Heimili og skóli - 01.06.1950, Síða 7

Heimili og skóli - 01.06.1950, Síða 7
HEIMILI OG SKÓLI 51 skapandi frjósemi, hverfur í skugga allra þéirra ólíku og óskyldu stað- reynda, sem nemandinn raðar saman á minni sitt. Elfur lífsins og barátta þess verður þessu fólki því ósjálfrátt harla óviðunandi. Fyrir nokkrum áratugum var vor- koma, eftir harðindi og heyleysi, ís- lenzkum unglingum miklu meira og varanlegra gleðiefni heldur en skemmtiför um hálft landið er nú- tíma skólaæsku. Og það kemur til af því, að vorkoman var þá og er reynd- ar enn, tengd lífinu, lífsafkomunni, af- komu atvinnuveganna, en skemmti- ferðirnar eru fyrst og fremst skemmti- ferðir, þótt af þeim megi margt læra, ef þær eru farnar með því hugarfari. Aflaleysi fiskiflotans og heyleysi bænd- anna liggur ekki með neinum veru- legum þunga á hugum nútíma æsku, og það er vegna þess, að hún er ekki í eins sterkum tengslum við lífið og sú æska, sem lifði hér og starfaði fyr- ir nokkrunt áratugum. Sú var tíðin, að unglingar til sveita lágu andvaka um nætur þegar síðustu heybirgðirn- ar voru að gefast upp í hlöðunni, og sama má eflaust segja um unglinga til sjávar, þegar aflaleysið stóð sem lengst. Báðir áttu lífsafkomu sína und- ir því, að úr rættist. Þeir voru í tengslum við lífið sjálft. Og þótt við höfum ríka ástæðu til að fagna auknu öryggi á þessu sviði, mega þessi tengsl þó ekki rofna. Skólaæskan les um lífsbaráttu þjóð- ar sinnar á liðnum öldum, en hún lifir ekki á sama hátt þá baráttu í dag og verður því tómlát í þessum efnum. Ég hef rekið mig á marga menntamenn, er lengi hafa setið á skólabekk, sem eru undarlega fáfróð- ir um það, sem er að gerast í þjóðlíf- inu, atvinnumál, félagsmál, fjármál o. fl. Og þetta er eðlilegt, námið heimtar svo mikið af orku þessa fólks og áhuga, að tími vinnst ekki til að lifa lífinu, ef ekki á verr að fara á prófinu. Þarna höfum við kennarar og skóla- menn ekki lireinan skjöld. Við tök- um sérgrein okkar, að frœða, svo há- tíðlega, og er það út af fyrir sig ekki ásökunarefni, að við lítum yfirleitt heldur illu auga allt það, eða flest, sem dregur huga nemendanna frá náminu. Við erum sem sé meiri fræð- arar en uppalendur. Þegar Davíð Stefánsson var í Menntaskólanum í Reykjavík var hann auðvitað farinn að yrkja. Ég hef það fyrir satt, að dag einn hafi rektor kallað hið unga skáld fyrir sig og harðbannað honum að fást við slíkt á meðan hann væri við nám í skólanum. Skáldið mun fáu hafa svarað öðru en því, að skáld- skaþur væri það viðfangsefni, sem hann þráði öllum öðrum fremur. Hver vildi bera ábyrgð á því, ef Da- víð frá Fagraskógi hefði þá hætt að yrkja? Þessa er ekki getið hér til að lasta hinn ágæta rektor, heldur til að sýna, hversu óskyggnir við kenn- ararnir erum oft á það, sem með nemendunr okkar býr. Jafnvel snilli- gáfurnar geta þar farið fram hjá okk- ur. Nei, skólar, sem eru ekki í nánu sambandi við lífið, eru eins konar steypumót. Þeir hafa að minnsta kosti skilyrði til að vera það, og þeir hafa óneitanlega tilhneigingu til að vera það, vegna starfshátta sinna. Eitthvert síðasta og nýjasta fyrirbærið, er stað-

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.