Heimili og skóli - 01.02.1946, Page 12

Heimili og skóli - 01.02.1946, Page 12
8 HEIMILI OG SKOLl eða öllu heldur einn þáttur hennar, er nefndist: Kraftur sjálfra vor. Það, senr báðar þessar bækur reyndu að innræta ungum mönnum var það, að hver væri að langmestu leyti sinnar gæfu smiður. í öllum mönnum byggi sú orka og það efni, sem spinna nrætti úr æviþráð og starf hvers og eins, þótt ytri skilyrði væru ólragstæð. Náttúr- lega væri efniviðurinn nrisjafnlega góður, m'.sjafnlega nrikið í menn spunnið, og vitaniega gætu ytri að- stæður lraft örlagaríka þýðingu, en að- alatriðið væri þó skapfestan og viljinn til starfa og dáða. Það réði alltaf að langmestu leyti úrslitunum. Þetta seytlaði i:nn í minn óþroskaða ungl- ingshug. Þetta, að geta ef maður vildi, \ar dásamleg uppgötvun fyrir um- komulausan 12 ára snáða, senr langaði til að verða að nranni. Ég hef því jafn- an haldið því fram, að það geti haft nrikla þýðingu, hvað það er. sem unga fólkið les og leggur athygli að. „Það ungur nemur, ganrall temur.“ Og „Smekkur sá, sem kemst í ker, keim- inn lengi eftir ber.“ Við, senr lagt höfum svo að segja alla orku í að uppfræða lrina ungu og höfum reynt af veikunr mætti að vísa þeim veg, verðunt að leitast' við að kynna okkur ýmis lögnrál, er líf og þroski lýtur. Að vísu lrafa foreldrar á öllum öldum haft nokkra nasasjón af þessum lögmálum af brjóstviti sínu og reynslu, og sunrir þeirra verið uppal- endur af guðs náð og eru enn. En þótt svo sé, þá er lritt víst, að þekkingar- leysið og kæruleysið hefur í þessum efnum sem öðrum verið mikill þrösk- uldur á vegi mannlegs þroska. Hins vegar hafa hinir síðustu áratugir bor- ið kyndil þekkingar að þessum myrk- viði og sýnt og sannað margt og mik- ið, sem áður var ýnrist óljóst hugboð, eða með öllu óvitað. Má í því sam- bandi til dæmis benda á það, að áður var talið nóg að byrja á hinu eigin- lega uppeldi, er barnið var orðið svo eða svo gamalt, 10 eða 12 ára, eða þar um bil. Þangað tif mátti hafa það sem hálfgert leikfang. Nú er það vitað og talið sálfræðilega sannað, að mótun skapgerðar barnsins hefjist þegar í frumbernsku. Það er því engin fjar- stæða að láta sér detta í hug, að kom- andi kynslóðir muni lrafa gott af því, að þessi þekking verði almenn og að foreldrar tileinki sér hana. Raunar halda sumir uppeldisfræðingar því fram, að þessi mikilsverða uppgötvun muni seint eða ekki koma kynslóðun- um að liði, fyrr en börnin séu þeg- ar frá byrjun alin upp á barnaheimil- um undir vísindalegri umsjá. Þeir trúa ekki foreldrunum til þess. Út í þá sálma verður ekki farið hér að öðru en því, að ég hef þá trú, að með vax- andi þekkingu á þessum mikilsverðu málum, sem allir sæmilegir foreldrar munu tileinka sér að meira eða minna leyti, muni hverri mannveru hollust móðurknén, þótt til séu og verði jafn- an nokkrar undantekningar frá þeirri reglu. Sálarlíf vort er slungið ýmsum þátt- um, og hefur verið reynt að greina einkum þrjá þætti hvern frá öðrum sem eins konar uppistöðu í þeim merkilega vef. Þessa þrjá þætti nefnum vér: hug- mynda-, tilfinninga- og viljalíf. Það er mjög mikils virði, að börn- um sé hjálpað til að eignast glöggar

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.