Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 24

Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 24
68 HEIMILI OG SKÓLl Séra ÁRELÍUS NIELSSON: TRÚARLEGT UPPELDI Ást og trú eru tvær tilfinningar, sem mestu valda um liamingju manna. Þær eru líkt og tveir strengir, sem þarf að stilla rétt, en þá hljóma ílestir aðrir strengir sálarinnar í samræmi og fegurð. Báðar þessar tilfinningar eru mót- aðar til viðtöku áhrifum frá liinu ó- þekkta og feyndardómsfulla. Ástin er stillt gagnvart upphafi lífsins og þró- un. Trúin gagnvart lokaþættinum í lífi einstaklingsins og þeirri verðandi, sem þá tekur við. Þó eru þær sam- ofnar og samhljóma gagnvart hvoru tveggja, ef vel er að gætt. En þótt þessar tilfinningar séu þannig gagnvart hinu óskynjanlega, þá er ekkert, sem mætti telja þeim óviðkomandi í hversdagslegasta um- hverfi lífsins. Flest, sem talið er menning, siðfágun og list, á að ein- hverju ívaf þeirra og hljómblæ. Það er því auðsætt, að miklu máli skiptir, hvernig tekst að stilla þessa strengi, þegar frá upphafi. Eru þeir stemmdir til samræmis og íegurðar, eða verða þar falskir mishljómar mestu ráðandi? Þótt undarlegt rnegi virðast, hefur uppeldis síðustu ára lítils gætt á þessu sviði. Þrátt fyrir allt kapphlaupið um aukna þekkingu, met og tækni, hafa tilfinningar þessar lítt eða ekki verið taldar með á þeim sviðum, sem talin eru til hins opinbera uppeldis. „Fátt er skeytt um hjarta og hönd, en hausinn út er troðinn,11 sagði St. G. Og það liefur því miður orðið sannmæli um flesta vegu, sem farnir hafa verið í uppeldi síðustu ára, þrátt fyrir allar framfarirnar. Nú er þó starfsskólahugsjónin að minnsta kosti rædd og hugsuð, en hjartað er enn út undan. Það er næstum eins og ást og trú þyki of persónuleg verkefni, til þess að vera rædd og mótuð. Rétt er það, að hver er sér um sefa. En eitt er víst, þörf er að stilla þessa strengi rétt í barnssálinni, að því leyti sem unnt er fyrir uppalandann. Sé það ekki gert, mun flest annað, sem unnið er til mannbóta, verða framtíð mann- kyns að litlu gagni. Uppeldi hugans eitt gæti veitt afti mannssálnanna í þann farveg, er brotizt gæti fram sem Hemra sú, er eitra mætti allt mannlíf jarðar og drekkja menningu hennar. íþessari grein ætla ég ekki að ræða mótun ástartilfinninga. Sálfræðingur, sem jafnframt skilur hjörtu utan bókar, ætti að gjöra því skil. Sýna fram á, hvernig t. d. ýmislegt námsefni skólanna er vel faffið til að efla og göfga ást til foreldra, forfeðra, sögu, ættjarðar, æskustöðva mannkosta, tungumáls, lista, sannleikans, en um- fram allt til að skynja hið heilbrigða ástand, sem ríkja þarf milli kynjanna, til þess að þjóðfélagið eignist ham- ingjusöm heimili og þróttmikla þegna. En gagnvart öllu þessu mætast ástin og trúin, svo að oft verður naumast greint. En ég ætla með nokkrum orðum að

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.