Bænavikan - 17.11.1956, Qupperneq 32

Bænavikan - 17.11.1956, Qupperneq 32
— 32 — Lestur fyrir hvíldardaginn 24. nóvember 1956. Dýrðlegur söfnuður. EFTIR R. R. FIGUHR. „Kristur elskaði söfnuðinn og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir hann ... til þess sjálfur að framleiða handa sér dýrðlegan söfnuð.“ Ef. 5, 25—27. Hin undursamlega gjöf himinsins í persónu Krists hefur orðið til þess að sérstakur hópur manna hefur myndazt á jörðunni, sem nefndur er söfnuður Guðs. Þeir menn og konur, er mynda þennan söfnuð, eru útvaldir vottar himinsins í þessum heimi. Hlýðni þeirra við Guð og meginreglur hans auðkenna þá sér- staklega frá öllum öðrum. í hinni guðlegu innblásnu, sögulegu frásögn um fyrsta tíma- bil þessa heims, lesum við, að eftir því sem mönnunum fjölgaði á yfirborði jarðar, hafi þeir gleymt Guði og snúið frá hans vegi og gengið sínar eigin brautir. Þar sem þeir höfðu útilokað Guð úr hugskoti sínu, jókst synd og illska hröðum skrefum og breiddist eins og dökk elfur yfir alla jörðina. „Allar hugrenn- ingar hjarta hans voru ekki annað en illska alla daga.“ 1. Mós. 6, 5. Þannig gerði maður- inn, sem skapaður var í Guðs mynd, skapara sínum smán og olli honum ósegjanlegrar sorg- ar. En mitt í þessu myrkri, og þrátt fyrir alls- ráðandi illsku voru til „synir Guðs“ á jörð- unni. Hollusta við Guð var einkunnarorð þeirra. Þeir stóðust freistinguna til að syndga og lifðu í samræmi við meginreglur Guðs. Á öllum öldum, sem síðan hafa liðið, hafa þeir verið leiðarljós öllum hinum trúuðu, sem á eftir komu. Ljós þeirra skín æ bjartar eftir því sem tíminn líður. Þeir marka veg trú- mennskunnar og skora á okkur að lifa helg- uðu og hugdjörfu lífi á þessum vondu dögum, „ til þess að þér verðið óaðfinnanlegir og ein- íægir, flekklaus Guðs börn meðal rangsnú- innar og gjörspilltrar kynslóðar, sem þér skínið hjá eins og himinljós í heiminum.“ Fil. 2, 15. Söfnuðui'inn er Guði dýrmcetur. Af öllu því sem finnst á jörðinni er söfnuð- urinn, sem inniheldur hina trúu fylgjendur Krists, Guði lang dýrmætastur. Honum til endurlausnar gaf sonur Guðs líf sitt. — Með þessari ómetanlegu gjöf hefur hann gert manninn dýrmætari Ofírgulli. Fólk hans er orðið að dýrmætum gimsteinum hans, því það er keypt með blóði Krists, en ekki með for- gengilegum hlutum eins og silfri og gulli. Þó að verðið væri hræðilega hátt, mun Kristi aldrei finnast það of hátt. Það verður engin eftirsjón af hans hálfu. Jesaja skrifaði um hinn síðasta ógurlega dag, þegar Frelsari okk- ar mundi líta herskara hinna endurleystu og að „vegna þeirra hörmunga er sál hans þoldi, mun hann sjá og seðjast af þekking sinni.“ Hve undursamlegur er kærleikur Guðs til fylgjenda sinna! Hve djúpur og eilífur er ekki kærleikur hans til safnaðarins! Hvað er dýrðlegur söfnuður? Postulinn segir í Efesusarbréfinu 5, 26., að dýrðlegur söfnuður sé það sem er hreinsað og helgað. í 27. versinu segir hann, að hann sé það sem er hreinsað og helgað. í 27. versinu segir hann, að hann sé án bletts og hrukku. Þegar blettir, gallar og hrukkur hafa verið afmáð með guðlegri hreinsun, kemur dýrð- legur söfnuður í ljós. I opinberunarbókinni 7, 14., er dregin upp mynd af dýrðlegum hóp manna á himni. At- hygli er vakin á hvítum skikkjum þeirra og því lýst yfir, að þær hafi verið „hvítþvegnar í blóði lambsins.“ Það er undursamleg sjón.

x

Bænavikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.