Heimili og skóli - 01.02.1946, Page 16
12
HEIMILI OG SKÖLl
hreppi í Eyjafirði og kenndi þar í 10
ár, eða þar til hann lét af kennslu-
störfum að mestu árið 1938.
Sent dæmi um óvenjulegan áhuga
Jóns má geta þess, að þegar hann var
44 ára, settist hann í 3. bekk Kennara-
skólans og lauk kennaraprófi þaðan
vorið 1921. Áður hafði hann sótt
kennaranámsskeið í Reykjavík.
Þetta er ekki viðburðarík ævisaga
og laus við alla rómantík og frægðar-
ljóma á almennan mælikvarða, og þó
er hún merkileg um margt. Þeir, sem
vita, hvað það er, að vera farkennari í
30 ár á fyrstu tugum þessarar aldar,
geta metið ævistarf Jóns Kristjánsson-
ar og annarra stéttarbræðra lians, err
aðrir ekki. Og það er ævintýri líkast,
að maður í slíkri stöðu, með slík laun
frá þjóðfélaginu, senr ank þess varð að
fæða og klæða 10 börn og koma þeim
til manns, skyldi ekki doðna niður í
vanaþrældóm og „acta“skrift, en Jrað
gerði Jón aldrei. Hannvareinnafþess-
um hetjum hversdagslífsins, sem lét
ekki baslið smækka s,:g, heldur óx með
hlutverkum sínum. Enda átti hann
góða og lífsglaða konu, sem bjó hon-
um gott heimili, þrátt fyrir mikla fá-
tækt.
Jón var glöggur og prýðilegur
kennari. Hann lék bæði á fiðlu og
orgel og hafði ágæta söngrödd, óg
kirkjuorganisti hefur hann verið
lengst af ævi sinnar.
Þegar Jón lét af kennslustörfum,
var hann gerður að heiðursfélaga í
Kennarafélagi Eyjafjarðar, og er J)að .
víst sú eina heiðursviðurkenning, sem
honum hefur hlotnazt um dagana,
enda hefur hann ekki eftir þeim sótzt.
Hann er óvenjulega hógvær maður og
lítt gefinn fyrir að tylla sér á tá ög sýn-
ast stór, enda hefur jafnan verið hljótt
unr Jrennan lágvaxna farkennara og
ævistarf hans. Einhvers staðar mun þó
sú hetjusaga vera skráð, og víst er um
Jrað, að Jón hefur ekki grafið talent-
una sína í jörðu, og nú lifir hann eins
og blómi í eggi á litla býlinu sínu,
Espigrund, og þótt hann liafi ekki
safnað auði, er mér þó óhætt að full-
yrða, að hann á það, sem meira er um
vert, en fxið er þakklæti, vinátta og
hlýhugur fjölda margra nemenda og
annarra samferðamanna, sem árna nú
þessurn aldna sæmdarmanni allra
heilla.
Leskaflar.
Svo nefnist tveggja arka rit í allstóru
broti, sem komið er út fyrir skömmu. Er
það ætlað nemendum í efstu bekkjum
barnaskólanna til lesturs og náms í sam-
bandi við bindindisfræðslu.
Þótt sú fræðsla hafi verið lögboðin í
nokkur ár, hefur bömunum ekki verið séð
fyrir neinni hjálparbók í þeirri grein. Er
þessu litla kveri ætlað að bæta úr þeirri
þörf.
Bókin er með mörgum myndum og línu-
ritum og því góð hjálparbók við vinnubóka-
gerð í þessum fræðum. Ritið skiptist í þessa
kafla: Fjöreggið — Hvað er áfengi? —
Ahrif áfengis — Hvað gerist í líkamanum?
— Afengi og sjúkdómar — Afengi og dauðs-
föll — Afengi og slysfarir — Afengi og af-
brot — Afengið og heimilislífið — Afengi
og uppeldi — Afengi og íþróttir — Afengi
og vinna — Afengi og langlífi — Hvað kost-
ar áfengið? — Að síðustu.
Hannes J. Magnússon hefur tekið bækl-
ing þennan saman, og geta skólastjórar og
kennarar því snúið sér til hans, ef þeir vilja
fá ritið handa skólum sínum. Annars er
upplagið lítið og mun því fljótt ganga til
þurrðar. Ritið kostar 3,00 krónur.