Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Síða 38

Heima er bezt - 01.02.2009, Síða 38
Ef til vill gat þó spjall hans við gesti og gangandi tafið eitthvað fyrir honum við bústörfm, en sérstaklega fannst mér mikið til þess koma hvað hann var mikill sláttumaður. Ævinlega flugbeit ljárinn hans, enda fannst mér afköst hans, þegar kom að engjaslætti, með ólíkindum. Ég hafði lært ljóðið Sláttuvísa eftir Jónas Hallgrímsson utanað, veturinn áður í bamaskólanum, og stundum fannst mér eins og Jónas hefði ort ljóðið um Böðvar: Fellur vel á velli verkið karli sterkum syngur enn á engi eggjuð spík og rýkur grasið grœnt á mosa, grundin þýtur undir, blómin bíða dóminn, bítur Ijár í skára. Glymur Ijárinn, gaman! Grundin þýtur undir, o.s.frv. Það var mikið heyjað á útengi þetta sumar. Úthaginn var vel sprottinn. Gömlu mennimir sögðust ekki muna eftir öðmm eins grasvexti og nú væri í mýrinni sunnan túngirðingar. Það var mikil seigla í þeim gömlu og samheldni mikil meðal fólksins við heyskapinn, enda var staðið sameiginlega að honum þó búin væm tvö. Mér fannst gaman að rifja flekki með þeim gamla Jóni og Eggerti og hlýða á kjammikið tal þeirra og stundum góðlátlegt þras. Að jafnaði var gott þeirra í millum. Man ég þó að eitt sinn varð þeim sundurorða, en ég vissi ekki grannt hvert tilefnið var. Gamli Jón reiddist og henti ífá sér hrífunni og brotnaði skaffið, gekk svo úr flekknum og settist flötum beinum bak við hlöðuvegginn sinn. Að stundu liðinni sótti hann brotnu hrífuna, kom svo aftur í flekkinn, gekk til mín, hélt á brotnu hrífunni og sagði: „Hlauptu nú eins og píla með þetta benvíti og náðu í hrífúna þá ama sem stendur upp við skemmuvegginn. Ég held það sé meiri töggur í henni en í þessum andskota sem þú skalt skilja eftir á sama stað,“ og rétti mér brotnu hrífúna. Ég lét ekki segja mér það tvisvar - og málið leystist í snatri. Hólmamir í Miðfjarðará, skammt sunnan áróssins, em sléttur og grösugur Jón Eiríksson bóndi á Svertings- stöðum. úthagi. Einn þeirra kallast Óshólmi og er í landareign Stóra-Óss. Þegar lokið var heyskap í mýrinni fóra Böðvar og Guðmundur niður í Óshólma og hófu sláttinn. Þeim sóttist vel og létu sér fátt um finnast þótt þurrt væri í rótina og oft þyrfti að brýna. Guðmundur var útsjónarsamur og laginn við allt sem einhvem keim bar af tækni eða var teknískt. Hann var kominn á ffemsta hlunn með að flytja sláttuvélina niður í Hólmann, en ekki þóttu tiltök til þess eins og í pottinn var búið. Guðmundur, sem gekk alltaf undir nafninu Mundi, hafði slegið allt túnið með vélinni og hafði góða stjóm á hestunum og gætti þess að ofgera þeim ekki, en hann var mjög stríðinn og hafði mikið yndi af útúrsnúningum og fannst mér það beinast sérstaklega að mér. í þessum efnum þótti mér hann bæði naskur og natinn og fannst mér stundum nóg um. En núna, áratugum seinna, kann ég honum þakkir fyrir því að þetta örvaði mig til umhugsunar og varkámi í orðum Heyskapur er meira en að slá. Þegar gras er komið í ljá, eins og sagt er, þá var venjan að raka ljána í flekki og það var eins með það og annað á þessum tíma að verkaskiptingin milli kynjanna var skýr: konur rökuðu, karlar slógu, en konur, karlar og krakkar rifjuðu flekkina eftir aðstæðum hverju sinni, en það var Kona Jóns Eiríkssonar, Hólmfríður Bjarnadóttir húsmóðir, bónda og sjómanns í Túni í Flóa, Eiríkssonar. gert til að heyið yrði jafnþurrt og til að koma í veg fyrir blotlýjur við rót grassins í dældum á túni og engi. Þegar grasið var orðið þurrt að nokkra var það tekið saman í föng, ef menn óttuðust veðurbreytingu, en væri það orðið nægilega þurrt eða mátulegt var því hlaðið upp í galta og látið bíða þar til tækifæri gafst til að binda það í sátur sem svo vora fluttar til bæjar á klökkum og hlaðið upp í fúlgur.. Þegar kom að því að flytja heyið úr hólmanum, heyrði ég að kaupakonumar pískra um að ekki væri vit í að láta strákinn fara einan í milli með heybandslestina; höfðu þær vissulega á réttu að standa. Þær kaupakonur vora systur tvær ffá Bergsstöðum á Vatnsnesi, Fanney og Ingibjörg, hinar viðfelldnustu stúlkur, en stóðu stutt við. Svo liðu dagar og það voru bjartir og sólríkir ágústdagar, og þótti öllum tilbreyting í að stunda heyskap niðri í Hólma. Og þar var ekki slegið slöku við því að mönnum stóð ógn af höfúðdeginum og töldu nánast víst, effir svo sólríkt og gott sumar, að þá myndi hann leggjast í óþurrk og rigningar. Öllum heyskap yrði því að vera lokið áður en sá örlagaríki dagur rynni upp. Og nú var hugað að reiðingum, klifberam, gjörðum og öðra því sem þarfnaðist á heybandslest. Hestar, vanir 86 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.