Heimili og skóli - 01.06.1950, Side 21
HEIMILI OG SKÓLI
65
Norðlenzkt kennaramót
Vikuna 4,—10. júní hélt Samband
norðlenzkra barnakennara mót á Ak-
ureyri. Mættir voru barnakennarar úr
Skagafjarðar-, Eyjafjarðar- og báðum
Þingeyjarsýslum. Stjórn sambandsins
undirbjó mótið, ásamt námsstjóra. í
lögum sambandsins er svo fyrir mælt,
að kennaramót skuli haldin annað
hvort ár og flytjast milli héraða. Er
stjórn sambandsins skipuð kennurum
af því svæði, þar sem mótin eru haldin
hverju sinni.
Góð þátttaka
Mótið sóttu 70 kennarar af félags-
svæðinu. Þetta mót var þríþætt, nám-
skeið í skólavinnu, kennslutækjasýn-
ing og umræðufundir.
Á námskeiðinu fór fram kennsla í
ýmiss konar skólavinnu (föndri).
mjög athafnalítil og á mjög auðvelt
með að láta allt, sem sagt er, fara inn
um annað eyrað og út um hitt. Frá
stúlkunnar hlið er þetta eina leiðin
til þess að brynja sig gegn öllum á-
róðri.
„Letin“ er, eins og komið er í ljós,
hugtak, sem teygja má eins og hrátt
skinn. Það er því ekki rétt að væna
börn um leti, heldur reyna í þess stað
að finna orsök til þeirrar hömlu, sem
veldur hinni oft nefndu „leti“. Það
myndi þá sýna sig, að sökina er ekki
að finna hjá barninu, heldur um-
hverfi þess.
Valdimar Össurarson íslenzkaði.
Kennari var fröken Elinborg Aðal-
bjarnardóttir, kennari við Handíða-
skólann. Sýniskennsla í lestri, er Jón
J. Þorsteinsson kennari á Akureyri
hafði með höndum og leiðbeiningar í
reikningskennslu og vinnubókagerð,
er Jónas B. Jónsson, fræðslufulltrúi,
Reykjavík, annaðist.
Unnið var við föndrið frá kl. 9—12
daglega og auk þess unnu margir að
því, hvenær, sem stundir gáfust frá
öðrum störfum. Var kennsla fröken
Elinborgar skemmtileg og lifandi,
enda er hún listakona í þeirri grein.
Unnir voru ýmiss konar hlutir úr
bréfi, pappa og basti.
í lestrarkennslunni sýndi Jón J.
Þorsteinsson kennsluaðferðir sínar frá
fyrstu byrjun, þar til börnin eru orðin
læs, en aðferðir hans eru byggðar á
hl jóðlestraraðferðinni. Hafði hann
deild 8 ára barna við kennsluna.
Fannst mönnum mikið til um að-
ferðir Jóns og tækni, enda er hann
þaulreyndur smábarnakennari og
lærður maður á sviði hljóðfræðinnar.
Jónas B. Jónsson leiðbeindi um ým-
islegt viðvíkjandi reikningskennslu, er
miðar að því, að hver einstaklingur
njóti sín sem bezt. Einnig í vinnubók-
agerð lagði hann áherzlu á frjálst starf.
Jónas B. Jónsson hefur kynnt sér
nýjungar í kennslutækni erlendis,
einkum Svíþjóð.
Fyrirlestur.
Á mótinu voru þessi erindi flutt: