Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Qupperneq 18

Heima er bezt - 01.02.2009, Qupperneq 18
ðalvík liggur fyrir norðan Isaijarðar- djúp og markast að sunnan af tjallinu Rit, en að norðan af Straumnesi. Víkin er um sjö km breið og álíka löng. Undirlendið upp frá víkinni er klofíð i þrennt af allháum ijöllum. Milli Rits og Hvarfnúps er Vestur- Aðalvík. Þar voru bæimir Skáladalur, framan í Ritinum, og Sæból á ströndinni, þar sem óx upp dálítið þorp framan af 20. öld. Nokkru ofar var svo bærinn í Görðum og allmiklu lengra inni í Staðardal, á bökkum Staðarvatns, var prestssetrið Staður, þar sem enn stendur íbúðarhús og kirkja. Hjá Stað var einnig hjáleigubýlið Lækur og út frá Staðardal neðanverðum er Þverdalur og í honum var samnefndur bær. Milli Hvarfhúps og Mannfjalls heita Miðvíkur. Þar vom bæimir Effi- og Neðri- Miðvík og var tvíbýli á báðum. Fram úr Miðvíkum rennur Miðvíkurós til sjávar. Norðan í Mannfjalli er sífferi á einum stað. Þar tóku sjómenn fyrrum klaka til kælingar á afla sínum. Norður ffá fjallinu liggur síðan Stakkadalsvatn á láglendinu. Upp frá því gengur Stakkadalur og í honum samnefndur bær, þar sem var tvíbýli og stundum þríbýli. Norðan Stakkadalsvatns eða öllu fremur norðan óssins sem úr því fellur, er allmikill sandmefur sem nú er mjög gróinn melgresi. Á mel þessum er nú flugbraut, þar sem litlar flugvélar geta auðveldlega lent. Þegar yfir mel þennan kemur er komið að Látmm, þar sem líka óx upp talsvert þéttbýli og öllu meira í sniðum en á Sæbóli. Straumnesið, þar sem vitinn stendur, teygir sig út til hafs. Hæsti tindurinn uppi á nesinu heitir Trumba og er 377 metra hár. Sunnan á nesinu heitir Straumneshlíð inn að Kví, en svo kallast gríðarmikil skál í fjallinu ofanverðu. Innan við Kví liggur Látrafjall sem er feiknamikil klettaborg sem nær inn í Bása og þaðan inn í víkurbotn. Þar taka við Hálsar í skarðinu milli víkurbotns og Rekavíkur bak Látur. Þaðan teygir fjallið sig út með Rekavíkinni til sjávar og síðan áffam út Straumnesið og lokast þar hringurinn. Þetta mikla fjall er nærri helmingi lengra en það er breitt og hæð þess er mest í Skomm, 435 metrar, þar sem Ameríkumenn reistu radarstöð á ámnum 1954-60, sem þó aldrei tók til starfa. Landnámsmaður i Aðalvik var Geir- mundur heljarskinn Hjörsson sem uppi var á 9. og 10. öld. Hann gafþar land Örlygi Böðvarssyni sem flúið hafði ffáNoregi til Islands. Sést af því að Aðalvík hefur byggst snemma á öldum. Hvar maður þessi bjó í Aðalvík er ekki vitað, en hann átti líka lönd á Sléttu og í Jökulfjörðum. Látra er fyrst getið í skjölum árið 1416 og er þá talin 30 hundraða jörð og höfuðból í sveitinni. Nokkur eignaítök vora um jörðina á fyrri tíð og óljóst um eignahaldið ffam undir 1800. Þá situr þar merkisbóndinn Halldór Bjamason, vel efhaður og í góðu áliti. Um aldamótin 1900 fór útgerð vaxandi og samfara því varð fólksfjölgun á Látmm sem og víðar í Norður-Aðalvík. Tveir fyrstu mótorbátamir komu að Látmm 1906. Eigendur annars þeirra vom Hannes Sigurðsson útvegsbóndi á Látmm og Hjálmar Jónssonbóndi í Stakkadal. Hét þeirra bátur Njáll og var fimm tonn að stærð með fjögurra hesta Möllerupvél. Hinn báturinn var sexæringur sem sett var í vél og hét hann Hlöðver. Eigendur hans vom Friðrik Magnússon útvegsbóndi á Látmm og Þorbergur Jónsson bóndi í Efri-Miðvík. Friðrik var formaður á bátnum. Magnús Dósóþeusson bóndi á Látrum féll ffá hinn 19. september 1878. Hann var tvíkvæntur og átti 15 böm. Af þeim lifði aðeins yngsta bamið sem var sonurinn Friðrik. Daginn sem Magnús var jarðaður hljóp aurskriða á Látrabæinn, svo að flytja varð byggðina. Upp úr því myndaðist þéttbýliskjaminn í Látrabrekkunni sem síðar varð tjölmennasta og öflugasta útgerðarstöð hreppsins um árabil. Ekkjan Guðrún Friðriksdóttir byggði upp úti í brekkunni og nefndist bærinn Látranes, en yfirleitt bara Nes. Hún giftist aftur og hét sá Þorkell ísleifsson, Kjartan T. Olafsson Minningar frá Látrum í Aðalvík 66 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.