Heimili og skóli - 01.08.1953, Síða 28

Heimili og skóli - 01.08.1953, Síða 28
72 HEIMILI Og’sKÓLI norskan rithöfund, Sverre Amundsen, og leikritið höfðu þau samið upp úr henni. Jafnframt höfðu þau skrifað vinnubók um efnið, sem var allt land- fræði- og náttúrufræðilegs efnis. Svo kemur sjálfur dramurinn: ferða- lagið til New-York. Þar hitta börnin frænda sinn, og hann sýnir þeim skýja- kljúfana og önnur utrdur borgarinnar, en jafnframt höfðu börnin unnið að því að gera líkön að skýjakljúfum og mörgu öðru, sem þau fá þarna að sjá á ferðalaginu, svo að allt verður þetta meir lifandi en ella, og þessi líkön eru höfð með í leiknum. En hvað gerðu svo börnin? Jú, það vantaði ekki verkefni fyrir þau. Þeirra hlutverk var að leika ýmsa þjóðflokka, svo sem Eskimóa, Indíána o. fl., sem börnin sáu á ferðalagi sínu. Ein stúlka stjórnaði leiknum og tilkynnti alltaf, hvaða þjóðflokk þau heimsæktu næst, og þá komu fulltrúar hans fram á sjónarsviðið í sem eðlilegustum bún- ingum og mæltu nokkur orð um leið. Börnin höfðu, við undirbúning þessa þáttar, búið til ýmsa muni, eða líkön af munum, sem tilheyrðu hverjum þjóðflokki, og svo flutti einn eða fleiri úr hverjum hópi stuttan fyrirlestur um land sitt og þjóð, en þar á eftir hófst svo fjörugt samtal á milli að- komubarnanna og frænda annars veg- ar, en Indíána og annarra þjóðflokka hins vegar, þar sem spurningar og svör skiptust á, allt reiprennandi, viðstöðu- laust og eðlilegt. Börnin létust koma inn í kofa Indíánanna og setjast við eld þeirra. Þau létust setjast inn í snjóhús Eski- móanna, og þannig heimsóttu þau í draumi sínum bæði Ameríku, Asíu og Afríku og komu þarna fyrir geysileg- um fróðleik um lönd og þjóðir, sem þau höfðu viðað að sér, bæði úr áð- urnefndri bók og svo einnig úr alfræði- orðabók. Þarna var kyrrð og ró, en þó mikil eftirvænting áheyrenda, en hing- að hafði verið boðið bekk úr annarri stofu. Kennarinn, sem eins og áður er drepið á, var skólastjórinn, sat aftur í stofu og kom lítið við sögu. Inn á milli kom svo söngur, suma lagtextana höfðu börnin sjálf samið! Að loknum draumnum kom svo all- ur bekkurinn aftur upp að töflunni. Þar kom fram eitt og eitt barn, eftir bendingu skólastjóra, og rifjaði upp það helzta, sem börnin höfðu séð og heyrt á þessu langa ferðalagi. Að lok- um sungu þau svo kvæði. Þetta er einn hinn ánægjulegasti og lærdómsríkasti landafræðitími, sem ég hef setið í. Nokkrum dögum síðar kom ég í annan skóla, Lilleborgskole. Hann er einnig gamall, en þar virtist vera mikil grózka í skólastarfinu á ýmsa lund. — Þarna kom ég meðal annars inn í 11 ára bekk stúlkna. Kennslukonan var forkunnar dugleg, og á margan hátt óvenjuleg og leitandi sál. Vinnubrögð öll voru nokkuð sérkennileg. Hún fær telpunum verkefni ýmislegs efnis, og gefur þeim ákveðinn tíma til að ljúka hverju og einu. Fyrir nokkru höfðu þær lokið við Grikkland og sögu Ólympíuleikjanna. Þær höfðu teiknað geysilega samstæðu af myndum, stórum myndum og höfðu 3—4 telpur unnið að hverri mynd. Myndir þessar voru svo notaðar sem.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.