Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 33
HEIMILI OG SKÓLI
77
og fengu inn nærri því andvirði vél-
arinnar.
Þá gat skólastjóri þess nýmælis, að í
vor héldu nemendur Tónlistarskólans
tónleika í skólanum. Komu þar fram
6 börn og unglingar.
Þá minntist skólastjóri þess einnig,
að hann hefði á þessum vetri fengið
tveggja og hálfs mánaðar leyfi til utan-
farar, og kynnti hann sér skólastarf á
Norðurlöndum. Var Eiríkur Sigurðs-
son, yfirkennari, settur skólastjóri á
meðan.
Að lokum ávarpaði skólastjóri börn
þau, sem brautskráð voru úr skólan-
um. Minnti hann þau á, að enginn get-
ur öðlast hamingju, nema leggja eitt-
hvað á sig til að finna hana. Og eitt af
meðulunum til að öðlast sanna ham-
ingju er það að sýna öðrum ávallt góð-
vild.
Hvað um fordæmið?
„Komdu samstundis, Anna, og þvoðu þér
um hendurnar," kallaði móðirin til Onnu
litlu dóttur sinnar út um gluggann á ann-
arri hæð.
„Ég kem ekkert upp til þín,“ svaraði Anna
litla.
„Lofaðu henni þá að þvo sér hérna niðri,“
sagði amman, sem bjó á neðri hæðinni. „Það
ætti að koma í sama stað niður.“
„Nei„“ sagði móðirin byrst, „hún á að
venja sig á að hlýða móður sinni.“
Anna litla kom til móður sinnar lötur-
hægt og mælti: „Ætlar þú þá ekki að hlýða
móður þinni?“
f