Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 17

Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 17
HEIMILI OG SKÓLI 61 glugga oftast eitthvað í dagblöðin og draga sjaldnast í vafa það, sem þar stendur. Hlutverk skólans í innrætingu tröllatrúarinnar á prentað mál er mik- ið, og vinnur hann markvisst að því að gera hana sem sterkasta. Um leið og börnin koma í skóla, er bóka- kennsla hafin, og henni er haldið á- fram dag eftir dag og ár eftir ár, oftast af miklu kappi. Virðing og álit skóla- barnsins byggist að miklu leyti á því, að það muni sem bezt það, sem stend- ur í bókunum og er því naumast að undra, þótt það læri að bera allmikla virðingu fyrir þeim. Tvímælalaust er það mikill kostur, að börnin læri sem fullkomnasta notk- un bóka. í bókunum er saman kominn mikill fróðleikur, oft saman þjappaður í skyld og gagnstæð mál. Við, sem eyð- um miklum hluta ævi okkar í návist bóka, myndum sízt vilja vera án félags- skapar þeirra, enda er góð bók bæði tryggur og spakur lífsförunautur. En jafn nauðsynlegt og gagnlegt sem bókvitið er ,eins nauðsynlegt er að kenna börnunum, og auðvitað full- orðnu fólki ekki síður, ef til þess næst, að bækur og blöð á að lesa með gagn- rýni: — Hugði ei sannleik hóti betri hafðan eftir sankti Pétri. — orti þjóðskáldið um ógæfumann- inn, sem var hrakinn og hrjáður af öllum, að því er virðist vegna þess, að hann þorði að hugsa sjálfstætt og tjá hugsanir sínar. — Vanþekking situr á valdastól og veifar sprotanum langa. — Flestir treysta sannleika sankti Pét- urs án frekari athugunar og vanþekk- ingin getur ríkt í friði ,þótt einvald- ar velti úr völdum og lýðveldi líði undir lok. Meðan fólk lærir ekki að nota skynsemina til þess 'að athuga, hvort það, sem borið er á borð fyrir það af andlegu fóðri, er hollt og stað- góð fæða, getur vanþekkingin veifað valdasprotanum sínum óáreitt. Frá þjóðfélagslegu sjónarmiði er þetta uppeldi, sem miðar sjálfrátt eða ósjálfrátt að því að venja fólk af því að hugsa, hættulegt. Alls konar lýð, - skrumarar eiga mun hægara um vik meðal þeirra, sem vanir eru að hlýða í hugsunarlausri blindni, heldur en hinna, sem jafnan gera sér að skyldu að athuga málin frá sem flestum hlið- um, áður en þeir taka afstöðu til þeirra. Kennslubækurnar okkar geyma urm- ul af alls konar villum, ýmsar villur eru þekkingarskorti eða óvandvirkni höfunda að kenna, aðrar eru afleið- ingar þeirra breytinga, sem stöðugt eru að gerast í heiminum. Það væri mikils virði fyrir þjóð- félögin, ef kennarar tækju sig til og notuðu nokkrar klukkustundir á viku til þess að kenna börnunum að leita að villum í kennslubókunum. Fáar kennslustundir eru ánægjulegri en þær, ef kennaranum tekst að koma heilum bekk til þess að plægja kennslubóka-akurinn í leit að alls konar villum. Þegar nemendurnir telja sig hafa fundið villur, hefjast umræður um réttmæti gagnrýninnar. Enginn skyldi dæma fjarlægan kennslubókahöfund harðara en hann á skilið. Gagnið, sem af svona vinnubrögð- um myndi leiða, er fyrst og fremst

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.