Heimili og skóli - 01.08.1953, Qupperneq 34
78
HEIMILI OG SKÓLI
Fréttir frá Barna- og unglingaskóla
Eskifjarðar.
Skólaslit fóru fram fimmtudaginn
30. apríl. í barnaskólanum stunduðu
nám 88 nemendur, en í unglingaskól-
anum 22 nemendur. Við skólaslit töl-
uðu skólastjóri. og séra Þorgeir jóns-
son, prófdómari. Þá voru afhent fram-
faraverðlaun, eins og undanfarin ár.
Einnig voru afhent verðlaun fyrir
beztan árangur í báðum deildum ungl-
ingaskólans og í landsprófsgreinum
við barnapróf. Veitt voru vérðlaun,
pilti og stúlku, í 2. bekk unglingaskól-
ans fyrir beztu handavinnu. Þess hátt-
ar verðlaun hafa skólanum verið falin
til úthlutunar undanfarin ár. Frá sama
aðila bárust skólanum nú kr. 200,00 til
myndunar sjóðs, til þess að veita viður-
kenningu fyrir sérstaka háttprýði.
Verður viðurkenning veitt úr þeim
sjóði næsta vor. Hæsta einkunn í
barnaskólanum var 9,4, en í unglinga-
skólanum 9,0. Sund er hér ekki reikn-
að með. Barnaprófsbörn fara til sund-
náms að Eiðum seinni hluta maí. I
fyrra var byrjað á byggingu sundlaug-
ar á Eskifirði, en ekki er vitað hvenær
hún verður fullgerð. Við skólaslit fór
fram sýning á skólavinnu nemend-
anna, vinnubókum, smíðum, bók-
bandi, teikningum og handavinnu
stúlkna. Um kvöldið var skemmtun í
skólanum fyir nemendurna.
Úr unglingaskólanum útskrifuðust
aðeins 9 nemendur, en 25 nemendur
voru innritaðir í vorskólann.
Sumardagurinn fyrsti var hátíðlegur
haldinn, eins og að undanförnu.
Skemmtu þá nemendur skólanna með
söng, leiksýningum, upplestri, viki-
vaka o. fl. — Undanfarið hafa skóla-
A leikvelli barva- og unglingaskóla Eskifjarðar.