Heimili og skóli - 01.02.1946, Síða 21

Heimili og skóli - 01.02.1946, Síða 21
HEIMILI OG SKÓLI 17 þeirri, sem heimili þeirra gátu þeim í té látið á æskuárunum. Til saman- hurðar hef ég svo bréf, sem mér hafa sjálfum borizt á síðustu 30 árum, frá fólki, sem að starfi, kjörum, aldri og áhugamálum er alveg sambærilegt við iiina eldrl hréfritara — en hefur í lang- flestum tilfellunr notið bæði meiri og kerfisbundnari fræðslu í móðurmál- inu og í meðferð þess, með tilsögn og undir handleiðslu sérstakra kennara. Öll þessi hréfasöfn, sem að samtöldu ná næstum yfir heillar aldar bil, hafa það sameiginlegt, að tilefni bréfanna eru margvísleg: Ýmist eru bréfin al- menn kunningjabréf um laust og fast, eða um einkamál, viðhorf eða ágrein- ing í almennum málum; fjölmörg um viðskipti eða annað, sem á dettur í daglegu lífi. Ennfremur má telja, að þau séu af sama svæði hér 'innan Þing- eyjarsýslu. Þrennt kemur einkum til greina við slíkan samanburð bréfa: rithönd (rit- leikni), réttritun, og svo málfar og frá- sagriarháttur. Lhn rithönd hjá eldri kynslóðunum er það að segja, að hún er sundurleit- ari og mcsjafnari. Sumir eldri menn skrifuðu „skrautskrift", sem ber þess merki, að skort hefur tilsögn, og ef til vill forskrift. Þó er meiri stíll í henni, þrátt fyrir kantana en hjá þeim seinni tíma mönnum, sem ekki hafa náð tök- um á rithönd, en ætla má að hafi álíka litla þjálfun við skriftir. Hins vegar virðist það ljóst, að eldra fólkið hefur litið á skriftina sem iíþrótt, sem til ætti að vanda eftir beztu getu, og þess vegna hefur mikill fjöldi þess náð smekklegri rithönd en nú er almenn- ast hjá þeim, sein ekki taka til skriftar- kunnáttunnar nema stöku sinnum. Má hér að sönnu nokkru um ráða, að hraðakröfur nútímans valda því, að menn gefa sér ekki tíma til að vanda skriftina á tækifærisbréfum. Sennilega myndi ýtarleg rannsókn leiða í ljós, að réttritun sé öllu meira ábótavant í hinum eldri bréfum. Brestur að vísu allmjög á, að hún sé í viðunandi lagi hjá ýmsum þeim, sem notið hafa málfræðitilsagnar í barna- skólum, og jafnvel eftir fleiri skóla- stig. Við lestur eldri bréfa furðar mann mjög á, hve ritvillur eru fáar og meinlitlar og í þorra bréfanna nær engar, þegar tekið er tillit til þeirra stafsetningarreglna, er þá tíðkuðust. Stalsetning orða eftir framburði, sem er afar ginnandi að fylgja fyrir þá, sem enga þekkingu hafa, kemur afarsjald- an fram í þessum hréfum. Nú má telja næstum útilokað, að óbreytt alþýðu- fólk á þeim dögum hafi aflað sér þekk- ingar á málfræðlreglum, og hlýtur því réttritunarkunnátta þess' að hafa byggst á sjónminni um það, hversu orðin voru stafsett í bókum. En það sanna aftur á móti, að þetta fólk hef- ur lesið bækur til verulegra muna. Þegar til hins þriðja atriðis kemur, málfars og frásagnarháttar, er það að rnínu álit'i tvímælalaust, að eldri hréf- in taka þar hinum fram, þegar borin eru saman bréf frá fólki í sambærilegri aðstöðu fyrr og síðar. Orðavalið er kjarnbetra, málsgreinaskipunin óþvingaðri og frásögnin ljósari. Und- antekningar ganga að sjálfsögðu á víxl. Má vera, að hér komi einnig til greina það, sem fyrr var á vikið, að áður fyrr hafi menn skrifað bréf sín í betra næði og þá af meiri vandvirkni. Þó gat ekki

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.