Heimili og skóli - 01.04.1955, Page 10
30
HEIMILI OG SKÓLI
alúð og skyldurækni. Hún er ein af
þessum konum, sem vaka yfir hvers
manns hag, og þá einkum barnanna.
Sjálf er hún móðir, og því skilur hún
betur en ella þarfir allra hinna mörgu
barna, sem hún umgengst daglega. Og
enginn einn starfsmaður við Barna-
skóla Akureyrar þekkir jafnvel skóla-
börnin, ekki aðeins í sjón og með
nafni, heldur miklu meira en það. —
Það hafa margar mæður haft orð á því
við mig, hvað það sé mikið öryggi fyrir
mæðurnar að vita litlu börnin sín allt-
af í skjóli Soffíu meðan þau eru í
skólanum, og það er hverju orði sann-
ara. Þótt sjaldan gerist alvarlegir hlut-
ir í þeim efnum, hefur hún þó rnarga
huggað og mörgum fylgt heim, er
skyndilegan lasleika liefur borið að.
Og Soffía kann ráð við öllu, hvort sem
það eru litlar skeinur eða beinbrot.
Starf Soffíu við skólann er að sumu
leyti ekki vinsælt, þar sem hún á að
fylgjast með hreinlæti barnanna, og
stundum þarf að finna að. En Soffía
kann að gera það þannig, að hún særir
engan. Það er því fjarri því, að börn-
unum bregði, þegar Soffía kemur fyr-
irvaralaust inn í kennslustofuna með
bókina sína undir hendinni. Kannski
verður einhverjum að líta á hendur
sínar og neglur í laumi, og þegar verst
gegnir, er kannski beðið um að fá að
skreppa fram á gang, en Soffía brosir í
laumi og gengur svo á röðina einbeitt
og glaðleg á svip, en þó er einhver
glettin og hlýleg slikja í augunum. Og
enginn vill gera á hlut Soffíu. Jafnvel
stórir og kaldir strákar, sem þvkjast
vera vaxnir upp úr slíkri endurskoðun
á sjálfum sér, sýna lienni þó fyllstu
hlýðni og kurteisi. Svo kveður hún
brosandi, og drepur á dyr á einhverri
annarri stofu.
Kannski mætir hún þá einhverjum
kennara á ganginum, og þótt mikið sé
að gera, og margir kollar og margar
hendur óskoðað enn, á Soffía sjaldan
svo annríkt, að hún megi ekki vera að
því að láta fjúka nokkur gamanyrði.
Og til er það, að vísa hrýtur af vörum
hennar, ekki sízt ef hún á von á að fá
aftur greitt í sömu mynt. Soffía er sem
sé prýðilega skáldmælt, þótt ekki aug-
lýsi hún það að jafnaði, og ágætlega
greind. Frú Soffía er rnikil alvörukona
og sameinar á skemmtilegan Iiátt al-
vöru og kímnigáfu. Höfum við sam-
starfsmenn hennar oft notið góðs af
því í daganna striti. Og það er eins og
allt starf sé leikur fyrir Soffíu, gengur
hún þó ekki alltaf heil til skógar. Eg
hef stundum sagt það við hana, að það
væri einhver húnvetnskur þrái, sem
héldi henni á fótum, þótt ég viti hins
vegar, að það er fyrst og fremst ódrep-
andi skyldurækni og áhugi og virðing
fyrir starfi sínu.
Svona er nú Soffía Stefánsdóttir í
stuttu máli sagt. Úrvalsstarfsmaður,
ágætur vinnufélagi og mannkostakona
í húð og hár.
Um leið og ég árna henni allra
heilla á þessu hátíðlega afmæli, þakka
ég henni fyrir ágætt samstarf á liðn-
um árum, bæði fyrir mig og skólann.
Eiginmaður Soffíu er Friðrik Jóns-
son frá Hömrum í Skagafirði. Dreng-
ur góður, alltaf glaður og reifur, eink-
um ef hann er nálægt hestum, og þó
glaðastur á hestbaki. — Þau eiga tvær
uppkomnar, myndarlegar dætur.
H../. M.
I