Heimili og skóli - 01.08.1953, Qupperneq 25

Heimili og skóli - 01.08.1953, Qupperneq 25
HEIMILI OG SKÓLI 69 \ STARFIÐ HEFST. Eftirfarandi greinarkorn birtist í ritinu Hjemmet og skolen 1952, og er eftir Agnete Paulsen, skólastj., en það rit er gefið út af kennslumálastjórn Dana við og við, og er ætlað það hlut- verk að vera eins konar tengiliður á milli heimilanna og skólanna og vinna að aukinni samvinnu þar á milli. Ritstj. í hvert skipti sem skólar Kaup- mannahafnar ljúka upp dyrum sínum eftir sumarleyfið, streyma þangað þús- undir og aftur þúsundir af glöðum og liraustlegum börnum. Meðal þessara barna cr alltaf nokkur hluti, sem kem- ur þarna í fyrsta sinn. Nú eiga þau að stíga sitt fyrsta spor í áttina til að verða góður borgari í þjóðfélaginu. Þessir nýnemar halda kannske á nýrri skólatösku í annarri hendinni, en hina leggja þau í lófa móður sinnar eða föður. Þau ganga hljóð og alvarleg inn í skólann. — Hvað tekur nú við? En það er ekki gott að segja, hver bíð- ur í meiri eftirvæntingu, foreldrarnir eða barnið. Ég álít raunar, að eftir væntingin sé mest hjá barninu, en for- eldrarnir eru kannske enn þá hrærð- ari. Þannig virtist mér það vera, þegar ég sendi mín eigin börn í skóla í fyrsta skipti. En hjá báðum hvíslar hin sama, innri rödd: Hvað tekur nú við? Hvernig mun þetta nú ganga? Tekst barninu mínu að festa hér rætur og njóta sín? Hér veltur mest á skólanum í fyrstu umferð, og kannske er þessi -dagur — þessir fyrstu dagar — mikil- vægasta tímabilið í allri skólagcingu barnsins? Gc'tð byrjun gefur vonir um gott áframhald um langa framtíð. En eitt er víst. Foreldrarnir, sem heima sitja, mega einnig vera vel á verði, fylgjast með barninu og hjálpa skólan- um. Þau verða að koma í skólann, ef þess er óskað, .hvort heldur til að Mœður í hermsókn í skólann. hlusta á sjálfa kennsluna, eða mæta á bekkjafundum og leshringum, varð- andi starf skólans. A þann hátt gefst þeim kostur á að fylgjast með starfi hans og hvernig barninu þeirra vegnar þar. Foreldrarnir eiga ef til vill erfitt með að átta sig á því, livers vegna barnið kemur ekki strax heim ineð stafrófs- kverið, en þannig stendur á því, að fyrstu dagana eru bcirnin látin klippa út bókstafina, svo og alls konar mynd-

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.