Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 12

Heimili og skóli - 01.04.1955, Blaðsíða 12
32 HEIMILI OG SKÓLI ræddar eru skýrslurnar og árarigur til- raunanna. Eftir þennan formála væri líklega rétt að líta inn í nokkrar kennslustofur og forvitnast um, hvað þar fer fram. Við skulum fyrst líta inn í 8 ára bekk. Vinnubrögðin þar eru nokkuð ólík því, sem við eigum að venjast. Það er þá fyrst, að þar sézt enginn kennari við kennaraborðið. Og það er bezt að skjóta því hér inn, að það er næsta sjaldgæft, að sjá kennara í Danmörk og raunar á Norðurlöndum yfirleitt, sitja við kennaraborðið. Og í þessu til- felli sat kennarinn úti í horni með 3 eða 4 böm í kringum sig. Hérna fór kennslan fram í flokkum, enda bömin á mjög mismunandi stigi, þótt öll væru á sama aldri. Það er sem sé ekki alls staðar lögð áherzla á það á Norð- urlöndum að skipta börnum í deildir eftir greind og þroska. Kennarar segja, að í bekk með eintómum illa gefnum börnum dragi þau hvert annað niður, en sé greindum og ógreindum börnum blandað saman í deildir, þá lyfti greindu börnin hinum ógreindari. En snúurn okkur nú aftur að efninu. Börnin voru á stjái um stofuna og máttu gera hvað sem þau vildu. Þau, sem lengst vorn komin, máttu fá sér bækur eftir eigin vali, þau mega teikna á töflu ,eða gera eitthvað annað á meðan hin lesa. En eins og áður er sagt, situr kennarinn úti í horni með 3 eða 4 börn og kennir þeim lestur. Þau láta ekki trufla sig, þótt nokkur ókyrrð ■sé í stofunni. Þarna er eiginlega ekkert kennaraborð. Þar sem það er vant að vera, er langborð eitt, og við það sitja 4 börn, sem lesa af kappi, livert í sinni bók. Börn í þessum bekk höfðu alla vega bækur af mismunandi þyngd. Sum voru með bækur, sem að þyngd svöruðu til 3. eða 4. heftis í lestrarbók- unum okkar, og lásu mörg reiprenn- andi, en öl 1 þessi börn komu algjör- lega ólæs í skólann, því að engir smá- barnaskólar ern starfræktir í Kaup- mannahöfn. Aðeins barnagarðar og leikskólar, og þar læra börnin ekki að lesa. Nokkur hávaði var í bekknum, þó ekki mikill. Kennarinn skipti sér ekk- ert af því. Einn hópurinn söng t. d. lágt vísurnar í lestrarbókinni, sem þau voru með. Þarna var nálega algjör ein- staklingskennsla. Kennarinn hafði tvo tíma samliggjandi og gat því látið alla lesa talsvert mikið, þau vel læsu lítið, en hin aftur meira. Þessi kennari hafði notað jöfnum höndum orðaaðferð og hljóðaaðferð. Fyrri hluta vetrar hafði liann haft bekkjarkennslu, en síðan tekið upp þessa frjálsu aðferð. A aft- urvegg skólans voru skápar með bók- um og áhöldum, sem börnin máttu nota eftir vild. Einu sinni hafði hann stutta æfingu upp við töflu með4börn- um, aðallega til að æfa skýran fram- burð, og lét hann þá börnin endurtaka sumar setningar oft, þar til hann var ánægður með framburðinn. Eg leit á skriftarbækur barnanna. Það var eingöngu formskrift. Börnin höfðu náð svo miklu valdi á henni, að þau voru farin að skrifa stíla, 1—2 blaðsíður. Næst skulum við líta inn í 11 ára bekk. Á stundaskránni stóð: Fyrir- lestrartími, en þeir eru að minnsta kosti tveir í viku. Og er þá ýmíst, að kennarinn flytur fyrirlestur sjálfur

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.