Heimili og skóli - 01.08.1953, Síða 37

Heimili og skóli - 01.08.1953, Síða 37
HEIMILI OG SKÓLI 81 Þau fengu sama uppeldi. Sálfræðingurinn, cand. psych. Grete Janus, segir frá því, hve ólík áhrif sama uppeldi getur haft á systkinahóp. Foreldrar barna, sem þroskast hafa á mismunandi hátt, segja stundum: „Þau eru alveg eins uppalin“ og: „Við reyndum ávallt að fara eins með þau.“ I raun og veru verður að skilja orð þeirra sem eins konar óskadraum, er einnig gefur til kynna, að fyrrnefnd- um foreldrum hættir við að líta ein- ungis á hlutina, frá þeirra eigin sjónar- miði, ekki barnanna. Það er ómögulegt að ala tvö börn nákvæmlega eins upp, hversu mjög sem við leggjum okkur í framkróka, nema þau séu eineggja tvíburar. — Venjuléga segist fólk elska öll börn sín jafnmikið, það finnst okkur samkvæmt hinni (fullorðnu) réttlætiskennd, að við eigum að gera, en það útilokar ekki, að við að minnsta kosti elskum þau á ólíkan hátt. Sumum mæðrum t. d. finnst fyrsta barnið vera nokkurs konar dásemdar- verk, en hins vegar líta þær á nr. 2 og 3, sem venjuleg börn. Aðrar mæður bera meiri ástúð í brjósti til yngsta barnsins, barnsins er verið hefur hættulega veikt, þess, sem er vangefið eða jafnvel mjög fyrirhafnarsamt. Enn aðrar mæður taka hið fegursta, gáfaðasta eða þægasta barn fram yfir — án þess þó að þora að viðurkenna það — eða þá barnið, sem mest líkist þeirra eigin fjölskyldu. Samband okkar foreldra við hið ein- staka barn er mjög háð okkar eigin skapgerð, minningum frá æsku okkar, ósjálfráðum óskum og draumum, hjónabandinu, uppeldi okkar og þeim hleypidómum og sjónarmiðum, sem við áður höfðum tileinkað okkur, sem karl eða kona. Þegar foreldrar álíta, að börn þeirra fái sams konar uppeldi, yfirsést þeim þá mikilvægu staðreynd, að barn nr. 2 kemst í lífsaðstöðu, sem er mjög ólík kjörum fyrsta barnsins. Meðan fyrsta barnið var einbirni, var það að meira eða minna leyti miðdepill, sem for- eldrar og nánustu vandamenn beindu ahygli sinni að. Mesta vandamál frum- burðarins verður sennilega að venjast því, að nr. 2 krefst einnig sinna rétt- inda. Frá byrjun hefur nr. 2 annað barn til að leika sér við, til að dást að, taka sér til fyrirmyndar — og til að keppa við. Þess vegna fær nr. 2 sjaldan næði til að þroskast í þeim hraða, sem barn- inu er eðlilegur, eins og fyrsta barnið við heppilegustu aðstæður hefur haft. Sérhver staða í systkinaröðinni get- ur haft bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar í för með sér — jafnvel þótt þau séu aðeins tvö. — Það hlýtur að hrekja þá staðhæfingu foreldranna, að börnin hafi lilotið sama uppeldi. Venjulega leiða nánari viðræður í ljós, að foreldrarnir halda því fram, að þau hafi leyft börnunum það sama, bannað þeim það sama og stjórnað þeim með sömu uppeldisreglum. Þau sleppa því að vísu, að sú aðferð, sem

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.