Heimili og skóli - 01.08.1953, Page 18

Heimili og skóli - 01.08.1953, Page 18
62 HEIMILI OG SKÓLI orðum, sem ekki eru stöfuð; með öðr- um orðum: lestrarörðugleikar hans eru bundnir við sjónminnið (visuelle). Jens ræður síður við stöfuð orð, sam- runi hljóðanna bregst honum, hans örðugleikar eru bundnir við heyrnina (auditive) Jens skyldi aldrei kennt með hreinurh hljóðaaðferðum, hann þarf fyrst og fremst að byggja réttan lestur á orðmyndum, og ætti því um- fram allt að kenna honum með orð- myndaaðferð tengda stöfunaraðferð- inni. Leifur hefði hins vegar gott af, að ldjóðaaðferð væri að miklu leyti beitt við lestrarkennslu hans. Til greina getur einnig komið að nota þreifi- og jafnvel vöðvaskynjun í þjón- ustu lestrarkennslu og má þá hverj- um kennara ljóst vera, að svo margar mismunandi kennsluaðferðir er ekki hægt að framkvæma í bekk, þar sem 30 börn með fjögurra ára mismun- andi greindaraldri eiga að njóta kennslu. , Eina ráðið til þess að bæta úr þessu, er að ætla börnum, sem hafa eðlilega greind eða meira, en eiga mjög erfitt með að læra að lesa, sérstaka bekki. Danir hafa allra þjóða mest reynslu á þessu sviði, en þeir stofnuðu í til- raunaskyni fyrsta lestrarbekkinn árið 1935. Svo góða faun gaf þessi starf- semi, að í fræðslulögum Dana frá 1937 er það sérstaklega tekið fram, að stofn- aðir skuli lestrarbekkir handa þeim börnum, sem eigi við sérstaka lestrar- örðugleika að stríða. Síðan hefur þessi starfsemi þróast mjög ört, og eru nú í Kaupmannahöfn einni saman á ann- að hundrað lestrarbekkir með eitthvað 2000 nemendum. Bekkirnir eru undir stjórn skólasálfræðinganna, en aðsetur þeirra er í bæjarskólunum hingað og þangað um borgina. Kennarar og sál- fræðingar skipuleggja kennsluna í fé- lagi, er engin sérstök kennsluaðferð áskilin, enda myndi slíkt vera fásinna, samanber það, sem áður var sagt um mismunandi örðugleika barnanna. Aftur á móti er það ófrávíkjanlegt skilyrði, að nemendafjöldi hvers bekkj- ar fari aldrei fram úr 15, og kennslan sé einstaklrngsbundin og þannig skipulögð, að hverjum nemanda gef- ist kostur á að fylgjast með framför- um 'sínum. Gert er ráð fyrir því, að kennararnir noti allmikinn tíma til þess að undirbúa kennsluna, og með tilliti til þess eru 4 kennslustundir í lestrarbekk, reiknaðar sem fimm í venjulegum bekk,- Kennarar slíkra bekkja verða umfram allt, að haga námsgreininni eftir þörfum og getu nemendanna, og mega ekki gera til- raunotil að laga nemendur eftir náms- efni. Sennilega má benda á það, sem almennan galla á flestum námsskrám, að þær eru samdar af mjög vel greind- um mönnum, sem ekki hafa þekkt niðurstöður greindarmælinga og ann- arra athugana, sem gerðar hafa verið á börnum, hafa þeir því ósjálfrátt gert ráð fyrir því, að þeir væru eins og fólk er flest, hvað greind og náms- hæfni snertir og því samið náms- skrárnar þannig, að þær henti þeim og öðrum, sem standa á svipuðu greindar- og þroskastigi. í Danmörk, þar sem skólasálfræðin er lengst kom- in af öllum Evrópulöndum, er búið að breyta þessu, og er börnum, sem hafa greindarvísitölu undir 90, ætluð sérstök námsskrá og eins þeim, sem

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.