áhugamáls almennings og spáðu engu um. Trú mín er hins vegar sú, að þeir hafi strax í byrjun vertíðar hugsað Binna þegjandi þörfina, stigið á borðstokkinn og strengt þess heit að sýna honum í tvo aflaheimana. Væri og ekki ósennilegt að þeím hafi fundizt tilhlýðilegt að mannaskipti yrðu í hásætinu. Hvað Binna viðkemur hygg ég hann hafi hugsað sín mál í kyrrþey, hann er vanur því, og heitið því með sjálfum sér að gefast ekki upp að óreyndu. Hins vegar þekkti hann keppinauta sína og var fullkunnugt um að þeir voru engir veiðiglópar. Nei, það var nú eitthvað annað. Þeir voru á góðum, nýjum bátum, sem gengu eins og togarar, og höfðu úrvals skipshafnir innanborðs. En keppnin er skemmtileg, og þar sem enginn verður óbarinn biskup, var bezt að taka mannlega á móti. Þessir veiðigarpar veittu Benóný fljótt harða atlögu, er á vertíð leið, en hann varðist af mikilli hörku. Veiðisnilldin brást honum ekki, því þótt fyrir kæmu dagar, sem aðrir voru aflahærri, jafnaði hann metin næstu daga og hækkaði aflamagn sitt jafnt og örugglega. Hann fiskaði austur með landinu, þegar aðrir voru vestan Eyja, en þegar flotinn kom austur með, þá flutti hann sig vestur, alveg eins og hann fyndi á sér að fískurinn var að færa sig. Aflinn brást ekki. Um miðjan apríl hafði hann raunverulega fiskað meginpart vertíóarafla síns og var þá örugglega hæstur að mun. Harða atlögu gerði Ófeigur þriðji með mjög mikilli aflahrotu, svo að ekkert stóðst fyrir honum. Þó náði sú sókn ekki að knésetja Binna á Gullborgu. Lokasprettinn tók hann svo um mánaðamótin og sótti þá austur með landinu, fískaði vel og endaði vertíðina daginn fyrir lokadag með 65 smálesta róðri. Hafði þá aflað alls 1291 smálestir yfir vertíðina. Hann hafði orðið aflakóngur Eyjanna í fimmta sinn og slegið öll met; orðið aflahæsti bátur landsins og konungur allakónganna 1958. Formenn óskuðu kappanum til hamingju og almenningur hyllti hann, en hann lofaði að verðleikum keppinauta sína í fengsælli og drengilegri keppni á vertíðinni. Benóný Friðriksson er aðeins 54 ára gamall, svo að ástæða er til þess að halda, að hann eigi langan og merkilegan starfsferil framundan. Starfsþrek hans er óbilað og hugurinn til hvers konar veiða mikill. Það munu varla líða margir dagar frá vertíðarlokum, þar til hann fer að búa bát sinn á síldveiðar fvrir Norðurlandi. I millitíð væri hann vísastur til þess að skreppa á trillubáti út á heimamiðin með línustubba eða handfæri. Hann kann ekki við sig í landi og unir hvergi nema á sjónum. Þar er hans rétti vettvangur, að róa og físka í hvers konar veiðarfæri, troll, herpinót, línu, net, handfæri og flotvörpur. Aflasældin er ávallt sú sama. Ekki veigrar hann sér heldur við að veiða lunda í háf upp um fjöll og fírnindi. I þeirri íþrótt er hann enginn meðalmaður en talinn til þeirra slyngustu, þótt enn hafí hann ekki orðið lundakóngur. En satt að segja væri honum alveg eins trúandi til þess að hreppa þann titil. Hann er ótrúlegur aflamaður, mér liggur við að segja yfímáttúrlegur. Benóný er fremur lágur vexti, dökkur á brún og brá, móeygur og augun fúll af fjöri. Hann er þrekinn um herðar og þykkur um hönd, vel að kröftum búinn og léttur í skapi. Á fyrri árum var hann lipur knattspvmumaður og vel þjálfaður fimleikamaður, og býr hann enn vel að þeirri likamsmennt. Allar hreyfingar hans em léttar, mjúkar og fjaðurmagnaðar, viðbrögðin snörp og handtökin til allra verka föst og viss. Að þessu leyti hefur hann verið til fyrirmyndar skipshöfnum sínum sem og um alla sjómannshæfni. Til hans hafa ávallt valizt góðir sjómenn, sem hafa kunnað að beita orku og sjómannssnilli við handtökin. Þeir hafa heldur ekki farið tómhentir frá borði Benónýs, en notið hins bezta framhaldsskóla og fengið auk þess betri laun en nokkur skóli greiðir meisturum sínum. Það er meira en nemendur munu yfirleitt geta státað af. Benóný Friðriksson er kvæntur Katrínu Sigurðardóttur frá Þinghól í Hvolhreppi, Sveinssonar frá Moshvoli og konu hans, Jóhönnu Jónsdóttur frá Götu í sama hreppi. Katrín er fríðleikskona og mikilhæf og hefur ekki sjaldan orðið að bíða í fjötrum óvissu og kvíða um afdrif manns síns í hildarleikjum hans við æst náttúruöflin. Hafa það trúlega verið þungbærar stundir, er hún þurfti að hugga og hughreysta átta börn þeirra hjóna. Bæjarbúar voru hins vegar aldrei hræddir um Binna á sjónum, þó að veður væru váleg. Oft var það, að allir bátar voru taldir heim komnir í illviðrum, þó að hann væri ókominn að landi. Það var eins og fólk tryði á afburðahæfni hans á sjónum, að hann skilaði sér og skipshöfn sinni heillri í höfn. „Það eru allir komnir að nema Binni,“ sagði fólkið, sem beðið hafði á Skansinum heimkomu allra bátanna. „Ja, það er allt í lagi með hann, hann kemur bráðum.“ Með þá fullvissu fór hver til sinna heimkynna, fullkomlega rólegur. Þannig lauk og hverjum hildarleik Binna, að hann bar hærra hlut og renndi bát sínum, drekkhlöðnum af físki, farsællega að bryggjunni. Að endingu: Eg óska Benóný til hamingju með aflakóngsnafnbótina og óska honum og heimili hans alls góðs í framtíðinni. Heb 1959. Heima er bezt 467

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.