Bænavikan - 17.11.1956, Blaðsíða 15

Bænavikan - 17.11.1956, Blaðsíða 15
— 15 — ur. Að fáum vikum liðnum hafði hann unnið 16 sálir fyrir Krist. Þetta var fyrsti ávöxtur- inn af Aðventboðskapnum í Kasmír. Við trú- um því, að þetta sé aðeins byrjunin á sigurför Boðskaparins í þessu landi, sem svo lengi hef- ur beðið okkar.“ Þannig hraða boðberar Guðs sér með fagn- aðarboðskapinn til alls mannkyns. Oft verða hindranir á vegi þeirra, sem eru óyfirstígan- legar á mannlegan mælikvarða. Ef við þyrft- um að reiða okkur á eigin mátt til þess að geta framkvæmt þetta gífurlega verk, mynd- um við algjörlega missa móðinn. En „Guð bið- ur okkur ekki um að vinna verkið, sem bíður okkar, í eigin mætti Hann mun sjá okkur fyrir guðlegri hjálp, sem mun ráða bót á öllum þeim erfiðleikum, sem við getum ekki sigrazt á. Við ættum að leggja aðaláherzlu á það í þessari Bænaviku, að leita til Guðs í bæn og biðja hann um nýjan styrk, svo að meðvitund- in um mátt hans í hjörtum okkar geri okkur mögulegt að flytja þeim, sem enn hafa ekki hlotið viðvörun, boðskap hjálpræðisins.

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.