Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 5

Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 5
Heimili og skóli TÍMARIT UM 'UPPELDISMÁL 14. árgangur Marz—Apríl 1955 2. hefti ÓLAFUR GUNNARSSON, sálfneðingur: Fávitaháttur og fávitakennsla. Orsakir til fávitaháttar eru aðallega tvenns konar: Erfðir og áföll. Hvað erfðirnar snertir er þar oftast um að ræða fávitahátt á lægsta stigi, þ. e. van- vita, en áföllin valda yfirleitt alvarleg- asta fávitahættinum og gerir marga að örvitum. Áföllin geta komið meðan á fæðingu stendur, eða síðar eftir ástæð- um. Of þröng mjaðmargrind móður- innar veldur stundum fávitahætti barnsins, eins getur tangarfæðing haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Síðar meir geta byltur, höfuðhögg og ýmsir sjúkdómar valdið fávitahætti, t. d. er syfilis foreldranna, og þó einkum móðurinnar, hættulegur börnunum. Útlit fávitanna gefur stundum hug- mynd um, hvað fávitahættinum valdi, t. d. er hydrocephalus eða vatn í höfði auðþekkt á hinu litla andliti en blöðrumyndaða höfði. Mongolisminn, sem talinn er stafa af skemmdum í kímfrumu móðurinnar, er auðþekktur á hinu breiða og flata nefi og hrukk- um í húðinni efst við nefið. Oftar er það þó þannig, að ekki verður séð á útliti barnanna um livaða tegund fá- vitaháttar er að ræða, og orsakirnar til hans geta verið seinfundnar. En það skiptir eigi alllitlu máli að vita skil á þeim, því að í einstaka tilfelli er ekki með öllu útilokað að heilaskurður geti læknað fávitaháttinn, og eftir því sem þekking á heilanum eykst, er frek- ar von um að sú leið verði oftar farin þegar stundir líða. Oftast stafar fávita- háttur þó af áskapaðri, lítilli greind,og er enn þá sem komið er ekkert við því að gera nema að kenna fávitunum að nota hana sem bezt. í því sambandi má benda á, að ef báðir foreldrarnir eru fávitar eða mjög vitgrannir, er liættan á fávitahætti barnanna mikil, ef aðeins annað foreldranna er fáviti er hættan á fávitahætti barnsins helm- ingi rninni, en oft er það svo, að fávitar verða til að giftast, enda má með sanni segja að hvað elskar sér líkt. Karlmað- ur, sem er fáviti, hefur yfirleitt ekki á sínu valdi að vinna ástir greindar- stúlku, svo að það er varla nema sér- stiik óhöpp beri að höndum að hugs- anlegt sé að á hallist til mikilla muna í þá áttina. Hins vegar kemur alloft fyrir, að greindir karlmenn kvænast mjög lítið gefnum stúlkum, hvort sem það kann að stafa af líkum hugsunar- hætti, eins og almennur er hjá mennt- uðum Indverjum, en þar vill mennta- maðurinn aðeins heimska konu og alls

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.