Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 46

Heima er bezt - 01.02.2009, Blaðsíða 46
„Hvom þeirra ætlar Gústa nú að drepa?“ sagði Ómar og þau fóm niður í stigann. Hurðin fram í forstoíuna hentist upp og Keli hrökklaðist fram með fráhneppta skyrtuna og í annarri buxnaskálminni. A hæla honum kom Gústa og gargaði að hann skyldi hypja sig hið snarasta. „Á kannski að reyna að gera mig ólétta?“ æpti hún og henti jakka og skóm á eftir honum. Skellti svo í lás svo glumdi í öllu. „Sér er nú hver kvenmaðurinn," stundi Keli. „Það er ekki fyrirhafharlaust að ná í hana en það tekst sannið þið til.“ Svo klæddi hann sig í fötin og bauð góða nótt eins og ekkert heföi í skorist. Andrea og Ómar litu hvort á annað og skelltu svo upp úr. „Einn koss enn og svo er ég farinn,“ sagði Ómar og lét ekki sitja við orðin tóm. 22. kafli Dagamir til jóla liðu hratt. Það var mikið verslað í Bjömsvali. Heilu fjölskyldurnar komu innan úr dal og úr nágrannaþorpum og sveitabýlum. Fólk dáðist að vömúrvalinu og það var fljótt að fféttast að nú þyrfti ekki að fara til Reykjavíkur til að fá almennileg föt og gjafavaran hún var nú ekkert smá flott. Það var munur eða í kaupfélaginu á Sandeyri, þar vom öll föt í sömu stærð sem engum passaði, sögðu konumar. Þessi góða breyting í Bjömssvali var víst aðallega að þakka þessari „nýju“ í versluninni, var sagt. Samt vom nú nokkrir sem höföu beinlínis samviskubit yfir að svíkja kaupfélagið um jólaverslunina. En hvað átti að gera? Til dæmis voru kvenundirfötin og náttklæðnaðurinn í öllum stærðum og gerðum alveg draumur og mörg konan hugsaði gott til glóðarinnar þegar hún færi að hátta á aðfangadagskvöld og íklæddist þessu dýrlega hýjalíni úr silki og blúndum. Það yrði aldeilis upplit á þeirra eina þegar þeir sæju hvaða dýrindi konumar þeirra höföu valið sér í jólagjöf frá þeim þegar þær svifu upp í rúmin með elegans. Hver vissi nema það gæti farið að skíðloga í hálfkulnuðum hjónabandsglóðunum hjá sumum. En þá mundu þær eftir því að það var ekki beinlínis rómantískt, þó þær væm sjálfar vaföar í silki frá Fionu Fonze ef þeirra heittelskaði stæði fyrir framan þær á maigþæföu föðurlandinu. Bjömsval haföi svar við því. Hin rómuðu nærföt og náttföt fyrir herra ffá Junior Jones, í öllum stærðum og litum og sloppar í stíl bryddaðir satíni. Konumar störðu á dásemdimar og töldu í huganum í buddunni. Þau vom að vísu ansi dýr og meira en það en það voru nú einu sinni jól. Þær urðu bara að spara eftir hátíðamar. Andrea var farin að hafa augun hjá sér þegar Gústa var að versla fyrir sjálfa sig. Það var ekkert smá magn sem hún tróð í plastpokana. Aðallega sýndist henni það vera fatnaður, snyrtivömr og ilmvötn. Stundum rúmfatnaður, en minnst af matvöm, þó alltaf eitthvað dýrt. Framhald í nœsta blaði. 94 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.