Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Blaðsíða 9
- 9 -
eígum eftir að segja um æskuna, þegar
víð erum orðin gömul.
Ellin, með örfáum undantekningum,
hefur ekki skilið og mun ekki skilja
æskuna. Tökum t. d. nútímaunglinginn
og ungling fyrir 50 árum. Það er vís -
indalega sannað, að við þroskumst tveim
árum fyrr en jafnaldrar okkar þá.
Þetta eitt segir sína sögu. Uppeldið
einkenndist þá af hörku og skilningsleysi.
Afleiðingarnar augljósar : áður voru
börnin feimin og uppburðarlaus, nú djarf-
leg og vita sínu viti.
Að lokum til æskunnar ;
Við höfum þegið goðar gjafir og
mikil verkefni í arf frá fyrri kynsloð,
og hún hefur ávaxtað pund sitt vel. En
"vandi fylgir vegsemd hverri", og er
svo einnig með þetta. Við segjumst eiga
gáfur og víst er það ; við segjumst vera
vitur og það er einnig rétt. En til hvers
eru vit og gáfur, ef við notum þær ekki ?
Því ryðjum við öllum bábiljum og hleypi-
dómum ellinnar úr vegi, göngum hnar-
reíst, og látum skoðanir okkar otvírætt
x Ijos.
DANSÆFING FYRIR 1. BEKK
Fyrsta dansæfing fyrir I. bekk var
haldin 6. nóvember kl. hálf sex.
Flestir voru óánægðir með tímann.
Við vildum hafa það frá 8-12 eins og
hínir bekkirnir, því að við erum engin
smábörn !
En það var samt gaman.
Skemmtunin byrjaði með því, að júlíus
Sigurðsson, 3.-B, lék á harmónikku, svo
las Andrés Indriðason upp úr Blysinu
síðan í fyrra ; þvínæst var kappát. Voru
tveir keppendur og áttu þeir að borða
gulrætur. TÓkst það ágætlega. Svo
hófst dansinn; fyrst dönsuðu fáir, en svo
komu þeir með "hringdans", og þá fóru
allir af stað. Reyndar voru þarna roskp-
ar junkur úr 3.bekk, sem þóttust gera
mikið góðverk með að teyma okkur fram
á gólfið og láta okkur dansa við ein-
hverja strákbjána, sem við vildum alls
ekki dansa við. Þser hafa víst haldið,
að við værum ekki sjálfbjarga, en þar
skjáitlast. þeim. Eitt "par" úr 3. bekk
var svo hugsunarsamt að koma og kenna
okkur að "vanga". Kennslan gekk alveg
stórfenglega; allir krakkarnir eru orðn-
ir meistarar í þessari grein.
Þegar leið að lokum, fór fram spurninga-
dans. Hann var mjög spennandi. Sigur-
vegararnir hlutu að launum Pepsi Cola og
"Prins Póló" ! ! Síðan var dansað til kl.
níu, en þá sleit Ólafur Gústafsson, form.
skemmtinefndarinnar, dansæfingunni.
Allir fyrstubekkingar hlakka til næstu
dansæfingar.
Ein úr I. bekk.
VERÐLAUNASAMKEPPNIN
Nemendur skólans munu hafa rekið
augun í plagg eitt, sem lengi hékk í aug-
lýsingakassa skólans. Á þetta plagg voru
rituð hvatningarorð til nemenda. Einnig
var sá háttur hafður á, að efna til verð-
launasamkeppni um beztu greinina, sem
bærist blaðinu, en frestur rann út I. des-
ember. Var settur upp kassi í hægra sal-
arhornið, og gátu nemendur auðveldlega
stungið þar hinu andlega fóðri sínu.
Rann nú upp hin hátíðlega stund, að
kassinn skyldi opnaður. Hafði hennar ver-
ið beðið með mikilli eftirvæntingu.
Bjuggumst vér við, að út úr kassanum
myndi andlega fóðrið svífa í hrönnum.
En, allir okkar draumar hrundu til grunna,
er út úr kassanum valt heil dobía af eins-
eyringum, tveggjeyringum, fimmeyring-
um, tíeyringum og tuttugu og fimmeyring-
um; item tveir krónupeningar og einn ný-
sleginn túskildingur. Af þessu má sjá, að
nemendur hafa algjörlega misskilið hið
göfuga hlutverk kassans. Eigi var það
ætlun vor, að beiðast ölmusu, því að
nemendafélagið er ekki svo illa á vegi
statt. Auðvitað þakkar féhirðir nemenda-
félagsins hinum góðgerðasömu nemendum,
en til að fyrirbyggja allan misskilning
næst, þegar kassinn verður settur upp,
nemendum til augnayndis og hæginda,
skal á það bent, að kassinn hefur því
hlutverki að gegna að innbyrða efni og
greinar ( ekki barrgreinar ) í vort ágæta
skólablað.
H V Ö T
Hvöt, málgagn sambands bindindis-
félaga í Skólum, er nýkomið út. Hefur
Frh. á bls. 23.