Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Page 45

Heima er bezt - 01.09.2007, Page 45
Það er orðið svo áliðið. Hann kemur óvanalega seint niður að þessu sinni. Varst þú að koma frá honum? - Já, mamma. Agnes lýtur að vanga móður sinnar og hvíslar við eyra hennar. - Við Haukur erum trúlofúð. - Var það að gerast núna á þessari stundu? Fréttin veldur engum svipbrigðum á andliti Ragnhildar. - Já, núna rétt áðan, ég segi þér svo meira seinna. Agnes ætlar að halda áfram út úr húsinu, en Ragnhildur segir. - Lofaðu mér að óska þér til hamingju, Agnes mín, svo fæ ég þér kaffibakkann, og þú færir Hauki hann sjálf, ég óska honum til hamingju seinna. Agnes meðtekur blessunaróskir móður sinnar í hlýjum kossi, en kafifibakkann snertir hún ekki. - Þú færir Hauki kaflfið, mamma, og óskar honum til hamingju um leið, ég ætla út í blómagarðinn, þar bíður mín smávegis verkeihi, sem ég gaf mér ekki tíma til að leysa af hendi í morgun, þegar ég sótti þangað blómin handa Hauki. Agnes hraðar sér út úr húsinu, en Ragnhildur heldur áfram upp á loft með morgunkafifið handa Hauki lækni. Fréttin um trúlofun þeirra Hauks og Agnesar kom henni ekki á óvart, þó að hún væri reyndar orðin nokkuð vondauf með það, að dóttir sín ætlaði að bera gæfu til að vinna ástir læknisins, en nú kvíðir hún ekki ffamtíð hennar lengur. Við hliðina á Hauki lækni veit hún að Agnes verður að góðri konu, því þrátt fyrir allt er hún ágæt stúlka, sem aðeins þarf að mótast betur í þroskandi lífsreynslu til þess að skilja lífið réttilega. Ragnhildur gengur að herbergi læknisins og drepur á dyr, en enginn svarar. Hún opnar hurðina hljóðlega og lítur inn. Herbergið er mannlaust en dymar fram á svalimar standa opnar. Ragnhildur heldur áfram inn í herbergið og setur kafifibakkann á borðið. Svo gengur hún út á svalimar. Haukur læknir stendur þar eins og í leiðslu og starir dapurlega í íjarskann. Ragnhildur kann því ekki vel að sjá hann þannig á svipinn, hún vonaðist til að mæta honum glöðum á þessum morgni, en ástæðumar geta verið margar fyrir dapurleik hans. - Góðan daginn, Haukur læknir, segir hún glaðlega. Haukur vaknar eins og af draumi og lítur á Ragnhildi. - Góðan daginn, frú Ragnhildur. - Ég er komin með morgunkafifið handa yður, gjörið þér svo vel. - Ég þakka yður fyrir. Hann fylgist með Ragnhildi inn í herbergi sitt. - Ég var ekki vel stundvís í morgunkafifið að þessu sinni, ég bið yður afsökunar á því. Haukur brosir eins eðlilega og honum er unnt. - Það er ekkert að afsaka, ég skil ástæðuna. Ragnhildur brosir honum til samlætis. Læknirinn sezt við borðið og byrjar að drekka kafifið, en Ragnhildur hagræðir stórum blómsturvasa, sem stendur fullur af angandi rósum á súlu í herberginu og segir svo eftir dálitla þögn. - Agnes mín var að færa mér stórar fféttir áðan, sem snerta ykkur bæði, Haukur læknir. Svo, sagði hún yður, hvað okkur fór á milli hér í morgun? - Hún sagði mér frá trúlofun ykkar. Haukur brosir dauflega. - Já, sú ákvörðun var gerð hér fyrir stundu síðan. Ragnhildur tekur innilega í hönd læknisins. - Ég óska yður hjartanlega til hamingju, tengdir við yður em mér fagnaðarefni, Haukur læknir. - Ég þakka, Ragnhildur. - Það verða góð tíðindi, sem Sveinn minn fær við heimkomuna hingað á morgun. - Já, Agnes var að segja mér ffá því, að Sveinn læknir væri aðeins ókominn. Þá er mér nú óhætt að fara að hugsa til brottferðar. - Þér dveljið hér eitthvað lengur hjá okkur, þótt Sveinn sé kominn heim. Við hefðum öll mikla ánægju af því. - Ég þakka yður fyrir það, Ragnhildur, en nú veitir mér ekki af tímanum til undirbúnings fyrir mína utanför. - Utanför? - Já, sagði Agnes yður ekki ffá henni? - Nei. - Ég er á fórum til Ameríku og ætla að stunda þar framhaldsnám um óákveðinn tíma. - Og Agnes veit þetta? - Já, hún veit það. - Hvemig tók hún því? - Vel, enda breyti ég ekki þeirri ákvörðun minni. - Ég skil það vel, að ungur læknir vilji leita sem hæst í list sinni, bæði innanlands og utan, þess tryggari verður framtíðin, sem þekkingin er meiri. Ég er viss um að Agnes skilur það líka og að hún beri fullt traust til yðar. - Henni er það óhætt, ég mun standa við mín loforð. Haukur hefur lokið við að drekka kaflfið, þakkar fyrir það og rís á fætur. Einveru þráir hann mest af öllu, en slíku verður hann að leyna úr því sem orðið er og koma ifam eins og honum sæmir bezt, sem tilvonandi tengdasyni læknishjónanna á Sólvangi. Ragnhildur á mörg verkefni óleyst fyrir heimkomu manns síns. Hún gefúr sér því ekki tíma til að ræða ffekar við Hauk lækni að þessu sinni, tekur kaflfibakkann og gengur niður í eldhús til sinna starfa. Hugur Ragnhildar er þmnginn fögnuði yfir heimkomu manns hennar og framtíðarheill einkadóttur þeirra, en utanför Hauks læknis dregur úr gleði hennar, helzt hefði hún kosið að Agnes og Haukur stofnuðu heimili saman strax í haust. Hún efast þó ekki um það, að læknirinn standi við gefin loforð, en... Hún verður að vona hið bezta. *** Sveinn læknir er kominn heim, ánægður með langt og viðburðaríkt ferðalag. Haukur Snær hefur lokið veru sinni á Sólvangi, og leið hans liggur suður til Reykjavíkur. Hljóðar endurminningar sumarsins fylgja honum. Á leiði dáinna vona geymir hann mynd ungu kaupakonunnar á Sólvangi, á hana fellur enginn skuggi. En hann gleymir heldur ekki loforðum sínum við læknisdótturina. Útþráin seiðir. Ný viðfangsefni verða bezta lyfið til að deyfa harmleik örlaganna. í hljóðri kyrrð haustsins kveður Haukur Snær land feðra sinna, og stígur á fleyið, sem ber hann til ókunnra landa. Heima er bezt 477

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.