Heimili og skóli - 01.08.1953, Blaðsíða 9
HEIMILI OG SKÓLI
53
Valdemar V. Snævarr,
sjötugur.
Þann 22. ágúst s.l. varð Valdemar
V. Snævarr, fyrrv. skólastjóri, sjötíu
ára. Valdemar er um margt merkilegur
inaður, skáld og rithöfundur og jafn-
framt maður, sem varið hefur lífi sínu
til að hlynna að Jreim gróðri, sem dýr-
mætast er, æskunni í landinu. En fjár-
munum hefur hann aldrei sót/.t eftir,
enda fátækur af þeim jafnan.
Valdemar er fæddur á Þórisstöðum
á Svalbarðsströnd 22. ágúst 1883. For-
eldrar hans voru Valves Finnbogason,
skipstjóri, og Rósa Sigurðardóttir.
Föður sinn missti Valdemar 1884.
Hann var skipstjóri á „Úlfi“, er þá
fórst með allri liöfn. Olst Valdemar
upp hjá móður sinni á Svalbarðs-
strönd.
Valdemar var snemma námfús og
var í Möðruvallaskóla 1899—1901.
Næstu ár á eftir var hann öðru hvoru
við nám til undirbúnings í mennta-
skóla. En fé skorti til framhaldsnáms,
þótt námsgáfur væru nægar og áhugi.
Þá gerði hann kennsluna að ævi-
starfi sínu. Var hann fyrst við far-
kennslu í tvo vetur, en Jrá varð hann
skólastjóri á Húsavík 1903—1914 og í
Neskaupstað í Norðfirði 1914—1943.
Eins og sést á þessu yfirliti, kenndi
hann alls í 42 ár og Jiótti afburðagóður
kennari.
Síðustu 10 árin hefur hann verið hjá
séra Stefáni syni sínum á Völlum í
Svarfaðardal og getað gefið sig að
hugðarefnum sínum, skáldskap, sagn-
fræði og kristilcgu starfi.
Af félagsstörfum Valdemars má
nefna störf hans í Góðtemplararegl-
unni í Neskaupstað. Var hann nr. a.
lengi gæzlumaður barnastúkunnar
,,Vorperlan“ nr. 64 og starfaði hún
með ágætum undir stjórn hans. A
þeim árum gaf hann út barnablaðið
,,Smára“ í 5 ár. Varð Austurland fá-
tækara, er Jjetta eina barnablað, sem
þar hefur komið út, féll niður.
Valdemar er þjóðkunnur, sein skáld