Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 12

Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 12
56 HEIMILI OG SKÓLI fastlega ráð fyrir, að þær eigi eftir að fylla mun meira rúm í stundaskrá skólanna en þær gera nú, og á ég þá við skólakvikmyndir. Það verkefni bíður okkar nú að kvikmynda at- vinnuvegina til lands og sjávar, helzt bæði að fornu og nýju, svo og ýmsa hverfandi og horfna þjóðhætti og ýmislegt annað, sem tengt getur æsk- una við fortíð sína og sögu, sömuleið- is gróður og dýralíf. Þá mætti og kvikmynda ýmiss konar starfsemi menningarfélaga. Eitthvað hefur ver- ið gert af öllu þessu, en það er sá galli á, að skólarnir eiga ekki aðgang að þessum myndum. Fleiri þyrftu að fara að dæmi Skagfirðinga og Vest- firðinga, sem farnir eru að undirbúa töku héraðskvikmynda. Ef almennt yrði hafizt handa um það, ætti við- komandi sýsla að eiga eitt eintak, en fræðslumálaskrifstofan annað til notk- unar fyrir skólana, og skiptist þá kostnaður þar á milli að einhverju leyti. Ef til vill á stálþráðurinn og grammófónplatan eftir að gegna ein- liverju hlutverki í skólunum, þótt tæpast sé við því að búast, að það verði stórt, svo ópersónuleg er sú fræðsla. Þá ætti að gera meir að því en gert er, einkum í framhaldsskól- unum, að sýna nemendum verksmiðj- ur og önnur atvinnufyrirtæki til lands og sjávar, sömuleiðis að fá menn úr atvinnuvegunum til að flytja stutt og greinagóð erindi í skól- unum. Þá væri það heldur ekki lítils virði að kynna nemendum t. d. rekst- ur sveitafélaga, bæja og ríkis, rekstur sjúkrahúsa, fátækraframfæri, al- mannatryggingar o. fl. Þá væri ekki ófróðlegt að dvelja einn dag á fyrir- myndar sveitaheimili og kynnast þar öllum daglegum störfum. Allt þetta myndi tengja skólana og nemendur þeirra við lífið. Þetta eru allt raunhæf viðfangsefni, miklu raunliæfari og mikilvægari en margt það, sem skól- arnir verja miklum tíma í, og margt ungt fólk er furðulega ófrótt um þessa hluti. Og hvernig væri nú að bæta einu sumri við námstíma héraðs- og gagnfræðaskólanema, og verja því surnri til verklegra starfa til sjávar og sveita í eins konar þegnskyldu- vinnu. Kannske mætti stytta vetrar- námið eitthvað um leið. Einn skóli hefur þessa skipan, en það er Hús- mæðrakennaraskólinn í Reykjavík. Það væri gaman að gera tilraun með þetta í einum héraðsskóla og einum gagnfræðaskóla, annars rökstyð ég þetta ekki frekar hér. En þetta myndi vissulega veita nýju lífi inn í skóla- málin. Þjóðfélagsfræði ætti að skipa miklu meira rúm í skólunum en hún gerir. Hún er grundvöllur hagnýtrar og ó- missandi þekkingar á þjóðfélagsmál- um. Væri skaðlaust, þótt flokksblöðin yrðu ekki ein um þá fræðslu. En eitt- hvert mikilvægasta hlutverk skólanna, já, allra skóla, er það að hneigja hugi ungra manna til ræktunarstarfa. í fyrsta lagi er það þjóðfélagsleg nauð- syn, og auk þess er það menningar- leg nauðsyn, því að fá störf eru eins mannbætandi og ræktunarstörfin. Flestar þær veilur, sem gert hafa vart við sig í menningarlífi okkar á síðari árum, er óbein afleiðing af því, að þjóðin hefur æ meir horfið frá rækt- unarstörfum og landbúskap. í þeim störfum er hið beina samband við

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.