Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 13
ekki annað en það að þetta er eitt lélegasta síldveiðisumar sem komið hafði um langan tíma. Ekkert nema þrældómurinn, allt dregið á höndunum. Og kaupið var eitthvað eftir því. Eg held ég hafi þénað um 12-1300 krónur og fékk þær ekki útborgaðar fyrr en árið eftir. En svo lenti ég í Hvalíjarðar síldarævintýrinu um haustið 1947, þá var ég á bátnum Arinbimi, sem Sigurður Eyleifsson átti, frægur skipstjóri sem hafði verið á Arinbimi hersi. Þetta var nýr Svíþjóðarbátur og hann skírði hann náttúrlega eftir hinu skipinu. En ekki líkaði mér þetta til lengdar og svo fór að vorið eftir hitti ég Pétur vin minn Sumarliðason aftur, en þá var hann kominn í það ásamt fleirum að gera íbúðir hreinar fyrir fólk. Og ég geng í lið með honum og upp úr því starfi var ágætt að hafa. Svo þróast þetta einhvem veginn þannig að Pétur og sá, sem hafði verið með honum dankast einhvem veginn út úr þessu og úr verður að ég yfirtaki fyrirtækið, ásamt manni sem hét Haraldur Bjömsson, faðir Ingibjargar skáldkonu og þýðanda. Þetta gekk svo vel að við jukum við reksturinn og bættum við starfsfólki á tímabili. Það var heilmikið fjör hjá okkur. En svo varð ég nú leiður á þessu „þvottaríi“, og sérstaklega glímunni við kerlingamar, sem allt þóttust vita og kunna betur en við hvemig ætti að standa að þrifúm, að ég ákveð að fara bara aftur á sjóinn með bróður mínum. I það sinnið var ég gerður að kokki á skipinu, einfaldlega skipaður í það, því kokkurinn sem var fyrir, hafði hlaupið af skipinu á Siglufirði. Jón Valgeir hét sá bátur, einn af stærri Svíþjóðarbátunum og gerður út frá Reykjavík. En þar tókst mér einhvem veginn að koma mér í gott rifrildi við stýrimanninn og rauk líka frá borði á Siglufirði, eins og kokkurinn forveri minn, rétt við miðjan desembermánuð, 1949, og hitti á það að Herðubreiðin, strandferðaskipið, er einmitt að fara frá Siglufirði og með henni kemst ég til Reykjavíkur. Þá tek ég mér fyrir hendur að komast í bókbandsnám, því ég var alltaf með nefið niðri í bókum. Og það var nú ekki hlaupið að því, líklega svona þétt setinn bekkurinn í þeirri grein. Mágur minn, Styrkár Sveinbjamarson, var þá kominn í nám hjá prentsmiðju Þjóðviljans í setningu, sem þótti nú miklu virðulegra heldur en að vera prentari í greininni. Og hann segir mér að það geti verið smuga að ég komist þar að til að læra prentverk. Eg hef engar vöflur á því heldur storma upp á Skóavörðustíg, þar sem prentsmiðja Þjóðviljans var til húsa og hitti fyrir Stefán Ögmundsson, þann ágæta mann,. Ekki hafði hann setjarastarf á lausu, en ég gat komist að í prentaranám. Eitthvað var ég að væflast yfir því að það væri ekki eins virðulegt og að vera setjari, en þá kom Stefán með þessa ansi skemmtilegu athugasemd: Heyrðu Skúli, ef við færum báðir austur til Kína (Stefán var setjari), þá gæti ég ekkert fengið að gera, en þú gætir hinsvegar prentað hvem andskotann sem þig lysti. Þú þyrftir ekkert að skilja eitt einasta orð í textanum sem prentari. Þessi rök nægðu mér og ég réði mig bara þama, á stundinni, sem nema, og hóf námið á þrettándanum, 1950. Á sama tíma og ég var í prentnáminu, fór ég í tvö mjög minnisstæð ferðalög. Það fyrra fór ég 1951, á heimsmót æskunnar í Berlín. Þangað fór um 36 manna hópur héðan frá íslandi. Þar á meðal var Eiður Bergmann vinur minn og félagi. Þetta var heljarstórt mót, haldið í Austur-Berlín. Þá var Þýskaland enn hemumið land að sjálfsögðu. Við sigldum út á þriðja farrými með Dronning Alexandrine, sem þá var í fömm á milli íslands og Danmerkur. Eitthvað stoppuðum við í Kaupmannahöfn en fómm svo þaðan með Dönunum yfrr sundið og jámbrautarlest til Berlínar. Þetta var náttúrlega mikið ævintýri fyrir mig, fyrsta ferð mín út í heim, þó nánast væri auralaus. Það var mjög sérstakt að koma til Berlínar á þessum ámm. Heita mátti að borgin væri ein mslahrúga eftir loftárásimar í stríðinu. Uppbygging var ekki komin langt, en þó sá maður að það var farið að reisa eitthvað af því sem ég kalla stundum Stalín-blokkimar, þama í Austur-Berlín, það vom svona ristastór fjölbýlishús. Við náðum því að skoða mest alla Berlín. Reyndar háttaði þannig til að maður þurfli alltaf að fara i gegnum gæsluhlið, ef maður ætlaði að fara til Vestur-Berlínar, en við áttuðum okkur fljótlega á því að neðanjarðarlestunum var stjómað frá Austur- Berlín og þess vegna var mögulegt að fara með þeim vestur yfir án þess að þurfa að tékka sig neins staðar í gegn, maður bara fór úr einhvers staðar þegar komið var vestur fyrir og skutlaði sér þar upp á yfirborðið og fór svo sömu leið tilbaka að því loknu. Sá hluti lestarkerfisins sem var ofanjarðar var kallaður „S-bahn“ (hitt var ,,U-bahn“), og því var stjómað af yfirvöldum í vesturhlutanum. Þetta gat reyndar verið svolítið varasamt, því vegabréfin höfðu verið tekin af okkur og fengum við bara einhvem blaðsnepil í staðinn, sem staðfesti að við væmm þátttakendur í heimsmótinu. Svona heimsmót var svo haldið affur árið 1953, og ákváðum við Eiður að fara líka á það. En í það sinnið tókum við þá ákvörðun að gera þetta að þriggja mánaða ferðalagi og fara víðar. Við byijuðum á því að sigla til Bretlands og skoða okkur um þar, þaðan fóram við svo til Frakklands og dvöldum eina viku í París. Þar vomm við svo heppnir að kynnast Austurlandabúa, svona eilífðarstúdent, sem var gjörkunnugur borginni og tók að sér að sýna okkur hana. Frá París fómm við til Sviss, og þaðan til Feneyja og beint þaðan til Austurríkis og skoðuðum Vínarborg. Þetta ferðalag okkar var meira en lítið óvenjulegt á þessum tíma, og þótti ýmsum nóg um, töldu okkur jafnvel orðna hálf klikkaða. Þá vom svona ferðalög mjög sjaldgæf á meðal íslendinga. Svo stefndum við á Búkarest með lest, því nú tók að nálgast þann tíma sem heimsmótið átti að hefjast. Við vomm snemma í því, komnir þangað um viku áður en mótið hófst. Þar fengum við strax tvær leiðsögukonur, okkur til halds og trausts, sem unnu á vegum mótsins. Þær fóm með okkur um allt þarna og sýndu okkur flest það sem markvert var að skoða. Við ferðuðumst í fínustu drossíum á meðan þetta stóð yfir. Og þessi vika sem við Eiður áttum þama áður en heimsmótið hófst, var albesti hluti ferðarinnar og mjög skemmtilegur. Þama kom náttúrlega alveg gífúrlegur fjöldi af æskufólki allsstaðar að úr heiminum. Á þessum tíma var Kóreustríðið í algleymingi og ég man Heima er bezt 61

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.