Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Síða 19

Heima er bezt - 01.02.2009, Síða 19
ekkjumaður með fimm böm. Þau Guðrún og Þorkell eignuðust þrjú böm, svo að eitthvað munu erfðamálin hafa verið skrýtin, þegar tímar liðu. Látrabrekkan er gamall og snarbrattur sjávarkambur, um 50-60 metra hár. Neðan þessarar brekku er ijaran, sem mjókkar sífellt vegna ágangs sjávar og kannski hækkandi sjávarborðs vegna loftlagsbreytinga. Við sjóinn var útgerðin og þar stóðu mörg hús, beitingaskúrar og fískverkunarhús til aðgerðar, söltunar og herslu. Einnig vom þar verbúðir sem stundum var búið í al!t árið. Þessi byggð á kambinum var tvískipt. Við ytrisjóinn, sem var beint fyrir neðan Nesbæinn, var meiri byggð og fleiri hús. En við heimasjóinn voru húsin færri, enda snjóþyngra þar. Þar vom geymsluhús fyrir vömr og fleira, enda stutt upp í verslunina sem stóð þar uppi ábrekkunni. Látrabrekkan má heita næstum jafhhá á nokkur hundrað metra kafla. Þar standa tvær grænar tóttir. Frá Innri-Grænutótt lækkar brekkan inn að Naustabala, en frá Ytri-Grænutótt lækkar hún líka og skiptist raunar í tvær brekkur. Neðri brekkan myndar undirlendi fyrir Nesbæinn, en efri brekkan undirlendi fyrir byggðina meðfram fjallinu og inn undir Skriðu. Ut úr brekkunni fyrir neðan Ytri- Grænutótt kemur tær og fallegur lækur sem kallast Engelskur. Þar tóku erlendir sjómenn vatn í tunnur og mun lækurinn draga nafn af því. Foreldrar mínir áttu lengi heima á Látmm, en árið 1935 fluttust þau á prestsetursjörðina Stað. Þá urðu mikil umskipti i lífí mínu og við þau tímamót miða ég það sem á eftir kemur, þó með ýmsum innskotum og útskotum. Þegar komið er í Látranes sem stendur ofan við ystu sjávarhúsin er brekkan ekki há og gatan ffá sjávarhúsunum liggur upp að bænum. Þar bjó lengi Friðrik Magnússon, útvegsbóndi, og sonur hans var Gunnar Friðriksson, sá sem fluttist til Reykjavíkur og var, meðal annars, forseti Slysavamafélags íslands í 22 ár samfleytt. Þegar nýtt björgunarskip kom til ísafjarðar sumarið 1997 var það skírt Gunnar Friðriksson. Þannig hittist þá á að fyrsta björgunarferð skipsins var norður í Aðalvík til að draga á flot bát sem strandað hafði á sandinum á Látrum og tókst að bjarga honum óskemmdum. Kirkjan á Stað í Aðalvík. Þar þjón- aði m.a. séra Snorri Björnsson um miðja 18. öld, síðar á Húsafelli. A Látranesi var jafhan mikil gestanauð á fyrri tíð og aldrei talið eftir að sinna fólki sem að garði bar. Þá ól Friðrik upp fósturböm, bæði skyld og vandalaus. Hann missti tvo syni sína í sjóinn árið 1924 og kann það að hafa stuðlað að áhuga Gunnars á slysavamamálum. Á sjávarbakkanum nokkuð fyrir utan Nesbæinn byggði Kjartan Finnbogason frá Effi-Miðvík sér hús. Hann var kvæntur Magdalenu Brynjólfsdóttur, systur fyrstu konu Friðriks Magnússonar, og áttu þau sex böm. Kjartan féll frá árið 1924. Eftir að Jósef Hermannsson á Atlastöðum missti konu sína fór Magdalena til hans sem ráðskona og seldi þá Vagni Jónssyni húsið. Kona hans var Jakobína Hallvarðsdóttir og áttu þau níu böm. Vagn fluttist síðastur manna úr Sléttuhreppi haustið 1952 og þá til Hnífsdals. Fyrir ofan Vagnshús er Ystibær sem stundum var kallaður Hrakningur. Að þeirri nafhgift er saga á þessa leið: Þau tvö hús sem eftir standa af útgerðarþorpinu á Látrum heita Jaðar, til vinstri á myndinni, og Hamar (Olafshús), til hægri. Guðrúnar í Látranesi, var kvæntur Kristínu Hermannsdóttur ffá Sléttu, en hún var hálfsystir Magnúsar, fyrri manns Guðrúnar í Látranesi. Sonur þeirra Kristínar og Hermanns var Jósef Hermannsson, síðar bóndi á Atlastöðum. Þeir feðgar fengu að byggja kofa á Naustabala, en það land var í eigu Hannesar á Iðavöllum. Þá varð Jósef það á að eignast bam með heimasætunni á Iðavöllum, Pálínu Hannesdóttur. Hún átti að giftast ffænda sínum, Guðmundi Sigurðssyni kennara, en þau vora systkinaböm. Guðmundur var tilbúinn að gangast við baminu, ef Jósef viðurkenndi opinberlega að hafa ekki komið nálægt stúlkunni, en því hafhaði hann. Út af þessu urðu nokkur réttarhöld og sagt er að Jósef hafi verið settur í stofúfangelsi um tíma, en hann lét sig ekki. Þeim feðgum var þá úthýst af Naustabala og fengu að færa kofa sinn þangað sem Y stibær stendur nú og þaðan er Hrakningsnafnið komið. Þetta gerðist 1903, en 1906 keypti Jósefhálfa Atlastaði á móti Júlíusi Geirmundssyni. í framhaldi af því eignaðist Friðrik Finnbogason Ystabæ og bjó þar með sina stóm fjölskyldu til 1941, er hann fluttist til Akureyrar. Þau hjón, Friðrik og Þómnn, áttu 17 böm og komust 14 til fullorðins ára. Að auki ólu þau upp Kristbjöm, dótturson sinn. Hermann Guðmundsson, hálfbróðir En nú fæmm við okkur upp á effi brekkuna. Upp af Ystabæ, undir Heima er bezt 67

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.