Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 42

Heimili og skóli - 01.08.1953, Side 42
8G 4 HEIMILI OG SKÓLI BÆKUR Líf og játning eftir Valdimar V. Snævarr f. skólastjóra. Utgefandi Bóka- forlag Odds Bjömssonar. Hér stígur leik- maður í stólinn og semur kver handa fermingarbörnum, en það hefur hingað til verið talin sérgrein prestanna. Kver þetta skiptist í fjóra höfuðkafla: Guð faðirinn, Guðs sonurinn, Guð heilagur andi og Kirkjulegur fróðleikur. Megin efni kvers- ins er um Guðs soninn og fjallar um upp- haf Jesú, líf, starf og kenningar. Hinir kaflarnir allir eru stuttir ,en allt ber kverið þess vott, að þar hefur reyndur og góður kennari um vélt. Enda segir höf- imdur í eftirmála kversins, að bók þessi hafi smám saman orðið til í kennslustund- um sínum í fermingarbekkjum. gjafir en einhver slík leiktæki, svo sem bókstafakassa eða reikningsleik- fang. Bezt væri, ef tök væru á, að hafa öll slík börn sér í bekk, eða veita þeim sérlijálp, sem á einhvern liátt hefðu ekki náð eðjilegum skólaþroska. Þau þurfa aðra meðferð og aðrar aðferðir en venjuleg l)()rn, en gætu á þann hátt öðlast þroska til að geta notið kennslu í öllum venjulegum bekkjum síðar. En þau börn, sem í raun og veru skort- ir gáfur og þroska til að njóta al- mennrar kennslu, eiga að vera í hjálp- arbekkjum áfram. Það á að leysa slík börn frá þeirri niðurlægingu og van- sælu, sem því fylgir að vera sett í bekk með „normal“ börnum. Með því móti er von til, að þeim takist seinna að geta fylgzt með í venjulegum bekkj- um. Lauslega þýtt úr Unge Pædagoger. H. J. M. OG RIT. Við fljótan yfirlestur er ekki gott að segja um kosti eða galla kvers þessa. Það verður varla fullprófað, nema með notkun þess við kennslu, en tvennt virðist mér auðsætt: Kverið er mjög skipulega samið, engar málalengingar, aðeins dregin fram höfuðatriðin, og þau 'sett fram skýrt og greinilega. Minnissetningar, og ýmislegt annað, sem leggja ber sérstaka áherzlu á, er innrammað, eða prentað með breyttu letri. Það er minnt á margt, en engar lang- lokur finnast þarna með torskildum út- skýringum. Jesús er víða látinn tala sjálf- ur, en á öðrum stöðum er vitnað í guð- spjall og kapítula. Mér hefði að vísu þótt öllu betra, að vísað hefði verið í sjálfar sögurnar, eins og var í gamla Klavenes- kverinu, en ég þykist vita, að höfundur hafi viðhaft þessa aðferð með vilja til að hvetja til leitar og lestrar í sjálfri biblíunni. Mikið eykur það á gildi kvers- ins, að inn í lesefnið eru fléttaðir sálmar, sem ætlazt er til að börnin læri um leið. Það má efalaust deila um, hvaða sálma hefði átt að velja til birtingar þar, og ekki er ég viss um, að ég hefði valið ein- mitt þessa sálma, en sem sagt, þetta eykur líka á gildi kversins og gerir það meir lif- andi. Hitt, sem kverið ber greinilega með sér er það, að höfundur er sjálfur innileg- ur trúmaður. Hann ber djúpa lotningu fyrir þessu viðfangsefni sínu, og veit, að hann er þarna að vinna mikið ábyrgðar- starf. Þetta er líka höfuðatriði, svona bækur þarf að semja af heilum hug. Ég veit ekkert, hvernig þessari bók verður tekið af prestunum og. þeim kenn- urum, sem kunna að nota hana. En ef ég hefði átt að kenna kver, hefSi mér fyrir margra hluta sakir þótt fengur í þessari bók. En þó að hún sé einkum ætluð prest- unum, vil ég þó vekja athygli á, að kenn- arar geta haft hennar mikil not við krist- indómsfræðslu sína og foreldrar. Hún get- ur verið þeim eins konar handbók, minnt þá á margt, sem ekki má gleymast við

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.