Heimili og skóli - 01.04.1955, Side 11

Heimili og skóli - 01.04.1955, Side 11
HEIMILI OG SKÓLI 31 Heimsókn í Emdrupborg. Þegar ég ferðaðist milli skóla á Norðurlöndum fyrir tveimur árum, kom ég fyrst við í Gautaborg og átti þess kost að líta inn í Karl-Jóhanns- skólann, en ég hafði verið þar fáeina daga árið 1937 og þekkti því nokkra kennara þar. I þetta skipti var þó dvöl mín stutt, en þeim stutta tíma eyddi ég í skólastofunni hjá Max Glanselíusi, og ég minnist þess, að það síðasta, sem hann sagði við mig, er ég kvaddi hann, var þetta: „Þú mátt ekki láta nndir höfuð leggjast að koma í Emdrup- borg.“ Þegar ég kom svo til Kaupmanna- liafnar, minntist ég þessara orða og lét það verða eitt mitt fyrsta verk að heim- sækja skólann í Emdrupborg. Þriðjudaginn 24. febrúar stóð ég svo utan við þennan mikla kastala snemma morguns nm það leyti, sem börnin voru að streyma að skólanum. Þetta er mikil og vegleg bygging. Þjóðverjar létu reisa hana á hernáms- árunum, og skvldi Jressi mikli kastali vera miðstöð norrænnar æsku, sem að- hylltist nazismann, og ber hún þess að nokkru leyti rnerki. Annars er bygg- ingin hin fullkomnasta. Ekki er nema lítill hluti hennar notaður fyrir barna- skóla. Þarna er einnig til húsa kenn- araskóli o. fl. Þessi barnaskóli, sem telur um 850 börn, er tilraunaskóli. Þarna er verið að þreifa sig áfram með ný vinnubrögð og nýjar kennsluaðferðir, og er það allt hið athyglisverðasta, þótt það leiði ekki allt til nýrra landafunda á þessu sviði. Skólastjórinn er frú Anne Marie Nörvig, kona unr fimmtugt og einn af þekktustu uppeldisfræðingum Dana. Hún var ekki ýkja alúðleg í fyrstu, nokkuð þung á brún, en reyndist mér Jrví betur síðar, og vildi allt fyrir mig gera. Hún bauð mér að ganga um kennslustofur, og einnig lánaði hún mér hinar vikulegu skýrslur, sem kennarar skólans gefa, og greiddi fyrir mér á allan hátt. Hjá henni var stöð- ugur straumur gesta, kennara og for- eldra, sem þurftu að ráðgast við hana um ýmislegt, en þó gaf hún sér góðan tíma til að tala við mig og fræða mig o o O um þessa stofnun. Allir kennarar skólans halda dag- bók, mismunandi nákvæma þó. Þar lýsa þeir kennslu sinni, kennsluaðferð- um, árangri ,viðhorfi barnanna, því, sem farið er yfir í liverri grein og yfir- leitt öllu, sem máli skiptir í starfinu hvern dag. Ég græddi mikið á því að fara yfir þessar skýrslur, þótt til þess væri of lítill tími. Þessar skýrslur leggja þeir svo fram. Þá tekur skóla- stjórinn við þeim og fær þær síðan í hendur skólasálfræðingunum, sem vinna úr Jreim. Kennarar við þennan skóla hafa færri vikulega tíma en kennarar við aðra skóla, og byggist það m. a. á skyldu þeirra til þessara skýrslugerða. Og líklega einnig á því, að kennara- fnndir eru lialdnir vikulega, þar sem

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.