Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Qupperneq 16

Heima er bezt - 01.02.2009, Qupperneq 16
Sumar- dvöl í sveit 1966 Vorið 1966 gekk í garð, skólinn búinn og krakkarnir í Hlíðahverfinu nutu sín í margskonar bolta og útileikjum. Pálmi var búinn að opna sína jyrstu Hagkaupsbúð í gamla jjósinu hans Geira í Hlíð. Það var mikil byltingjyrir landsmenn frá heimasaumuðu fötunum. Urvalið var mikiðþ.m.t. stretsbuxur, vatteraðar úlpur, Bobbie-skór og hinir vinsœlu Hagkaupssloppar. Það var mikið að gera í búðinni, allir krakkarnir sem voru að fara í sveit fengu ný föt. Eg fékk rauða vatteraða úlpu, rauðköflóttar stretsbuxur og Bobbie-skó. Þetta voru ferðafötin í sveitina. Við Austurbæjarskóla voru margar rútur og þar söfnuðust saman böm og foreldrar yngstu bamanna sem vom að fara í sumardvöl. Mörg félög stóðu fyrir rekstri sumardvalarstaða á þessum tíma eins og til dæmis Vorboðinn og var það starf styrkt af verkalýðsfélögunum. Þetta vom staðir eins og Rauðhólar, Silungapollur og fleiri. Foreldar bamanna mættu þangað til að fylgja þeim úr hlaði. Rútubílastöðin var niður í miðbæ og þar var margt um manninn. Mörg borgarbömin voru að fara í sveit. Mamma fylgdi mér á stöðina og rétti mér nesti og útsaumaðan vasaklút að skilnaði. Það voru blendnar tilfínningar sem bærðust um í brjósti mínu man ég. Norðurleiðarútan var smekkfull og farangur upp á þaki og bundinn aftan við. Ég fékk sæti við gluggann. Leiðin lá norður um rykuga og mjóa malarvegi. Stansað var á hefðbundnum stöðum í Botnsskála, Hreðavatnsskála og Staðarskála. Ekki man ég hvað við vorum lengi á leiðinni. A endastöðinni minni var stoppað við hótelið í kaupstaðn- um. Bóndinn, sem var kominn yfír miðjan aldur, sótti mig á græna „spýtu“ Willys-jeppanum sínum (hann var með tréhúsi). Við keyrðum beina leið í sveitina. Bærinn stóð 64 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.