Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Page 10
10
LÖG FYRIR NEMENDAFÉLAG GAGNFRÆÐASKÓLA AUSTURBÆJAR
gr.
Felagið heitir NemencLafelag Gagnfræða-
skola Austarbæjar.
gr-
Tilgangur félagsins er að efla kynni
nemenda og auka félagsþroska þeirra;
sjá þeim fyrir hollum og heilbrigðum
skemmtunum og gæta hagsmuna þeirra
og heiðurs skólans.
3- gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með
því að stuðla að hollu tómstundastarfi á
þann hátt m. a. ;
a) að gefa út skólablað,
b) gangast fyrir málfundum,
e) gangast fyrir dansæfingum og
hvers konar skemmtunum, t. d.
kvikmyndasýningum, hljómplötu-
kynningum o. s.frv.
d) efla íþróttalíf nemenda.
4. gr.
Allir nemendur skólans eru meðlimir
félagsins, enda greiði þeir ársgjald, kr.
20, 00, fyrir 1. desember ár hvert.
Innifalið í þessari upphæð er ársgjald að
málgagni nemendafélagsins, "Blysinu", og
er gert ráð fyrir, að tvö til þrjú blöð
komi út hvert skólaár. Yerði hagnaður
af útgáfunni mun ágóði renna í ferðasjóð.
Þegar nemendur greiða ársgjaldið fá
þeir kvittun, sem þeim ber að sýna við
afhendingu blaðsins. Einnig ber að sýna
kvittunina, þegar dansæfingar eru haldn-
ar; svo og á árshátíð nemendafélagsins.
Kvittun þessi skal vera órækur vottur
þess, að nemandi sé meðlimur í Nem-
endafélagi Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
5- gr.
Hverjum félagsmanni er skylt að sinna
þeim störfum, sem félagið felur honum,
enda skal þess gaett, að þau trufli sem
minnst önnur störf hans.
6. gr.
Felagsstjórn skal skipuð 9 nemendum,
3 úr 4. bekk, 2 úr 3.bekk, 2 úr 2„bekk
og 2 úr 1. bekk.
7. gr.
Hver bekkjardeild kýs sér einn aðal-
fulltrúa og annan til vara. Fulltrúaráð
félagsins er skipað öllum bekkjarfulltrú-
um skólans.
Varafulltrúi hefur aðeins atkvæðisrétt í
forföllum aðalfulltrúans.
8. gr.
Um störf helztu embættismanna ;
a) Formaður er æðsti maður stjórnar-
innar. Hann skal að jafnaði vera úr
4. bekk. Hann kveður til funda og
stýrir þeim. Hann er fulltrúi félags-
ins út á við. Formaður skal að
jafnaði ekki vera nefndarformaður,
heldur skal hlutverk hans vera það,
að sjá um, að þau störf séu vel og
samvizkusamlega af hendi leyst.
Formaður getur skipað nemendur í
nefndir, ef honum þykir ástæða til.
Allar nefndirnar starfa sjálfstætt
undir yfirstjórn hans.
b) Gjaldkeri skal að jafnaði vera úr 4.
bekk. Hann hefur með höndum fjár-
mál skólafélagsins, t. d. við dansæf-
ingar og sölu skólablaðsins. Hann
skal sjá um, að félagsgjaldið hafi
verið innheimt fyrir 1. desember.
Hann færir nákvæma skýrslu með
fylgiskjölum um tekjur og gjöld
skemmtifunda og afhendir skólastjora
jafnótt til staðfestingar.
c) Ritari skal að jafnaði vera úr 4.
bekk. Hann færir gerðabók Nem-
endafélagsins. Þar skal greint frá
fundum, skemmtunum og helztu við-
burðum félagsstarfseminnar.
d) Stjórninni er heimilt að skipta frekar
með sér störfum.