Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 5
Hef sjaldnast farið Guðjón Baldvinsson TROÐNAR SLOÐIR Rætt við Skúla Helgason, prentara, Reykjavík Skúli heitir hann, Helgason. Það eru líklega rúmlega 30 ár síðan að ég heyrði jyrst af og hitti Skúla prentara, eins og hann gjarnan kynnir sig sjálfur, en þá tengdumst við óbeint inn í sömu atvinnugreinina, prentiðnaðinn. Hann rakþá prentsmiðjuna Anilínprent í vesturhluta Reykjavíkur og ég starfaði við sölu pappírs og annarra vara til prentiðnaðar. Skúli er einn af þeim mönnum sem verða minnisstœðir, hjá honum er það hressileikinn og raddstyrkurinn sem einkum festist í minni, auk léttleikans og gamanseminnar sem jafnan einkenndi manninn og gerir enn. Svo skiptust leiðir eins og gjarnan vill verða hjá mönnum og málefnum, og það liðu mörg ár áður en leiðir okkar Skúla lágu saman nœst. Það var ekki jyrr en fyrir einu eða tveimur árum síðan að hann birtist óvænt inni á gólfi hjá mér, með sama gamla hressileikann í farteskinu, og var nú að leita sér að eldri árgöngum Heima er bezt, til uppjyllingar í árgangasafn sem hann var að binda inn. Mér var kunnugt um að Skúli hafði átt við- burðaríka œvi sem vert vœri að festa á blað. Eg fór þess því á leit við hann nú fyrir skömmu, að fá að eiga við hann spjall um œvi hans og störf sem hann tók strax vel í. Og svo sannarlega var þar ekki komið að „ tómum kofunum “, eins og sjá má af samtali okkar, sem hér fer á eftir. r g er fæddur hérna í Reykjavík, að Þinghólsstræti 5, þar sem lengi stóð Isafoldarprentsmiðja. Faðir minn hét Helgi Jónsson og var norðan úr Þingeyjarsýslu, þar upp alinn hjá föðursystur sinni, mest í bæ sem hét Garðshom, og er norðarlega í Kinn. Þegar honum óx fiskur um hrygg, var hann aðallega látinn vera í því að skjóta rjúpur, sem síðan voru seldar til kaupfélagsins, sem seldi þær svo aftur til Englands. Þetta er bæði íyrir stríð og eitthvað á stríðsárunum líka. Það mun hafa verið mikið af rjúpu þama í Kinnaríjöllunum en hann sagði mér það síðar, að þetta hefði verið erfítt verk, og mikið brölt. Hann fór svo eiginlega í hálfgerðu fússi þaðan, honum samdi aldrei almennilega við þessa föðursystur sína, og fer til Húsavíkur. Hann var laghentur, faðir hans, Jón, var smiður líka, og vann lengst á trésmíðaverkstæði sem lengi var til á Húsavík og bar nafnið Fjalar. Pabbi byrjar svolítið að smíða með honum þar, og eitthvað fóru þeir til Siglufjarðar, því þar þurfti að reisa á hverju ári nýjar bryggjur. Þær voru úr tré bryggjumar þar, og ekki kostað miklu til og þær eiginlega eyðilögðust á hverjum vetri. Þá réðu Norðmenn mestu á þessu svæði og hann sagði mér stundum frá bryggjusmíði sinni þarna. Þetta var um það leyti sem snjóflóðið mikla varð á Siglufírði. Það var nefnilega hinum megin við fjörðinn, og útgerð vegna síldarinnar, en þetta fór allt í einu snjóflóði. Þar fórst fólk og hverfið fór í eyði eftir þetta. Heima er bezt 53

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.