Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Page 3

Heima er bezt - 01.02.2009, Page 3
Stofnað árið 1951 Utgefandi: Umgerð ehf., Ritstjóri/áb. maður: Guðjón Baldvinsson. Heimilisfang: Jöklafold 22, 112 Reykjavík, Sínii 553-8200 Tölvupóstur: heimaerbezt@simnet.is Heimasíða: www.heimaerbezt.net ISSN 1562-3289 Útlit og umbrot: Sig.Sig. Prentvinnsla: Lidaprent Askriftargjald kr. 6.340 á ári m.vsk. og póstburðargjaldi, fyrir 12 tölublöð. Kemur út mánaðarlega. Tveir gjaiddagar, í júní og desember, kr. 3.170 í hvort skipti. Verð stakra hefta í áskrift kr. 528 með póstburðargjaldi, í iausasölu kr. 670. Eldri árgangar af Heima er bezt: Til eru að mestu eldri árgangar frá 1956 með eftirfarandi undantekningum, sem inn í vantar orðið: 1957-1959-1960-1985-1988-1990- 1993-1994-1995 og 1996. Árgangar 1999 og 2000 eru að mestu til, en þó ekki alveg heilir. Aðeins er hægt að fá stök blöð úr áröngum 2002-2008. Verð stakra hefta til áskrifenda kr. 500, kr. 670 í lausasölu. Öll blöð, sem til eru fyrir 2001 fást einungis í heilum árgöngum og kostar hver árgangur kr. 2.500. Forsíðumyndin Vctur í be. Ljósm.: Guðjón Baldvinsson. Efnisyfirlit Guðjón Baldvinsson: Úr hlaðvarpanum „Þorradægur þykja löng“ ---------------------------m Guðjón Baldvimson: Hef sjaldnast farið troðnar slóðir Rætt við Skúla Helgason, ífv. prentara, Reykjavík. -----------------------------m Þórey Einarsdóttir: Sumardvöl í sveit 1966 Vorið 1966 gekk í garð, skólinn búinn og krakkamir í Hlíðahverfmu nutu sín í margskonar bolta og útileikjum. Pálmi var búinn að opna sína fyrstu Hagkaupsbúð í gamla Qósinu hans Geira í Hlíð. Við Austurbæjarskóla vom margar rútur og þar söfhuðust saman böm og foreldrar yngstu bamanna sem voru að fara í sumardvöl. ■fBa Kjartan T. Ólafsson: Minningar frá Látrum í Aðalvík Aðalvík liggur fyrir norðan ísafjarðardjúp og markast að sunnan af fjallinu Rit, en að norðan af Straumnesi og þar er höfundur fæddur og uppalinn. Hann rifjar hér upp minningar um mannlífið á sínum æskuslóðum á fyrri hluta síðustu aldar. ■ QS Auðunn Bragi Sveinsson: Margt um manninn á Sólgörðum í Fljótum Hér er farið nokkuð aftur í tímann. Árið er 1955. Snemma sumars þetta ár kom fjölmennur vinnuflokkur að skólasetrinu Sólgörðum í Vestur- Fljótum í Skagafirði, með Sigfús Sigurðsson, verkstjóra, í broddi fylkingar. Nú var hugmyndin að rafvæða Fljótin, en gerð hafði verið rafstöð við Skeiðsfoss í Stíflu, ffemst í Fljótum, er þjóna skyldi Siglufírði eingöngu. .. Örnólfur Thorlacius: Frumuminni eða sálarflakk? Ýmis tilvik hafa orðið til þess að menn eru famir að velta fyrir sér þeim möguleika að sá sem tekur við líffæri úr öðmm, svo sem hjarta, og lungum eða lifur, fái hugsanlega fleira frá gjafanum en líffærið eitt. Ólafur Ragnarsson: Örlög togarans St. Romanusar Sagt frá hvarfi breska togarans St. Romanusar við íslandsstrendur árið 1968. Kviðlingar og kvæðamál Dægurljóð og vísur af ýmsu tagi. Umsjón: Auðunn Bragi Sveinsson. Snorri Jónsson: Sumarið 39 „Vorið og sumarið 1939 er minnisstætt ýmsum þeim sem þá vom komnir til vits og ára. Þá var sólskin og blíða og sunnan andvari nánast vorlangt norður í Húnaþingi. Það var dásamlegt vor“, segir höfúndur í upphafi minninga sinna ffá þessum tíma. Jón R. Hjálmarsson Úr fróðleiksbrunni Ingimundur gamli Þorsteinsson landnámsmaður á Hofi í Vatnsdal. Alfheiður Bjarnadóttir: Þegar himinninn grætur Framhaldssaga, 13. hluti. Stína og Stjáni Teiknimyndasaga ÆXD Myndbrot Horft um ö\l Myndir frá reiðtúr ungmennafélagsins Geisla í Óslandshlíð árið 1927, fúlgu-gerð árið 1960, og heimalningum árið 1961. Sendandi Ingibjörg Stefánsdóttir, Sauðárkróki. es HEIMA ER BEZT tekur til birtingar greinar og myndir um flest það úr mannlegu lífí sem fólk telur til fróðleiks og þess vert að geymast á prenti. Einnig viðtöl við fólk á öllum aldri, um ævi þess, störf og viðhorf. Handritum má skila hvort sem er á tölvutæku formi, vélrituðum eða handskrifuðum. Lumar þú á fróðleik um frásagnarverð atvik, skemmtilegt og áhugavert fólk, framkvæmdir, daglegt líf og siði áður fyrr, dýr, bæi eða skemmtanir? Við hjá Heima er bezt höfum áhuga á slíku efni, bæði gömlu og nýju.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.