Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 26

Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 26
70 HEIMILI OG SKÓLI og þið syngið aftur vers, eitt eða fleiri. Þetta tekur fimm til tíu mínútur. Og livert heimili, sem gjörir þetta að venju, mun uppgötva, að þetta er þroskalind barnanna. Og margar af dýpstu hugsunum þeirra og spurning- um munu þá vakna tif lífs og verða til aukins þroska og vizku, auk sið- legra áhrifa. Þetta getur verið megin- þáttur trúarlegs uppeldis á heimili hverju. En auk þess er sjálfsagt að venja börn á þögn og kyrrð, meðan hlýtt er útvarpsguðsþjónustum. Sé ékki hægt að tryggja slíkt umhverfi, ætti tafarlaust að loka útvarpstækinu. Það er til ómenningar og vanhelgun- ar að láta útvarpið flytja fegurstu bænir, ræður, sálma og söngva yfir argi, skarki, bfótsyrðum og hversdags- störfum. Enda sýnir slíkt sanna skríl- mennsku flestu öðru fremur. Þar er í sannleika perlum kastað fyrir svín. Fullorðna fólkið ætti að hafa börnin með sér í kirkju strax, þegar þau eru komin á þann aldur, að ætla má, að þau geti verið kyrrlát heila klukku- stund. En þá verður að gera strangar kröfur til fullrar háttvísi. Barn nú- tímans, barn hraðans og hávaðans, þarf sannarlega að kynnast þessu eina sviði samfélagsins, þar sem þögn og kyrrð ríkir, ásamt föstum reglum, sem ekki má brjóta. Fegurð og tign guðsþjónustunnar mun undir hand- leiðslu góðra foreldra eða ástvina vekja ósjálfráða lotningu og auðmýkt í huga barnsins. En lotningin er bezti jarðvegur heitrar trúartilfinningar, sem seinna mun veita því styrk í raun, göfgi í sorgum og sýn út yfir þröngan hring augnablikssjónarmiða. Um sjö ára aldur tekur skólinn við. Hann verður oft til að móta trúar- viðhorf barnsins, þar eð hann veitir fræðslu um þau efni, sem beinlínis snerta þetta svið í hugarheimi þess. Er þá mikils um vert, að kennarinn sé vanda sínum vaxinn. Hann þarf fyrst og fremst að láta barnið finna og sjá, að kristinfræðistundirnar séu hon- um öðrum stundum skólans æðri. Bæði foreldrar og kennarar þurfa að vera samtaka á þessu sviði. Eftirdæm- ið er hvergi áhrifameira en gagnvart lielgum viðfangsefnum trúaruppeldis. Hvergi verður að ganga ríkara eftir vandaðri vinnu við námið. Engin undanbrögð né kák má leyfa. Og umfram allt verður að gera viðfangs- efnið eins ljúft og fagurt og framast standa efni til. Morgunsöngur í skólanum, áður en kennsla er hafin, er mjög fallegur siður. Vikulega skyldi skipt um ljóð og lag, sem áður sé lært og undirbúið í tímum. Ríkt gengið eftir reglusemi, og utanaðkomandi áhrifum og skrípa- látum bægt frá meðan sungið er. Tímar í kristnum fræðum verða að vera vel undirbúnir, þannig, að börn- in finni öryggi og lotningu kennar- ans. Gæta fyllstu vöndunar í námi. Forðast að þreyta, en stytta heldur stundina með söng og sýningu mynda. Umfram allt helgiblær og góður agi. Annars er betra að sleppa kristnum fræðum. Því að óvönduð kennsla með liávaða, ys og útúrsnúningum, þurrk- ar út hið bezta, sem barnssálin áður hafði tileinkað sér á þessu sviði. Og slíkir tímar verða einnig beztu börn- unum hneyksli og hugraun. Kennar- ar. Ekkert skólastarf er betri prófraun á starfshæfni ykkar en kristinfræði-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.