Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Page 29

Heima er bezt - 01.02.2009, Page 29
Lillian Bilocca. nú umfangsmikil leit sett í gang. Mörg skip og bátar tóku þátt í henni þrátt fyrir að veður enn væri vont veður. Mjög slæm skilyrði til leitar vom við Mánareyjar enda foráttubrim við eyjamar. Þá bámst þær fréttir að á fjörum skammt frá bænum Skógum hefði fundist ýmislegt rekið úr skipinu. M. a. 3 björgunarhringir, 2 brúsar með blysum til merkjagjafar og fl. A öfhistu síðu Morgunblaðsins (þar vom yfirleitt innlendar fféttir) stóð meðal annars með feitletraði fyrirsögn: „Tel allt benda til að togarinn hafi farist á Brekanum,“ og síðan með aðeins smærra letri: „segir Guðmundur Halldórsson formaður björgunarsveita Slysavamafélags fslands á Tjömesi.“ I greininni segir hann m. a. „Eftir þeim upplýsingum sem ég hef fengið er ég ekki í vafa um að togarinn hefur farist á Brekanum," og síðar: „Lendi skip á Breka þessum í svona veðri, er engin von til að nokkur verði til frásagnar. Fullvíst má telja að skipið hafi borið að mjög óvænt og það brotnað þegar. Hefði skipið farist vegna ísingar eða vegna áfalls á djúpsævi em engar líkur til að olían hefði streymt uppá yfirborðið svo að nokkm næmi.“ Þama lýkur frá sögn blaðsins. 4-5 skip munu hafa farist á þessum slóðum (Skv. bók Steinars J Lúðvíkssonar „Þrautgóðir á raunastund“, 1985) þ. á. M. frönsk skúta og togarinn Julianne, sem talið var að farist hafi á þessum slóðum 1934. En hvað um það, aldrei upplýstist hvort Kingston Peridot steytti á Mánárbrekanum eða ekki. Leitinni var formlega hætt 3. febrúar 1968, en þá höfðu t. d. varðskipsmenn komist í land á Lágey og rannsakað hvað olli miklu hrafnageri á eyjunni. En ekkert markvert fannst. Nú víkur sögunni að okkur Halldóri Inga Hallgrímssyni. Eins og ég sagði var ég fyrsti stýrimaður á B.v. Karlseini undir stjóm Halldórs Inga. Seinnipart janúar vomm við að veiðum út af Vestfjörðum. Veðurfarið var rysjótt en þó höfðum við það af að tutla nógu upp í dallinn til að sigla með. Voram við svo á leið til Reykjavíkur. Þá dettur Inga í hug að taka eitt hol á Eldeyjarbankanum. Gefúr hann mér fyrirmæli um það. Svo stýri ég að þeim stað svona nokkum veginn þangað sem hann hafði gefíð fyrirmæli um. Ingi kom upp þegar ég stoppaði en fannst við vera á ffekar gráu svæði hvað landhelgina varðaði en það gæti ekki skeikað svo miklu og átti ég bara að toga mig út í öryggið. Við sáum skip ekki svo mjög langt frá okkur. Töldum við þetta vera fiskibát því hann sýndi okkur bara eitt toppljós og hliðarljós. Svo köstum við. Þegar við emm að taka í blökkina emm við þá ekki allt í einu Ross Cleveland. „baðaðir" í ljósum. Þama er þá á ferðinni varðskipið Óðinn. Hann skipar okkur að hífa sem við og gerðum. Koma þeir svo og sækja Halldór Inga. Leið góður tími áður en þeir koma með hann til baka og segir hann mér að málið sé í athugun á “„æðri stöðum“ og ættum við að bíða fyrirmæla. Um einum klukkutíma sinna komu svo boðin, um að við mættum bara fara okkar leið, það yrði ekkert gert, við hefðum verið alveg á línunni en fengjum að njóta vafans. Héldum við nú til Reykjavíkur en Óðinn hélt á norður eftir. Þegar við emm svo að nálgast Vestmannaeyjar eftir viðkomu í Reykjavík, skellur á fárviðrið mannskæða þegar m/b Heiðrún IS fórst og Ross Cleveland hvolfdi og Notts County strandaði, en það gerðist allt í Isafjarðardjúpinu. Varðskipsmönnum af Óðni tókst með harðfylgi að bjarga 18 af 19 manna áhöfh Notts County, einn var dáinn af vosbúð er varðskipamenn komust út í flakið. Mönnum sem heyrðu síðasta kall Phil Gay skipstjóra á Cleveland munu minnisstæð orð hans: „Við emm að leggjast á hliðina. Við emm að farast. Hjálpið mér. Ég er að farast. Sendið ástarkveðjur mínar og áhafharinnar til eiginkvenna okkar og fjölskyldna.“ Með Ross Cleveland fómst 18 menn en einn bjargaðist. Maður getur ekki annað en leitt hugann að því ef Óðinn hefði staðið okkur að landhelgisbroti og farið með okkur til Reykjavíkur, hvar hann hefði þá verið staddur er Notts County strandaði! En eftir allar þessar hönnungar risu sjómannskonumar í Hull upp og kröfðust úrbóta á nánast öllu er viðkom togarasjómennsku í Englandi. Þau ár sem eftir lifðu með enska togara hér við land vom að mestu mannskaðalaus fyrir þá og mátti þakka það sennilega að stómm hluta kröfúm kvennanna sem fengu miklar úrbætur í gegn. Það er athyglisvert að sú kona sem mest hafði sig í frammi Lillian Bilocca, var gift 2. vélstjóra á flutningaskipi og hafði ekki um sárt að binda hvað þessi sjóslys varðaði. Þetta finnst mér segja okkur sjómönnum töluvert mikla sögu og vera til eftirbreytni. Heima er bezt 77

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.