Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Page 41

Heima er bezt - 01.02.2009, Page 41
við þá og bauð þeim til sín. Höfðu þeir vetursetu í góðu yfirlæti hjá honum á Hvanneyri. Um vorið héldu þeir upp eftir Norðurárdal og yfír Holtavörðuheiði. Þaðan komu þeir niður í fjörð einn, þar sem tveir hrútar urðu á vegi þeirra og nefndu þeir ijörðinn því Hrútaíjörð. í því gerði á þá dimma þoku. Er henni létti komu þeir á eyri eina og fundu þar planka eða borð nýrekið. Ingimundur skírði eyrina Borðeyri svo sem hún hefur síðan heitið. En áfram var haldið norður um héruð þar til þeir komu í dal einn víði vaxinn. Þann dal nefndi Ingimundur Víðidal og með því að komið var haust ákvað hann að ekki skyldi lengra haldið að sinni. Gerðu þeir sér skála á Ingimundarholti og höfðu þar vetursetu. Trúlega hafa verið talsverð snjóalög hjá þeim í Víðidal, en þegar leið á vetur sáu Ingimundur og menn hans snjólaus fjöll í landsuðri og hófu þá nýja flutninga. Brátt komu leiðangursmenn í Vatnsdalshóla og hugðust fara inn eftir dalnum. En sunnan í hólunum varð að nema staðar, því að þar ól Vigdís, kona Ingimundar, stúlkubam sem gefið var nafnið Þórdís. Heitir þar síðan Þórdísarholt sem hún fæddist. A seinni árum var reist þarna minnismerki um stúlkuna og ræktaður skógur sem kallast Þórdísarlundur í virðingu við þennan fyrsta innfædda Húnvetning að talið er. En þegar inn í dalinn kom þekkti Ingimundur alla staðhætti sem Finnarnir fjölkunnugu höfðu áður lýst fyrir honum. Hann nam síðan allan dalinn og reisti sér bæ á Hofí. Þegar hann gróf fyrir öndvegissúlunum í skála sínum á Hofí kom hann niður á silfurstyttu Freys sem forðum hafði horfið úr pússi hans og Finnarnir fundið, en ekki getað náð. Ingimundur var höfðingi yfir Vatnsdal sem brátt varð fjölbyggður. Hann bjó stórbúi á Hofí. Eitt sinn hurfu frá honum tíu svín. Þau fundust á öðru hausti eftir í Svínadal og vom þá orðin hundrað talsins, svo að vel gekk fram búsmali hans. Þá gerðist það einu sinni að Ingimundur fann bimu með tvo húna á ísilögðu stöðuvatni norður af Vatnsdal. Hann nefndi vatnið óðar Húnavatn og dregur sýslan þar af nafn sitt. Ingimundur tamdi húnana og tók þá með sér til Noregs, þar sem hann færði þá Haraldi hárfagra að gjöf. Vöktu dýr þessi mikla hrifningu, því að þá höfðu menn í Noregi ekki fyrr séð hvítabimi. Konungur gaf Ingimundi skip með viðarfarmi og hélt hann því heim á tveimur skipum. Sigldi hann þá fyrstur manna fyrir Skaga og inn Húnaflóa og upp í Húnavatn. Konungsskipið sem hét Stígandi var sett upp í Stígandahróf hjá Þingeyrum. Börn Ingimundar og Vigdísar vom sex að tölu. Dætumar tvær vom Jómnn og Þórdís og synimir fjórir hétu Þorsteinn, Jökull, Þórir og Högni. Einnig átti Ingimundur soninn Smið með ambátt sinni. Synimir á Hofi uxu upp og tóku brátt að láta að sér kveða og því meir sem faðir þeirra varð eldri. Svo henti það á efri árum Ingimundar að hann gerði það fyrir orð vinar síns Sæmundar suðureyska að taka við gallagripnum Hrolleifi Amaldssyni og móður hans göldróttri. Fékk hann þeim bústað á Ási, vestan Vatnsdalsár. Brátt hófust þá deilur um veiðiskap í ánni milli Hrolleifs og sona Ingimundar og lauk því svo að þeir börðust með grjótkasti og bogaskotum yfir ána. Ingimundi var sagt frá bardaganum og vildi stilla til friðar, þó gamall væri og nær blindur. Lét hann svein sinn teyma undir sér niður að ánni. Þegar synir hans sáu hann koma hurfu þeir frá, en Ingimundur reið að ánni og mælti: „Gakk úr ánni, Hrolleifur, og hygg að hvað hæfir.“ En þegar Hrolleifur sá þennan velgerðamann sinn handan árinnar skaut hann að honum spjóti sem kom á hann miðjan og gekk í gegn. Ingimundur sneri þá frá og bað sveininn að fylgja sér heim. Er þangað kom hjálpaði sveinninn honum af baki. Ingimundur braut spjótið af skafti og gekk inn með hjálp sveinsins og settist í öndvegi sitt. Síðan bað hann sveininn að fara til árinnar og segja Hrolleifí að hafa sig á braut fyrir næsta morgun, því að synir rnínir munu til hans snúa um föðurhefndir, „en mér sæmir að skjóta skjóli yfir þann er ég hef áður á hendur tekist, meðan ég má unt mæla, hversu sem síðar fer.“ Þegar svo synir hans komu í skálann um kvöldið, sat göfugmennið faðir þeirra, dauður í öndveginu. Ingimundur gamli féll frá um árið 930 og svo sem nærri má geta hlaut Hrolleifúr makleg málagjöld af hálfu sona hans, en frá þeim atburðum og mörgu öðru segir í þeirri ágætu bók, Vatnsdæla sögu. Heima er bezt 89

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.