Heima er bezt - 01.02.2009, Qupperneq 20
fjallsrótunum, er hús sem heitir Sólvellir.
Það byggði Ami Þorkelsson 1914 með
aðstoð bræðra sinna, Friðriks í Nesi,
hálfbróður í móðurætt og eiganda landsins,
og Sigurðar, hálfbróður í föðurætt, sem
munu hafa stutt hann verulega. Ami kom
með fjölskyldu sína vegalaus af Suðurlandi
og munu þeir bræður hafa greitt farið fyrir
þau vestur. Þegar þau svo fluttu í Skáladal
1929, keypti Guðmundur Flalldórsson af
þeim húsið og bjó þar uns hann fluttist til
Bolungavíkur. Þau hjón áttu sex böm.
Bjami Dósóþeusson fékk að byggja sér
hús utarlega í Nestúninu 1914, en hafði
áður búið í Görðum í Vestur-Aðalvík. Árið
1932 mun hann svo hafa flutt í Halldóruhús
uppi á brekkunni og verið þar til 1934, er
hann fluttist til sonar síns, Guðmundar
Rósa, í nýbyggt steinhús.
Næst fyrir innan Sólvelli kom Jaðar.
Þar bjó ekkjan eftir Benedikt Þeófilusson,
Þórkatla Þórkelsdóttir og fjögur uppkomin
böm hennar. Einn son missti hún í sjóinn
1924. Hún ól upp Sigríði Aðalsteinsdóttur,
dótturdóttur Friðriks Magnússonar,
stjúpbróður síns. Einnig var þar til
húsa Þórður Kárason, gamall maður og
haltur. Um hann er til huldufólkssaga í
þjóðsögustíl.
Innan Jaðars var dálítill torfkofi,
Jóelshús, í eigu Flermanns Jakobssonar,
uppeldissonar Jóels Snorrasonar. Þar
bjuggu systkinin Margrét og Hermann
Friðriksböm. Hjá þeim ólst upp Júdít
Júlíusdóttir úr Fljótavík.
Lítill lækur rann milli Jóelskofa og
Olafshúss. Það hús heitir raunar Hamar,
enda beint niður undan Svarthömrum.
Guðni Jósteinsson mun hafa fengið að
byggja þama árið 1906, en hann tók þá
í fóstur Pálínu, komunga dóttur Friðriks
Magnússonar sem misst hafði aðra konu
sína skömmu eftir bamsburð. Sonur Guðna
var Sölvi, lærður smiður frá Noregi
sem seinna fluttist til Kanada. Grindin
í húsinu var gerð úr rekaviði frá Pálma
bónda í Rekavík, en annað efni keypt
að. Kristján, sonur Guðna, eignaðist svo
þriðjung hússins, ytri endann og byggði
við það skúr, þar sem hann hafði eldhús
og geymslur. Þegar Guðni dó 1917, keypti
faðir minn, Ólafúr Helgi Hjálmarsson,
þann hluta hússins. Hann lét síðar gera við
það, endumýjaði norðurgaflinn og setti
á það kvist. Það verk unnu þeir Albert
Kristjánsson og Sigurður Bjamason,
Séra Sigurður Einarsson í Holti,
fyrir altari í Staðarkirkju, þar sem
hann söng messu sumarið 1965.
báðir lærðir smiðir og Aðalvíkingar.
Ólafúr fluttist aftur í þetta hús, eftir að
hafa búið í fímm ár á Stað og dvalið
síðan sumarlangt í Skáladal og einn vetur
í Steinhúsi. Þá breytti hann ýmsu innanhúss
og byggði við það stærra anddyri. Var
það til verulegra bóta. Næst fyrir innan
Ólafshús bjó Jón Hjálmarsson. Hann missti
konu sína 1921. Hjá honum bjó Guðrún,
dóttir hans, og hennar maður, Finnbogi
Friðriksson og fímm böm þeirra. Svo
kom hús sem Halldóra Guðnadóttir hafði
búið í, áður en hún fór í Stakkadal með
sonum sínum uppkomnum. I það hús
fluttist Bjami Dósóþeusson sem áður hafði
búið í Bjamabæ í Nestúni. Því næst kom
hús Áma Gíslasonar, en hann fluttist með
Hermanni, syni sínum, að Effi-Miðvík
um þetta leyti.
Nú er röðin komin að Húsatúni, þar
sem Friðrik Geirmundsson bjó með
fjölskyldu sinni. Hann var sjómaður sem
gerði út trillu í mörg ár og var farsæll.
Þar fyrir innan og ofan var skúrbygging,
þar sem Ámi Amfmnsson bjó í mörg ár.
Kona hans var Jasína Guðleifsdóttir úr
Grunnavíkurhreppi. Þau áttu 13 böm og
hún eitt áður. Mörg bamanna ólust upp
hjá vandalausum.
Þegar Ámi fluttist til ísafjarðar 1940,
keypti Guðmundur Rósi skúrinn. Hann
flutti hann á gmnn nokkuð fyrir utan
Húsatún, byggði við hann og nefndist
það síðan Urðarhús.
Nú emm við komin á byggðarenda á
Látrum, þar sem bærinn stóð upphaflega og
skriðan féll á 1878. Þar heitir Skriða og þar
bjó Sigurður Þorkelsson, dugnaðarbóndi
og sjómaður. Hann hafði ungur misst hægri
hönd, þegar hann var að hreinsa byssu.
Engu að síður gekk hann til allra starfa
á sjó og landi og hlífði sér í engu. Niður
undan Skriðu byggði Ágúst Pétursson,
tengdasonur Sigurðar, sér hús og fékk
tún út úr Skriðulandi.
Nú fömm við út brekkuna aftur og
komum þá að grónu býli á Iðavöllum.
Þar bjó áður útvegsbóndinn Hannes
Sigurðsson. Seinna bjó þar dótturdóttir
hans, Brynhildur Jósefsdóttir, og seinni
maður hennar, Ólafúr Friðriksson,
búfræðingur og aðfluttur af Norðurlandi.
Hannes átti nokkur böm og ijögur
fósturböm.
Bergmundur, fóstursonur Hannesar,
byggði sér hús nokkuð fyrir neðan Iðavelli.
Hann var verslunarskólagenginn og vann
ýmis störf fyrir sveitarfélagið, auk þess sem
hann var símstjóri, oddviti og fleira.
Nú bregðum við okkur niður á
Naustabala. Þar lékum við okkur oft,
A myndinni sést mótafyrir byggingum á Skorarfjalli á Straumnesi.
Ameríkumenn reistu þar mikil hús yfir radarstöð, sem þó tók aldrei til starfa.
68 Heima er bezt