Bænavikan - 17.11.1956, Blaðsíða 7

Bænavikan - 17.11.1956, Blaðsíða 7
— 7 — höndura við andatrúna, og þegar land okkar mun útskúía öllum þeim meginreglum stofn- skrár sinnar, sem fjalla um mótmælendatrú og lýðræðislegt stjórnskipulag og gerir fyrir- búnað um að útbreiða páfatrú og blekkingu, þá getum við vitað, að sá tími sé kominn, þeg- ar Satan kemur ár sinni vel fyrir borð, og að endirinn sé nærri. „Á sama hátt og það, að hið rómverska heriið færðist nær, var lærisveinunum tákn um yfirvofandi eyðileggingu Jerúsalemborgar, verður þetta frá fall tákn um það, að umburð- arlyndi Guðs sé lokið . . . . og að náðarengill- inn sé um það bil að fljúga burt fyrir fullt og allt.“ Test. for the Church 5b 451. Lokatáknið um að flóttatíminn sé kominn, munu verða kröfur kirkjulegs valds, af hálfu Ameríku, sem eitt sinn varði mótmælendatrú, því að „eins og umsát Rómverja um Jerúsalem var merki um það, að hinir kristnu skyldu flýja, svo mun lögskipun hins katólska hvíld- ardags, af hálfu þjóðar okkar verða okkur til viðvörunar. Þá er kominn tími til að fara úr stórborgunum, áður en farið er úr smærri borgum, til afskktra staða í fjöllunum.“ Test. for the Church 5b 464—465. Hinn athyglisverðasti spádómur um það, að kristnar kirkjudeildir muni „rétta hendur sín- ar út yfir djúpið“, til þess að sameinast öðrum trúarbrögðum, er næstum því uppfylltur. Mót- mælendur hafa tekið sér fram um að rétta fyrstir fram höndina til sátta og samkomulags, og katólskir leiðtogar eru sama sinnis. Erkibiskupinn Groeber frá Freiburg sagði sömu athyglisverðu orðin og finnast í spá- dómi Str. White, er hann talaði um ný og almenn sjónarmið hinna kristnu nú á dögum. Hann sagði: „Kirkjudeildirnar tvær hafa í auðmýkt lagt kross Krists yfir djúpið, sem skilur þær að vegna mismunandi trúarskoðana. Þannig hefur heilög brú verið byggð, sem ger- ir okkur öllum mögulegt, án fyrirhafnar, að rétta hver öðrum bróourhönd. Enginn veit hve- nær hinn blessaði dagur sameiningarinnar rennur upp.“ (Quoted by A. Keller í „Christian Europa Today“ 260. Adolph Keller skýrir þannig frá því, hvernig bilið hafi þrengzt milli mótmælenda og ka- tólskra á undanförnum árum: „Samanburðar- rannsókn á boðskap mótmælenda og nýjasta umburðarbréfi páfa, sem ég vinn nú að, sýnir furðulega samsvörun.“ Þetta tákn lokatákna jarðarinnar er mjög athyglisvert. Við skulum líta snöggvast á hvaða þýðingarmiklu hlut- verki þessar þrjár hreyfingar muni gegna að því er snertir afnám mannréttinda í heimin- um. Myndun þríemingarinnar. Með þessari hreyfingu, sem nú er að mynd- ast í Bandaríkjunum, er verið að reyna að fá ríkið til að styrkja og halda kirkjunni uppi ásamt stofnunum hennar, og feta þar mótmæl- endur í fótspor katólskra. Þeir fara jafnvel feti lengra; þeir opna dyrnar fyrir páfaríkinu og koma því til valda í mótmælendalandinu Ameríku, þannig verða mótmælendur sjálfir til þess að hefja katólska valdið til þeirrar vegsemdar og áhrifa hér í álfu, sem það hefur glatað í Evrópu. . . . Það er andi Páfavaldsins .... sem er að gagntaka mótmælendakirkjurn- ar og koma þeim til að hefja sunnudaginn til sömu dýrðar og páfakirkjan gjörði á undan þeim.“ Gr. Controversy 573. Þegar leiðandi kirkjur í Bandaríkjunum sameinast um slíkar kennisetningar; hafa áhrif á ríkið til að löggilda skipanir þeirra og halda stofnunum þeirra uppi, mun Ameríka, sem hefur verið mótmælendatrúar, verða að rómversku klerkaveldi, og áfellisdómur fyrir brot á lögum, sem ríkið hefur staðfest — mun óhjákvæmilega bitna á þeim, sem tilheyra sér- trúarflokkum.“ Gr. Controversey 445. Innan katólsku kirkjunnar eru margir, sem eru sönn börn Guðs, en rómversk-katólska trúin sem fyrirkomulag keppir að því að end- urskapa sér yfirráð á sviði kirkju- og stjórn- mála. „Rómverska kirkjan hefur víðtæk áform og starfshætti. Hún notar öll hugsanleg ráð til þess að auka áhrif sín og efla vald sitt í því skyni að undirbúa sig fyrir hið ægilega og mikla stríð, sem ræður úrslitum um það, hvort hún geti endurreist heimsyfirráð sín, hafið ofsóknir á ný og eyðilagt allt það, sem mót- mælendur hafa komið til leiðar. Katólskan vinnur sigra á öllum sviðum.“ Gr. Contro- versy 565. 566. Stjórnmálaleg áhrif Vatikansins, hin gífur- lega sameining hins vel skipulagða katólska

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.