Heimili og skóli - 01.06.1950, Side 10

Heimili og skóli - 01.06.1950, Side 10
54 HEIMILI OG SKÓLI sál barnsins. Fullnægja nú skólastof- urnar almennt þeim kröfum? Ég ræði hér ekki um þá andlegu lilýju, sem liver góður kennari þarf að vera gæddur og telja má frumskil- yrði þess, að barni geti liðið vel í skóla, heldur þann hlýlega og heim- ilislega blæ, sem barnið er áður vant í heimahúsum, og ég er hræddur um, að nokkuð vanti á, að skólastofur al- mennt búi yfir þessum uppeldisáhrif- um heimilanna, og er það reyndar aö vonum. Skólastofa með nöktum stein- veggjum minnir meir á fangelsi en uppeldisstofnun, jafnvel þótt hún sé björt og rúmgóð. Sú stofa er sálar- laus og andlaus, sem ekki hefur ann- að að bjóða en nakta veggi, nokkur borð og stóla, svarta töflu og kenn- araborð, og þar getur engum liðið vel, hvorki kennara né nemendum. Jainvel ófullkomnar teikningar nem- enda, já, ekki livað sízt þær, gefa stof- unni líf og sál. Blóm í gluggum, nokkrar snotrar myndir á veggjum, eitthvað, sem augað getur staðnæmst við, gefur skólastofunni sál og skapar jafnvægi innan veggja hennar. En í öllu þessu þarf að vera samræmi og stíll, til þess að það liafi góð áhrif á nemendurna. Ef búnaður skólastof- unnar verður íburðarmikill og þar ægir öllu saman, hættir hann að hafa góð áhrif. Samræmið hverfur. Veggir, sem eru nálega huldir af hinu og öðru, hafa þreytandi áhrif á hugann, þar rennur allt saman og skapar jafn- vægisleysi. Ég er enginn sálfræðingur og get ekki fært rök að þessu, en svona kernur þetta mér íyrir sjónir. Mér virðist, að það muni t. d. hafa ill áhrif að koma inn í stofu, þar sem borðum og stólum er óreglulega rað- að, og annað eftir því. Eitt af því, sem öllum nemendum verður star- sýnist á, af eðlilegum ástæðum, er kennaraborðið. Þar, og ekki sízt þar, verður því allt að vera í röð og reglu. Mér myndi líða illa í þeirri kennslu- stofu, þar sem öllu ægði saman á kennaraborðinu, blöðum, bókum á- höldum og öðru sliku. Jafnvel svo hversdagslegur hlutur sem kennara- borðið, já, einmitt vegna þess, að hann er hversdagslegur, með öllu, sem á því er og nemandinn hefur fyrir framan sig dag eftir dag, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár, getur því ýmist sljófgað eða skerpt fegurðar- og samræmissmekk barna og unglinga, jafnvel sjálft kennaraborðið getur því verið uppalandi, eða ekki uppalandi. Umhverfið hefur alveg tvímæla- laus áhrif á mótun skapgerðar barna og unglinga. Hvers vegna skyldi þá ekki skólastofan einnig búa yfir þeim áhrifum, skólastofan, sem er annað heimili barna og unglinga um 10—20 ára skeið, og það, sem sagt er hér um skólastofur í barnaskólum, getur í öllum aðalatriðum einnig átt við kennslustofur allra skóla. í kennslu- stofu 3. bekkjar í Kennaraskólanum hékk í minni tíð voldugur fjallaörn með útbreidda vængi á einum vegg stofunnar. Þessi tígulegi fugl gaf kennslustofunni einhvern stórbrot- inn svip. Jafnvel þessi fallna hetja loftsins gaf stofunni sál og líf. Nei, kennslustofur framhaldsskólanna mega heldur ekki líkjast fangelsum, þótt vitrir menn og lærðir ráði þar húsum.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.