Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 8

Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 8
52 HEIMILI OG SKÓLI sama bekk. Þetta er mjög vafasamt ákvæði. Það er enginn vandi að setja í lög og samþykkja þetta, en það er meiri vandi að standa frammi fyrir framkvæmd þessa ákvæðis, og ég er ekki viss um, að seinni veturinn í 12 ára bekknum verði öllum til rnikils gagns eða þroska. En þessi eftirseta er þyngra áfall fyrir lítinn, óþroskaðan dreng eða stúlku en löggjafana rennir grun í. Hitt er þó líklega enn vafasam- ara að skylda þessi börn til að halda enn áfram í tvö ár, er þau hafa ineð harmkvælum lokið sínu barnaprófi. En það er nú önnur saga. . Það mætti kannske segja, að okkur væri svipaður vandi á höndum með gáfuðu börnin, sem eru á undan flest- um sínum félögum, og víst hlýtur þeim að vera óréttur gerr oft og mörg- um sinnum, en þau kalla þó ekki eins á samúð okkar og hin. Þau finna hjá sér máttinn og yfirburðina, og það, gefur lífi þeirra vissa fyllingu, þótt þau fái ekki að njóta sín á sprettinum eins og efni standa til. En eitt er víst: Við verðum að búa þannig að vangefnu börnunum í skólunum, að þau geti notið sín Jrar eins og önnur börn, bæði þeirra vegna og þjóðfélagsins, sem á að njóta krafta þeirra í lramtíðinni. Og næst Jiegar fræðslulöggjöf vor verð- tir endurskoðuð, iná ekki gleyma Jress- um hópi barna. Við höfum blátt áfram ekki ráð á því. Uppeldisfræðingar telja, að allt að |>ví 6% allra skóla- barna muni þurfa sérkennslu. Mér þykir líklegt, að þessi tala sé ekki svo há hér á íslandi, en þó að þau væru hálfu færri, væri samt ærin ástæða til að muna eftir sérstöðu þeirra og gera eitthvað fyrir J>au. Þótt við eigum enga sérmenntaða kennara í þessari grein, mætti byrja með ]>ví að fá einhvern sérfræðing og hafa námskeið með kennurum til að búa þá undir meðferð og kennslu þess- ara barna. En á meðan ekkert er gert, skulum við hvert í sínu lagi gera það bezta, sem við getum til að koma þess- um börnum til nokkurs þroska. Við verðum að læra að taka þau eins og þau eru, en ekki ætlast til neins af þeim, sem þeim er um megn. Jafnvel }>ótt við horfum ineð skelfingu fram á vordagana, þegar þessi börn fá sinn dóm í töluin — vafalausa falleinkunn, skuluin við uingangast þau með sömu þolinmæðinui, og hinni sömu óbifandi ró sem ættum við von á að útskifa þau með ágætiseinkunn. Það léttir þeim lífið og erfiðið. og ofurlítill neisti af sjálfstrausti, bjartsýni og trú á sjálfan sig og lífið er góð gjöf. Þarna J>urfa kennarar og foreldrar að vera samtaka. Þetta á raunar við um alla nemendur, en ekki þó sízt J>á, sem erfiðast eiga um allt bóklegt nám. Hannes J. Magnússon. Fyrsti daéurinn í skclanum. Kennslukonan: „Kantu stafrófið, litli vinur?“ Jón: „Já, fröken.“ Kennslukonan: „Hvaða bókstafur kemur á eftir a?“ Jón: „Allir hinir.“ Óréttlæti. Móðirin: „Nú verður þú að fara að hátta, Óli minn.“ Óli: „Nú ert þú ekki réttlát, mamma. A morgnana segir þú, að ég sé af stór til að liggja í rúminu, en á kvöldin segir þú, að ég sé of lítill til að vera á fótum.“

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.