Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Page 23
23 -
HLJÓMSKÍFUKYNNINGIN
Á öndverðum vetri var upp tekin á-
nægjuleg nýbreytni í skólalífinu. Glym-
skratti sá, er nemendafélagið á, var tek-
inn til bruks og leiknar hljomskífur í tíma-
hléum. Umræddur glymskratti, sem er
eins og líkkista í laginu, er hið mesta ger-
semi og mun varla eiga sinn líka her a
landi. Var hann gefinn skólanum af nem-
endafél. þess 1952-1953. Framan af var
hann notaður á dansæfingum og naut mik-
illa vinsælda. En þegar tímar liðu fram
hvarf glymskrattinn bokstaflega á bólakaf
í hyldýpi gleymskunnar. Má þetta furðu-
legt heita, þvílíkur kjörgripur sem hann
annars er. En sem betur fer hefur hann
ná verið dreginn upp úr djúpi gleymskunn-
ar á nýjan leik. Hafa í tímahléum verið
leiknar hljómskífur, vitanlega misjafnar að
gæðum, eins og gerist og gengur, þegar
áhangendur klassiskrar og óklassiskrar
tónlistar vilja í senn fá sínu framgegnt.
Þá gerðist það einn vondan veðurdag ( úti
var rok og rignind), að til eyrna bárust
drynjandi strigabas sadrunur, og var oss
tjáð, að þær kæmu úr raddböndum þess
nágaulara, sem nefndur hefur verið "Kon-
ungur rokksins", semsé Elvis Presley.
Einn ágætis kennari, sem var mér nær-
staddur, greip dauðahaldi í stigahandriðið
og stundi örvæntingarfyllislega : "Er verið
að gera tilraun til að misþyrma mér, eða
hvað ? " FÓr hann síðan miður fallegum
orðum um tónlistina og sönginn. Lét hann
þau orð falla, að þvílík og önnur eins ná-
hljóð gætu ekki komið frá venjulegum
mannlegum raddböndum ; þau væru sótt
eitthvað miklu lengra niður, já - allt nið-
ur í endaþarma. Neyddist ég til að sam-
sinna þessu, því að svo ferlegar voru
drunurnar, að líkast var því, sem væri
ég staddur á fílaveiðum í svörtustu Afríku.
En, - hver áhrif hafði nú þetta gaul ?
Hvorki meiri né minni en þau, að sjoppan
á Leifsgötunni tæmdist á augabragði.
Þar með rættist sá draumur allra hinna
fáu bindindispostula skólans, að sjá hina
"illræmdu" sjoppu auða, því sjoppuunn-
endur voru yfir sig heillaðir af þessari
tegund tónlistar, sem nefnd hefur verið
"Skak og skjálfti, " að sjoppan varð að
sitja á hakanum. Þetta gefur okkur til-
efni til vissra hugleiðinga. Er það ekki
einmitt óskadraumur ráðamanna skólans,
að sjá sjoppuna á Leifsgötunni veslast
upp og geispa golunni? Það er eins ör-
uggt mál, eins og að einu sinni einn eru
einn (en ekki tveir), að verði hún (sjopp-
an) af jafn nauðsynlegri fæðutegund, sem
nemendur þessa skóla eru henni, þá hjar-
ir hún það ekki af. Af þessum sökum er
það ráðlegast og sýnir mesta spelci, að
gera meira af því að leika hljómskífur í
tímahléum; hvort heldur það er "Skak &
skjálfti", eður önnur tegund tónlistar.
Til þess var glymskrattinn skapaður og
gefinn af nemendafélaginu, að leikið yrði
á hann.
Þess vegna er það ósk nemenda, að
sú ákvörðun ráðamanna skólans, að leika
aðeins hljómskífur, þegar vont er veður,
verði lögð á hilluna, en í stað þess verði
leiknar skífur eins oft og auðið er í vetur,,
FÉLAGSMÁL
HVÖT, frh. af bls. 9.
blaðið nú verið vakið til lífsins á nýjan
leik, en það hefur legið í d ^ala undan-
farin ár. Efni blaðsins er að þessu
sinni bæði fjölbreytt og skemmtilegt og
laust við hinn hvimleiða bindindisáróður,
sem löngum hefur sett svip sinn á blað-
ið. Má þar finna m. a. ferðaþætti, Ijós-
myndaþætti o.m.fl., eftir skólafólk víðs
vegar að af landinu. Nokkrir nemendur
úr Gagnfræðaskóla Austurbæjar skrifa í
blaðið.
Blaðið hefur verið til sölu hér í
skólanum að undanförnu, og skal mönn-
um bent á, að hér er einkar skemmti-
legt lesefni á ferðum. Verð blaðsins
er sjö krónur.
Kennarinn: Hvernig stendur á því, að þú
kemur alltaf of seint á morgnana nú
orðið ?
Morgunsvæfur nemandi : Það er vegna
þess, að spjald hefur verið sett upp
á götunni, þar sem stendur; " Skóli, -
hægið á ferðinni og farið varlega".