Heimili og skóli - 01.08.1953, Blaðsíða 44

Heimili og skóli - 01.08.1953, Blaðsíða 44
88 HEIMILI OG SKÓLI ávarp í hátíðarsöng jóladagsins. — Við Jes. 53, 3—5 er til einkarfagurt tónlag eftir C. H. Graun, höf. passionarinnar: Dauði Jesú (Prestafélagsritið 1926, bls. 166). Séra Magnús Einarsson, sálmaskáld og prestur að Tjörn í Svarfaðardal 1769— 1794. — „Nú er svanurinn nár á Tjörn“, kvað séra Jón Þorláksson eftir hann. Bls. 12: Eins og kunnugt er, reiknaði Dionysius munkur hinn litli út tímatal vort að boði Jóhannesar páfa III. 525 e. Kr. Smá- skekkja virðist vera í tímatalinu eftir út- reikningi hans. Jesús er að öllum líkindum fæddur 4—7 árum fyrr en talið er. Jólahá- tíðin er yngst kristinna stórhátiða kirkjunn- ar. Það er fyrst um miðja 4. öld að sjáanlegt er, að fæðingarhátíð Frelsarans hafi verið heilög haldin á þeim degi, sem nú eru haldin jól. Jólahaldið hefst í Rómaborg og breiðist þaðan út. — Heimildir frá 2. eða 3. öld e. Kr. telja Jesúm fæddan 25. des. (Hippolytus biskup, d. 235 e. Kr.). — (Sjá Á. G.: Æfi Jesú, bls. 49). — Athyglisvert er, að Lúkas, eini guðspjallamaðurinn, sem ekki er Gyð- ingur, segir greinilegast frá fæðingu Jesú. Bls. 12: Nazaret í Galíleu er kyrrlátur fjallabær með 9000 íbúum. Hann er ekki nefndur í Gamla testamentinu. Það er Jesús, sem gjört hefur „garðinn frægan“. — Betle- hem í Júdeu er lítið eitt sunnar en Jerú- salem. Ibúamir eru um 5000. — (Sjá Á. G. og M. J.: Jórsalaför). Bls. 13: Nafnið Jesús þýðir: sá, sem frels- ast; Frelsari. Bls. 15: Síðastur hinna fomu spámanna Gyðinga var Malakí, er uppi var 400 f. Kr. Bls. 15: Jóhanrtesarskírnin var niðurdýf- ingarskírn. Ymsir sértrúarflokkar, þeirra á meðal Hvítasunnukirkjan, tíðka hana enn. — Barnaskírnin er æfaforn, líklega allt frá dögum postulanna. Skírð voru á ómálga aldri böm kristinna foreldra. Bls. 16: Skírnarfonturinn í Akureyrar- kirkju. — Hann var gjörður af ítölskum myndhöggvara úr marmara eftir skírnarfonti Alberts Thorvaldsens í Frúarkirkjunni í Kaupmannahöfn. — Hann er kirkjunni gef- inn af kaupmannshjónunum Gunnhildi og Balduin Ryel á Akureyri 1952. Bls. 19: Þegar vígðir menn (prestar) fara með blessunarorðin í messu og oftar, segja þeir: „Drottinn blessi þi£“ o. s. frv., eins og Drottinn bauð Aron og sonum hans að gjöra (IV. Mós. 6, 24). — Leikmenn fara jafnan með blessunarorðin í 1. pers. Bls. 20: Tvennir postulabræður. — Símon Pétur og Andrés — og í öðru lagi Jakob og Jóhannes Zebedeussynir. — Júdas frá Karíot var eini postulinn, sem ættaður var frá Júdeu. Hinir voru Galíleumenn. Bls. 21: Við fermingarsálminn: „Konung- ur lífsins kemur hér til sala“ hefur séra Bjami Þorsteinsson á Siglufirði gjört fagurt lag. Bls. 27: Hér ætti vel við, að fara með versið: „Son Guðs ertu með sanni“ (Pass. 25), sem bömin kunna öll að sjálfsögðu. Bsl. 34: Liður b.: Afstaða Jesú til samúð- ar og kæríeika. Hér ætti að minna á orðin í Matth. 11„ 28: „Komið til mín, allir þér, sem erfiðið“ o. s. frv. Börnin kunna þau orð að sjálfsögðu, en rétt er að rifja þau upp, svo að þau gleymist eigi. — Látið börnin einnig fara með dæmisögurnar eða lesa þær, jafnótt og þær koma fyrir. Bls. 35—36: Látið bömin lesa lækninga- og kraftaverkasögurnar og talið um þær við þau. Bll. 36—38: Upptalningin er vitanlega hvergi nærri tæmandi, en auðvelt er við að auka, eftir því sem tíminn leyfir. — Vel ætti við að tala um skóla og almenna fræðshj og minnast þess um leið, að kirkjan er „mennta móðir“. Bls. 45: Sálmurinn: „Allt eins oé blómstr- ið eina" mun hafa verið sunginn í fyrsta skiptið yfir Brynjólfi biskup Sveinssyni í Skálholti 1675. — Sálminn orti Passíu- sálmaskáldið Hallgrímur Pétursson. Bls. 48: Kennið börnunum lagið við Lítaníuna eftir séra Bjarna Þorsteinsson. Leikið það oft á orgel og raulið það með bömunum á langaföstunni! (Niðurlag síðar).

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.