Heimili og skóli - 01.08.1953, Blaðsíða 39

Heimili og skóli - 01.08.1953, Blaðsíða 39
HEIMILI OG SKÓLI 83 var bara sjö ára. Það er ekkert vit í því.“ Ungur maður segir frá því, að enn sem fullorðinn maður geti hann orðið hamslaus af reiði við foreldra sína, af því að þau kröfðust þess, að hann kæmi inn og háttaði á kvöldin á sama tíma og bróðir hans, er var fjórum ár- um yngri. „Við bjuggum í sveit, við vorum meira að segja þeir fyrstu, sem kallað var í á kvöldin. Á sumrin var bjart, þegar við vorum reknir í rúmið- Eitt einasta skipti — síðasta dag sum- arleyfisins — fékk ég leyfi til að látast hátta með Svend — pabbi og mamma sögðu, að þegar hann væri sofnaður, mætti ég skríða út um glugann. — En hvað ég hataði þau út af þessum hátta- tíma.“ Birthe litla — 9 ára, — á 7 ára systur, foreldrarnir skiidu, móðirin vinnur úti til kl. á hverjum degi. „Þegar við erum búnar að borða, eigum við þegar að hátta,“ kveinar Birthe. — „Mamma segir, að hún vilji ekki gera mun á okkur og þess vegna vill hún að við háttum á sarna tíma. En ég er þó eldri og verð að vinna svo mikið fyrir mömmu, þá ætti ég líka að mega sitja og tala dálitla stund, þegar Jytte er háttuð." „Eg eignaðist ekki hjólskauta, fyrr en ég sjálf var búin að spara andvirðið saman, — en pabbi gaf litlu systur aft- ur skauta. — Þau sögðu, að hún væri of lítil til að spara.“ ^ „Mamma vilf að litla systir sé með, þegar ég leik mér við vinstúlku mína, þó að hún sé alltof lítil til þess að leika sér eins og við. Og þegar við erum úti, verð ég afltaf að leiða hana. Mér var ekki leyft að vera úti á götu, þegar ég var þriggja ára. Mér finnst hún geta beðið þangað til hún er nógu stór til að vera ein.‘ Það er lengi hægt að telja upp þess konar ummæli. Það eru oftast eldri börnin, sem eru ánægð, þó að yngri börnin segi stundum, að foreldrarnir séu óréttlátir, af því að þau bera sam- an afköst sín við það, sem dugleg, eldri systkini framkvæma: „Mamma segir að Birgitta fari svo vel með fötin sín — en hún er líka miklu eldri.“ Ef til vill finnst sumum þetta vera smámunir — en fyrir börnin er mjög mikilvægt, hvenær maður háttar, hve- nær maður öðlast uppfyllingu óska sinna — svo sem hlaupahjól, hjól- skauta og reiðhjól — hvenær maður fær að læra að dansa, synda, að verða skáti o. s. frv. Ef ósamlyndi vegna afbrýði er milli barnanna, getur breytni, sem eitthvert þeirra álítur rangláta af foreldranna hendi, orðið tilefni mikillar reiði og þrjózku og stundum til ævilangrar beizkju hjá þeim, sem finnst að for- eldrarnir hafi brugðizt. Guðlaug M. Þorsteinsdóttir þýddi úr Dansk pædagogisk tidsskrift. Raunabót. Faðrinn: „Jæja, drengur minn. Stóðstu svo ekki prófið?“ Sonurinn: „Nei, pabbi, en ég yar efstgr af þeim, sem féllu.“ Þar var staðurinn. Kennarinn: „Heyrðu nú, Jónsi, þú ert sá mesti prakkari, sem til er í bekknum. Þú átt ekki skilið að fá að sitja hjá félögum þínum. Komdu nú, karlinn, og setztu hérna hjá mér.“

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.