Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 31

Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 31
Þetta orti Dagbjartur til 18 ára stúlku: Blítt ogfallegt bros þitt er að biðli ertu að leita. Guð mun einhvern gefa þér og gœfu mikla veita. I nafni ungrar stúlku yrkir landpósturinn fagurlega: Eg er ung og ástfangin, enginn mín þá biður. Finnst mér þung þau forlögin, að finna ei vin, sem styður. Gamansemi bregður fyrir í kveðskap landpóstsins: Svaf hjá frúnni í sœlli ró; sóttist eftir meira þó, Illugi barði, en Adam sló, af því fengu báðir nóg. A Grund í Reykjavík dvaldist Dagbjartur eitthvað. Hann ber heimilinu vel söguna og forstöðu þess: Forstjórinn á fyrstu Grund flytur rœður snjallar, einarður á alla lund, elskar blómin vallar. A Grund er gott að vera, Gísli afhugsjón ríkur. Hér vil ég beinin bera, þar til yfir lýkur. Að lokum er kveðja til Patreksijarðarkirkju: Eg kveð mína kirkju með klökkum róm, og kem kannski brátt fyrir œðri dóm. Ég trúi á krossinn og Krists míns blóð, krossinn, sem fyrir öldum á Golgata stóð. Ég hefi kynnt vísur og erindi eftir Dagbjart Björgvin, valin úr ljóðasafni hans „Ur tösku landpóstsins“. Dægurljóð Þegar þetta hefti berst ykkur í hendur, mun vetrarmánuðurinn þorri vera langt genginn. Það er stutt frá jólum til þorra gamla. Lífið væri ansi snautt, ef ekki væru til ýmsir tyllidagar. Fremur lítið var um slíka daga í mínum uppvexti. Helsta tilbreytingin var er blöðin komu, sem gerðist á hálfsmánaðar fresti. Þá voru blaðapakkarnir rifnir upp í snatri og tekið til við að lesa fréttir og annað efni. Nú þurfum við að fá fréttir úr ijölmiðlum oft á dag. Ég átti heima um fimmtán ára skeið á stað sem nefnist Þykkvibær. Þar var þá rekin margvísleg starfsemi og stofnanir starfræktar. Nú er svo komið að verslun er aðeins í tveimur þéttbýlisstöðum sýslunnar (Rangárvallasýslu), á Hellu og Hvolsvelli. Skólar eru starfræktir á þremur stöðum, bömum ekið langar leiðir. Eitt er þó eftir í sveitunum, það em hinar árlega miðsvetrarskemmtanir, sem nefnast þorrablót. Þá safnast fólk saman og skemmtir sér ómælt. Hér á eftir læt ég nægja að birta ljóð, sem ég orti fyrir þorrablótið á fyrmefndum stað árið 1973. Það skal fram tekið, að hér er eingöngu um almennt efni að ræða, en persónulegt látið eiga sig. Og þá er bezt að drífa sig í að birta þennan þorrabrag, sem var einn af sextán er ég flutti sveitungum mínum um jafh langt árabil. Þorrablót í Þykkvabæ. Lag: Lína langsokkur Viðlag: Þorrablótið þetta í Þykkvabænum fáum gist. Við neytum nægra rétta og njótum þeirra af lyst. A þorrablótið þjóta menn - þess er gott að njóta. Mörg sést máluð Tóta og mjög vel klæddur sveinn. Og karlar syngja afkæti, sér kunna ekki læti. Nóg er nú um œti og nokkuð kjarngott öl. I sal er víða setið við sumbl - og mikið étið. Hákarl, hangiketið er hnossgæti - sem fyrr. Nú er Bakkus karl í blóði; nú er bezt að syngja af móði, hægt með hýrufljóði að halda út á gólf. Við syngjum hérna saman; það er svakalega gaman. Ofan, aftan, framan við erum glöð og hress. Nú er hiti í hraustum rekkum uppi' í háum andans brekkum. Johnnie Walker drekkum, þó aó dýr sé mjöðurinn. Heima er bezt 79

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.