Bænavikan - 17.11.1956, Blaðsíða 6

Bænavikan - 17.11.1956, Blaðsíða 6
6 — Lestur fyrir sunnudaginn 18. nóvember 1956. Tákn Iokatáknanna. EFTIR J. A. BUCKWALTER „Við stöndum á þröskuldi mikilla og alvar- legra viðburða. Spádómarnir eru óðum að ræt- ast. Koma Drottins er fyrir höndum. Brátt mun það tímabil renna upp, sem hefur úr- slitaþýðingu fyrir allar núlifandi verur. Deilur liðna tímans munu aftur koma fram í dags- ljósið og nýjar deilur myndast. Menn hefur jafnvel ekki dreymt um allt það, sem á eftir að eiga sér stað.“ Test. for the Church 5b 753. Það er uppörvandi að vita að á slíkum tímum „situr Drottinn drottnanna á milli Kerúbanna; og að mitt í ógn og upplausn þjóðanna gætir hann barna sinna.“ Sama bók 754. — Ljós spádómanna, sem varpaði birtu á viðburði mannkynssögunnar í margar aldir, beinist nú að okkar tíma. í hinum þekktu kapítulum um ,,tákn“ — Matt. 24 og Lúk. 21 — sameinaði Jesú táknin um fall Jerúsalem táknum endalokanna. Eitt þessara tákna var sérstaklega ætlað hans eigin þjóð, og þegar það kæmi fram áttu þeir að vita að „lausnin væri í nánd“ og að tími undankomu þeirra væri kominn. Lúkas lýsir þessu lokatákni um flótta hinna kristnu: „En er þér sjáið Jerúsalem umkringda af herfylkingum, þá vitið, að eyðing hennar er í nánd, þá flýi þeir, sem eru í Júdeu, til f jall- anna, og þeir, sem eru inni í borginni, flytji sig burt; og þeir, sem eru á ekrum úti, fari ekki inn í hana. Því að þetta eru refsidagar, til þess að rætist allt það, sem ritað er.“ Lúk. 21, 20—22. Táknið sjálft virðist ótrúlegt, því að hvernig áttu hinir kristnu að komast undan eftir að her Rómverja hafði umkringt borgina? Sagan segir okkur hvernig þetta gerðist. Þegar um- sátin um Jerúsalem undir stjórn Cestíusar gerðist langæ, lagði lið manna innan borgar- innar áform um að svíkja íbúana og opna hliðin innanfrá. — Og samkvæmt því sem Jósefus skýrir frá, hefði Cestíus „áreiðanlega unnið borgina, ef hann hefði aðeins haldið umsátinni dálítið lengur áfram,“ en „þar sem hann sá enga von til þess að slíkt gæti orðið . . . . fór hann í burtu algjörlega að ástæðu- lausu." Wars of the Jews, 2b 19. kap. bls. 4—7. Að ástæðulausu? — Guð hafði ástæðu, og hinir kristnu, sem sáu ljós hins uppfyllta spá- dóms, gerðu sér grein fyrir ástæðunni, og þeir vissu einnig, að það var samkvæmt ráðsálykt- un Guðs að þeir flýðu. Hafði Guð ekki gripið í taumana á yfirnáttúrlegan hátt? Táknið um að þeir ættu að flýja, sem í fyrstu hafði hindr- að flótta þeirra, veitti nú einmitt hagkvæmt tækifæri til þess. Við getum næstum því í- myndað okkur hvað hinir kristnu hafa hrópað: „Þjóðvegurinn til fjalla er opinn! Tákn Drott- ins hefur uppfyllzt! Flýjum til fjalla!“ Bænum hinna kristnu hafði verið svarað. Leyfum vantrúnni að hæðast, en látið trúna lofsyngja. Bænin á meiri þátt í gangi heims- málanna en vantrúarmenn vilja viðurkenna. Hin óttalega eyðilegging Jerúsalem, þegar Títus gerði aftur umsát um borgina með róm- verska hernum árið 70 e. Kr.., var aðeins sýnishorn af því, hvað fyrir heiminum, sem hefur hafnað miskunn Guðs og fótum troðið hans heilaga lögmál, á að liggja. Sjá Gr. Con- trov. 36. 37. Aftur munu hinir heilögu Guðs sjást „hverfa burt úr borgum og þorpum og fara saman í flokkum til hinna afskekktustu staða.“ Evan- gelism 282. — Hvaða tákn mun benda okkur á að tími flótta okkar sé kominn? Lokatákn Guðs handa hinum síðasta söfnuði. „Þegar mótmælendatrúin réttir út hönd sína yfir djúpið til þess að taka í hönd hins róm- verska máttar; þegar hún hefur tekið saman

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.