Heimili og skóli - 01.08.1953, Qupperneq 20

Heimili og skóli - 01.08.1953, Qupperneq 20
64 HEIMILI OG SKÓLI Ég skal nú minnast á nokkur hjálp- armeðöl, sem reynzt hafa vel í lestrar- bekkjum Kaupmannahafnar. Barnið fær mynd af einhverju ákveðnu t. d. dreng á skautum, undir myndinni eru allmörg orð og á barn- ið að skrifa þau orð, sem eiga við myndina. Hlutverkið neyðir barnið til íhugunar. Hvað af þessu er venja að hafa í stofu. Borð, bíl, gaddavír, stól þjóð- veg, lamb, ljósastjaka, o. s. frv. barnið skrifar aðeins nöfn þeirra hluta, sem venja er að hafa í stofu. 3. Orðaspjöld, sem barnið fær sund- urlaus, en á að raða þannig, að þau myndi setningu. Aftan á spjöldunum stendur setningin rétt, svo að kennar- inn þarf ekki annað en lyfta spjöldun- um upp og horfa á bakborðið til þess að sjá, livort rétt hefur verið raðað. Barnið les létta sögu og svarar að því loknu skriflegum spurningum, sýna þá svörin, hvernig efnisnámið hfefur verið. 5. Einföld reikningsdæmi í orðum, sem börnin reikna og skrifa útkom- una í tölum eða orðum. Ég skal taka fram, að þetta eru æf- ingar, sem eiga sérstaklega við börn í lestrarbekkjum, en vitanlega má einn- ig nota þær við venjulega lestrar- kennslu. Þegar kennari lestrarbekkjar fær illa læst barn í bekkinn til sín, verður alltaf að hefja lestrarnámið á því stigi, sem barnið er á, án tillits til aldurs þess, stundum verður að nota algera byrjendakennslu við ann- arsbekkinga, og hefur þó bókstafaaskj- an gefizt vel sem hjálpartæki. Er þá fyrst rætt um orð eða stutta setningu, orðin skrifuð á töfluna og stöfuð um leið og kveðið að þeim, börnin lesa þetta bæði ein og í kór, síðan fær hvert barn að búa til orðin úr bókstöf- um þeim, sem þau hafa í bókstafaöskj- unni, en í henni er stöfunum raðað eftir stafrófsröð. Næsta skrefið er að skrifa setninguna, og leyndist í henni einhvér lítt kunnur bókstafur; er sá snáði litaður með áberandi lit, t, d. bláum. Hætti börnunum við að rugla saman bókstöfum, t. d. d og b; er rétt að æfa þá sitt í hvoru lagi, a. m. k. fyrst í stað. Ég hef áður bent á, að í lestrar- bekkjum er kennslan mjög einstakl- ingsbundin, og munu því sumir vilja spyrja, af hverju ég sé nú allt í einu farinn að tala um bekkjarkennslu. Því er til að svara, að þótt aðaláherzlan sé lögð á einstaklingsbundna kennslu, er bekkjakennslan engan veginn bann- færð, heldur eru nokkrar sameiginleg- ar æfingar daglega, m. a. með það fyr- ir augum að glæða félagsþroska barn- anna, og eins kemur það til greina, að ýmis börn þurfa ekki að vera í lestrarbekk nema einn eða tvo vetur, en geta síðan horfið aftur í venjulegan bekk. Orðaöskjur eru líka notaðar í ein- staklingsbundnu kennslunni; hefur þá hvert barn öskju með nokkrum orðum, sem það æfir sérstaklega, en kennarinn hefur aðra öskju fyrir hvert barn í bekknum. Barnið æfir sig nú í orðum, sem það finnur í orðaöskj- unni, og þegar því finnst það kunna eitthvert orð vel, lætur það kennar- ann hlýða sér yfir það. Þegar bamið hefur stafað og skrifað sama orðið villulaust nokkra daga í röð, veitir kennarinn því viðtöku og setur það

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.