Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 32
76
HEIMILI OG SKÓLI
Frá Barnaskóla Akureyrar.
Barnaskóla Akureyrar var slitið
þann 13. maí, og útskrifuðust þá úr
skólanum 121 barn. Margt gesta var
við skólaslitin. Hannes J. Magnússon,
skólastjóri, flutti ræðu og skýrði frá
starfinu í skólanum síðastliðið skólaár.
í vetur hafa verið í skólanum 814
börn, sem skiptust í 31 deild. Auk þess
voru 131 óskólasyld börn í smábarna-
skóla þeim, er Hreiðar Stefánsson veit-
ir forstöðu. Skólabörn á vegum skólans
urðu því alls 945. Um 150 7 ára börn
hafa nýlega verið innrituð í skólann
og mun því talsvert fjölga í honum á
þessu ári.
Samkvæmt skýrslu skólalæknis og
skólahjúkrunarkonu var heilsufar í
skólanum í vetur tæplega í meðallagi,
og valda því mislingar, er gengu í bæn-
um fyrri hluta vetrar. Skólalæknir
hafði viðtalstíma í skólanum tvisvar í
viku. Ljósböð fengu 249 börn. Virðist
eitlaþroti í börnum hafa hort'ið síðan
ljóslækningar byrjuðu í skólanum. Þá
var börnunum að staðaldri gefið
þorskalýsi í skólanum og drukku þau
li/2 fat af lýsi. Tveir tannlæknar unnu
við skólann eins og undanfarið.
Um 70 stúlkur úr 6. bekk nutu
kennslu í matreiðslu eins og áður.
Sunnudaginn 3. maí var sýning í
skólanum á handiðju barnanna, teikn-
ingu, skrift og annarri bekkjarvinnu.
Höfðu stúlkurnar fullunnið 1462
handavinnumuni, en drengirnir 720.
Auk þess unnu börn úr 5. bekkjum
um 400 muni úr basti, en það er mjög
vinsæl skólavinna. Sýninguna sótti
fjöldi manns.
Kvikmyndasýningar hafa verið
hálfsmánaðarlega í vetur. Sýndar voru
30 filmur. Aðallega eru þetta fræðslu-
myndir, einkum úr landafræði og nátt-
úrufræði.
Lestrarstofa var opin í skólanum
þrisvar í viku. Gafst bömum þar tæki-
færi til að lesa bækur eftir eigin vali.
Arsskemmtun sína héldu skólabörn-
in skömmu fyrir páska. Nokkuð af efni
hennar var tekið upp á plötur og
flutt í barnatímum útvarpsins eins og
undanfarin ár.
íþróttamót hafa verið með mesta
móti við skólann í vetur. Þann 14. okt.
fór fram sundkeppni um Snorrabikar-
inn í sundlaug bæjarins. Tóku 8 sveit-
ir þátt í þeirri keppni. Bikarinn vann
að þessu sinni sveit 6. bekkjar úr 12.
stofu. Snorrabikar er farandbikar, gef-
inn af Snorra Sigfússyni námsstjóra.
Þá hafði skólinn gengizt fyrir skauta-
móti frammi á Eyjafarðará. Er það í
fyrsta skipti, sem skólinn hefur gengizt
fyrir skautamóti. í keppninni tóku
þátt 8 sveitir, en sigurvegarinn var
sveit 6. bekkjar úr 7. stofu.
Á skólaárinu hafa skólanum borizt
tvær gjafir. Annað er fánastöng úr
kopar ,sem stendur á skólabjöllu, veg-
legur gripur, gefinn af Magnúsi Pét-
urssyni, kennara. Hin gjöfin er sauma-
vél, sem stúlkur úr 6. bekk 12. stofu
gáfu skólanum. Héldu þær skemmtun
í þessu skyni með hjálp kennara síns